Fréttablaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 18
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 HVERNIG Á AÐ BURSTA? Myndbönd sem sýna tannburst- un barna má finna á vefsíðu Embættis landlæknis, www. landlaeknir.is/ tannheilsa, og vef- síðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- is, www.heilsu- gaeslan.is/fra- edsla/tannvernd. Einlægur áhugi leikskólastjórnenda í Breiðholti fyrir bættri tannheilsu barna var ein af meginástæðum þess að farið var af stað með hið metnaðarfulla verkefni „Tannburstun í leikskólanum“ sem er forvarnarverkefni á vegum Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðis og hefur það að markmiði að bæta tannheilsu íslenskra barna. „Leikskólastjórarnir sáu ákveðin vandamál og fannst að sinna þyrfti tann- heilsu betur og kölluðu eftir ráðgjöf frá okkur,“ segir Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Þróunarsviði heilsugæslu höfuðborgarsvæðis, sem hefur ásamt Kristínu Sigurðardóttur tannlækni þróað verkefnið undanfarin ár. „Í upphafi lögðum við áherslu á almenna fræðslu, hittum for- eldra og starfsmenn leikskólanna og leik- skólabörnin fengu m.a. flúortöflu daglega. Hins vegar vissum við að tannburstun myndi skila meiri árangri,“ segir Hólm- fríður. Haustið 2009 var ákveðið að hefja daglega tannburstun í leikskólum Efra- Breiðholts og gera tannhirðu að viður- kenndum þætti í leikskólastarfi. „Byrjað var á yngstu deildunum og frá árinu 2011 hafa öll leikskólabörn í Holtinu, Öspinni og Vinaminni verið tannburstuð eftir há- degismat og árið 2013 hófst dagleg tann- burstun allra leikskólabarna í Suðurborg og Hólaborg,“ segir Hólmfríður en dagleg tannburstun leikskólabarna er einnig í boði á Sunnuhvoli í Garðabæ og í leikskól- unum Uglukletti og Klettaborg í Borgar- nesi. „Þetta gekk ótrúlega vel og það tók ekki mikinn tíma að koma tannburstun inn sem einum lið í dagskrá leikskólanna. Margir höfðu áhyggjur af því að þetta myndi taka langan tíma og yrði erfitt, en svo var ekki,“ upplýsir Hólmfríður. ALMENN ÁNÆGJA FORELDRA Einn þeirra leikskóla sem hafa tekið upp tannburstun er Suðurborg í Efra-Breið- holti. „Tannlæknar byrjuðu að skoða börnin haustið 2011 og það var skoðað fram yfir áramót. Síðan fórum við að viða að okkur græjum, tannburstum og lokum á þá enda þarf að fylgja sérstökum heil- brigðisreglum. Til dæmis mega tann- burstarnir ekki liggja saman. Það var svo í janúar 2013 sem við byrjuðum að bursta og höfum gert það í tæp tvö ár,“ lýsir Elín- borg Þorláksdóttir leikskólastjóri Suður- borgar og getur þess að Heilsugæslan leggi til tannbursta og tannkrem. Hún seg- ir mestan tíma í upphafi hafa farið í að fá samþykki allra foreldra en nú sé það gert í hvert sinn sem nýr nemandi kemur í leik- skólann. Hún segir almenna ánægju ríkja hjá foreldrum með framtakið. „Þetta hefur gengið ótrúlega smurt síðan við byrjuðum og tannburstunin er orðin hluti af rútínu starfsmanna og barna,“ segir Elínborg en öll börn leikskólans eru tannburstuð strax eftir hádegismat. Hún segir árangurinn góðan. „Starfsfólk er meðvitað að skoða tennurnar meðan það burstar. Ef grunur leikur á skemmd er hægt að hringja í tannlækni sem kemur þá til að skoða viðkomandi barn. Hann hefur síðan samband við foreldrana ef þörf er á og hvetur þá til að fara með barn sitt í eftirlit,“ segir Elínborg og telur verkefnið spara börnum mikla þjáningu enda gripið inn í áður en hlutirnir verða alvarlegir. TANNHIRÐAN MUN BETRI Hólmfríður segir að tannheilsa og tann- hirða íslenskra barna mætti vera mun betri. Meira er um tannskemmdir meðal íslenskra barna en sambærilegra hópa í nágrannalöndunum. „Einungis um helm- ingur sex ára íslenskra barna eru með óskemmdar barna- og fullorðinstennur,“ segir hún og vísar í Munnís-rannsókn sem framkvæmd var árið 2005. Hún bendir á að þar sem börn verji stórum hluta dags- ins í leikskólanum sé mælt er með því að dagleg tannhirða sé hluti af persónulegu hreinlæti á skólatíma. „Mikilvægt er að börnin læri að þeim líður vel með hreinar og heilbrigðar tennur og mælt er með því að hreinsa tennurnar eftir mat og fyrir svefn, að lágmarki tvisvar á dag,“ segir hún. Hólmfríður segir að aukatannburstun eftir hádegismat í leikskólum hafi skilað eftirtektarverðum árangi í Skotlandi þar sem tannskemmdum hjá börnum á leik- skólaaldri hefur fækkað og kostnaður við tannviðgerðir minnkað. Sömu sögu sé að segja á Íslandi í þeim leikskólum sem taka þátt í verkefninu. „Við sjáum færri tann- skemmdir og betur burstaðar tennur og foreldrar eru meðvitaðri um tannumhirðu. Við getum brugðist fyrr við, börnin fara fyrr til tannlæknis þegar eitthvað bjátar á og fyrsta heimsókn til tannlæknis verður því ekki eins erfið upplifun,“ segir Hólm- fríður sem dreymir um að tannburstun verði í öllum leikskólum landsins í fram- tíðinni. „Tannburstun á að vera hluti af dagskipulagi allra leikskóla, enda jafn sjálfsagður þáttur og hreyfing og næring leikskólabarna.” ■ solveig@365.is BURSTA TENNUR Í LEIKSKÓLUM METNAÐARFULLT VERKEFNI Í átta leikskólum í Breiðholti, Garðabæ og Borgarnesi er hluti af daglegri rútínu að bursta tennur leikskólabarnanna eftir hádegismatinn. Þá sjá tannlæknar um að skoða tennur barnanna. TANNLÆKNIR Hólmfríður Guðmunds- dóttir hjá Miðstöð heilsuverndar barna. U m bo ð: w w w .v ite x. is Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir flest apótek og heilsu búðir. Thylakoids: Dregur úr hungri - Eykur mettun Minnkar sykurlöngun - Minnkar ummál - Fækk ar aukakílóum Eykur orku - Bætir þarmaflóru. Hungurtilfinning minnkar strax vísindarannsóknir gerðar á mönnum af Karólínska Háskólanum í Lundi í Svíþjóð A U K A K Í L Ó I N B U R T með thylakoids spínat extrakt Aptiless spínat er stútfullt af hollustu 1 skammtur = 5 bollar af fersku spínati Lína er búin að missa 10 cm í mittismál á 3 mánuðum Hvers vegna Aptiless? Aptiless er með fjölda ítarlegar vísindalegra rannsókna og sannana um virkni googlaðu thylakoids spinach Mest selda spínat þyngdarstjórnunar - efnið í heiminum í dag. Merkasta nýjungin í heiminum í dag. GAMAN AÐ BURSTA „Í leikskólum má stuðla að betri tannheilsu og fækk- un tannskemmda með góðum venjum, markvissri fræðslu og daglegri aukatannburstun eftir hádegis- mat. Samvinna heimila og leikskóla getur stuðlað að enn betri tannheilsu barna og þar með að betri tann- heilsu síðar á ævinni,” segir Hólmfríður Guðmunds- dóttir tannlæknir. NORDICPHOTOS/GETTY Opið: INNRÉTTINGAR DANSKAR Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM, GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI. STERKAR OG GLÆSILEGAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.