Fréttablaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA
Þegar börnin fá að vera með í ráðum við að ákveða hvað á að vera í matinn og jafnvel elda hann sjálf eru meiri líkur á að þau séu til
í að borða hann. Hér eru nokkrar hollar og barn-
vænar uppskriftir sem þau geta eldað sjálf eða með
aðstoð fullorðinna.
CHILI CON CARNE
Þetta er ekta „haustmatur“ sem er þægilegt að eiga
tilbúinn í kæli og hita upp. Það er gott að bera fram
maískornflögur með kjötinu til að skófla því upp í
sig í stað þess að nota skeið. Einnig er gott að hafa
sýrðan rjóma og guacamole með. Uppskriftin dugar
fyrir fjóra til sex.
500 g nautahakk
1 stór laukur
4 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 tsk. ólífuolía
1/4 tsk. chiliduft
2 tsk. tómatþykkni
1 dós heilir afhýddir tómatar
1 dós nýrnabaunir (hellið vökvanum af)
2 tsk. þurrkað óreganó
1 tsk. kúmen
1 bolli nautasoðkraftur
Steikið kjötið á pönnu í ólífuolíunni. Bætið lauk, chili og hvít-
lauk við og steikið þar til allt er vel brúnað.
Hrærið tómötunum og tómatþykkninu við soðkraftinn.
Látið hægsjóða á pönnunni í tuttugu mínútur.
Bætið við baunum, óreganói, kúmeni og soðkraftinum.
Saltið og piprið að smekk.
BANANAÞEYTINGUR
Þessi er tilvalinn
til að byrja daginn
með, hollur og góður.
Morgunverður í glasi
sem auðvelt er að taka
með sér þegar tíminn
er knappur. Uppskrift-
in er fyrir einn til tvo.
2 bollar léttmjólk
2 bananar
1/2 bolli hrein jógúrt
1/2 tsk. kanill
6 ísmolar
1 tsk. hunang
Setjið allt í blandara,
passið að setja hunangið
síðast í, og blandið þar til
allt er orðið mjúkt. Berið
fram í háu glasi og stráið
smá kanil yfir.
HOLLAR SÚKKULAÐIKÚLUR
Súkkulaðikúlurnar eru tilvaldar sem eftirréttur í
hollari kantinum og sniðugt að búa þær til þegar
ætlunin er að gera sér glaðan dag.
2 bollar valhnetur
2 1/2 bolli döðlur, steinlausar
3/4 bolli kakó
1 bolli möndlur
1/4 bolli hunang
Myljið valhneturnar í matvinnsluvél. Þegar þær eru orðnar
fínmalaðar bætið þá döðlum, kakói, möndlum og hunangi
við í vélina. Blandið þar til allt er orðið að klístruðu, vel
möluðu mauki.
Búið til litlar kúlur úr maukinu og kælið í ísskáp. Kúlurnar
geta geymst í frysti í allt að tvær vikur.
ALLIR ELDA SAMAN
HOLLUSTA Nú þegar Meistaramánuður er að klárast er um að gera að taka
vikuna með trompi og fara að huga að heilsunni og bættu líferni. Þá er snið-
ugt að fá börnin með sér í átakið og bæta mataræðið hjá allri fjölskyldunni.
GIRNILEGAR Þótt mataræðið sé tekið í gegn er nauðsynlegt
að fá sér stundum eitthvað gott. Þessar súkkulaðikúlur eru bæði
góðar og hollar.
FLJÓTLEGUR Hollur og góður
þeytingur á alltaf vel við.
GOTT Á HAUSTIN Chili con carne er saðsamur réttur sem gott
er að gæða sér á á köldum vetrarkvöldum.
GAMAN SAMAN
Flest börn hafa
gaman af því að fá
að reyna sig í eld-
húsinu.
MYNDIR/GETTY
Green Coffee Bean
Raspberry Keatones
Ursolic Acid www.leanbody.is
brennslefni í einni vöru:
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is