Fréttablaðið - 28.10.2014, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGVetrardekk ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 20146
MAX1 Bílavaktin er hraðþjón-usta fyrir alla bíla. „Við skipt-um um dekk, smurolíu, olíu-
síur, rafgeyma, bremsur, dempara, rúðu-
þurrkur og perur. Við leggjum áherslu á að
veita bíleigendum fyrsta flokks hraðþjón-
ustu,“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri MAX1. „Okkur finnst líka
mikilvægt að hafa góð áhrif í samfélaginu
og með samstarfinu við Bleiku slaufuna
erum við að sýna vilja í verki. Við erum af-
skaplega stolt af þessu samstarfi enda mál-
efni sem snertir alla.“
20% afsláttur af Nokian-gæðadekkjum
MAX1 selur finnsku gæðadekkin frá Noki-
an sem er heimsþekkt vörumerki fyrir
áreiðanleika og framúrskarandi dekk.
„Nokian er eini framleiðandinn sem sér-
hæfir sig eingöngu í dekkjum fyrir norð-
lægar slóðir. Þetta eru einfaldlega örugg-
ustu og bestu dekkin fyrir akstursaðstæð-
ur eins og eru hér á Íslandi samkvæmt
gæðakönnunum frá Norðurlöndunum
eins og kemur fram í nýjasta FÍB-blaðinu,“
segir Sigurjón. Viðskiptavinir MAX1 sem
kaupa dekk í október og nóvember leggja
ekki einungis góðu málefni lið heldur fá
einnig 20% afslátt af Nokian-dekkjum.
Sérfræðiráðgjöf
Starfsmenn MAX1 eru sérfræðing-
ar í dekkjum og hafa unnið að því í sam-
vinnu við Sjóvá að efla fræðslu um öryggi
í umferðinni. Dekk eru einn af mikilvæg-
ustu öryggisþáttum bílsins. Þau eru eina
snerting bílsins við veginn og öryggi bíls-
ins veltur því á gæðum þeirra.
Dekk eru af mjög mismunandi gæðum.
Rannsóknir sýna að munur á hemlunar-
vegalengd tveggja dekkja á 100 km hraða
getur verið allt að 27 metrar sem jafngild-
ir lengd tveggja strætisvagna. „Við höfum
alla tíð lagt megin áherslu á öryggi. Við
eigum dekk í öllum verðflokkum en við
ráðleggjum viðskiptavinum að velja gæða-
dekk.“ segir Sigurjón Árni.
Ný reglugerð um mynstursdýpt
Ný reglugerð um mynstursdýpt mun taka
gildi 1. nóvember. MAX1 hvetur bíleig-
endur til að kynna sér breytingarnar til
að tryggja akstursöryggi og jafnframt að
bíll sé löglegur í umferðinni. Hægt er að
finna upplýsingar um nýju reglugerðina á
MAX1.is
Senda ódýrt um allt land
MAX1 sendir dekk um allt land með flutn-
ingafyrirtækinu Flytjanda. „Við viljum
þjónusta landsbyggðina vel og því höfum
við haldið sendingarkostnaðinum í al-
gjöru lágmarki, eða einungis 500 kr. fyrir
hvert dekk.“
MAX1 þjónustar allt höfuðborgarsvæðið
„Við erum á fjórum stöðum á höfuðborgar-
svæðinu og erum þannig í nálægð við öll
sveitarfélög á Stór-Reykjavíkursvæðinu,“
segir Sigurjón. „Elsta verkstæðið okkar og
þekktasta er upp á Bíldshöfða 5a, við hlið-
ina á Hlöllabátum. Árið 2010 opnuðum við
í Hafnarfirði, í gamla Glerborgarhúsinu
í Dalshrauni 5. Við erum líka í Breiðholt-
inu, í Jafnaseli 6 við hlið Krónunnar. Síðan
erum við með smurstöð í Knarrarvogi 2.“
MAX1 er hraðþjónusta en rekur einnig
almennt bílaverkstæði undir heitinu Véla-
land. „Þar tökum við að okkur almenn-
ar og flóknari bílaviðgerðir. Vélaland er á
þremur stöðum; Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6
og Dalshrauni 5.“
Nokian-gæðadekk á 20% afslætti – hluti
ágóða rennur til Bleiku slaufunnar
MAX1 Bílavaktin og Nokian Tyres leggja Bleiku slaufunni lið í október og nóvember. Hluti ágóða af sölu Nokian-dekkja hjá MAX1
mun renna til átaksins. MAX1 mun jafnframt bjóða viðskiptavinum 20 prósenta afslátt af Nokian-dekkjum.
Starfsmenn MAX1
Bílavaktarinnar og
Krabbameinsfélags
Íslands við undirritun
samnings um sam-
starfið. Hluti ágóða af
sölu Nokian-dekkja
mun renna til Bleiku
slaufunnar. MAX1 mun
einnig bjóða viðskipta-
vinum 20% afslátt af
Nokian-dekkjum.
Þýski framleiðandinn sýndi nýja fararskjótann í síð-ustu viku þegar Audi RS7
kláraði hring á Grand Prix-braut-
inni í Hockenheim með stæl. Það
tók bílinn, án ökumanns, að-
eins rétt rúmar tvær mínútur að
klára hringinn. Mesti hraði sem
bíllinn náði var rétt tæplega 240
kílómetrar á klukkustund sem er
nýtt heimsmet þegar kemur að
sjálfstýrðum bílum. „Þessi frá-
bæra frammistaða sem Audi RS7
náði sannar hæfileika þróun-
arteymisins okkar sem sér um
sjálfstýringarbúnað í bifreiðar,“
sagði doktor Ulrich Hackenberg,
stjórnarmaður hjá tækniþróun-
ardeild Audi, í viðtali við Daily
Mail.
Sérstakt GPS
„Afrakstur þessarar framleiðslu,
sérstaklega þegar kemur að ná-
kvæmni og afköstum, er mjög
mikilvægur fyrir frekari þróun hjá
okkur,“ bætir Ulrich við.
Farartækið sjálfstýrða notast
við sérstaklega leiðrétt GPS-merki
til að fara um brautina án öku-
manns. Þessi GPS gögn eru send í
bílinn í gegnum Wi-Fi í samræmi
við nútímastaðla og er ekki hægt
að senda þau lengur með útvarps-
bylgjum.
Tölvuforrit ber saman myndir
af yfirborði brautarinnar við upp-
lýsingar sem geymdar eru í búnaði
bílsins en þrívíddarmyndavélar í
bílnum mynda brautina. Í meg-
inatriðum er þetta það sem gerir
það mögulegt fyrir brautryðjendur
tækninnar að láta bílinn stilla sig
af á brautinni „upp á sentimera“
eins og kemur fram í skýrslu um
málið.
Á markað innan fárra ára
Hjá Audi er búnaður fyrir sjálfstýr-
ingarakstur talinn vera einn mik-
ilvægasti þáttur fyrirtækisins en
það náði fyrst árangri á því sviði
fyrir tíu árum. Síðustu prófanir
gefa verkfræðingum Audi nýjar
upplýsingar til þróunar á sjálf-
stýribúnaði til að forðast árekstra
í ákveðnum aðstæðum.
„Þegar yfirvöld gefa leyfi fyrir
nýjum sjálfstýribúnaði í bílum
gætu fyrstu kerfin fyrir sjálfstýr-
ingarakstur verið komin á mark-
að innan nokkurra ára,“ sagði
Hacken berg á kynningu Audi á
sjálfstýringartækni fyrirtækisins.
Færri árekstrar í framtíðinni
Til dæmis er búnaður frá fyrir-
tækinu sem aðstoðar ökumenn
við aksturinn nú þegar að bæta
akstur fólks. Þessi búnaður er
kominn einhverjar týpur af Audi
A6 og Audi A7 Sportback-módel-
um. Búnaðurinn aðstoðar öku-
mann meðal annars þegar skipt
er á milli akreina og hraðastýring-
in er með sérstakri virkni. „Ég veit
að akstur sem er laus við árekstra
verður alltaf draumsýn. En að
minnsta kosti getum við fækkað
árekstrum í framtíðinni,“ sagði
dr. Horst Glas er í viðtali við BBC
News. „Sjálfstýring gæti komið að
góðum notum til dæmis í umferð-
aröngþveiti. Alltaf þegar ökumað-
urinn er annars hugar og eftirtekt-
arlaus gæti bíllinn tekið sjálfur við
stjórninni.“
Verður stór markaður
Önnur fyrirtæki og stofnanir líkt
og rannsóknarhópar Volks wagen
og Electronics og Stanford-há-
skóli styðja við og veita aðstoð
við frekari þróun Audi á sjálfstýr-
ingarbúnaði. Tækni fyrir bifreið-
ar sem aka sjálfar verður vænt-
anlega orðin að 87 milljarða doll-
ara markaði árið 2030, samkvæmt
LuxResearch í Boston.
Bæði Mercedes og Audi fengu
samþykki í september fyrir að
prófa farartæki með sjálfstýribún-
aði á vegum Kaliforníu til þess að
gera þýsku bílana vana því að aka
í aðstæðum sem tíðkast í Banda-
ríkjunum eins og á átta akreina
vegum.
Volvo, Tesla, BMW, Google og
fleiri fyrirtæki eru einnig að prófa
sig áfram með sjálfstýribúnað í
ökutæki. Sumir hafa jafnvel þá trú
að algjörlega sjálfstýrðar bifreiðar
verði komnar í sölu árið 2017.
Bíll sem þarfnast ekki ökumanns
Nýi Audi RS7 lítur út eins og hver annar sportbíll, til dæmis er að hægt að stýra honum í gegnum keppnisbraut á 240 kílómetra
hraða. Þó er einn stór munur á, bílinn þarf ekki ökumann. Fyrstu bílarnir með sjálfstýringu gætu komið á markað innan fárra ára.
Audi RS7 ekur án ökumanns á Grand Prix brautinni á Hockenheim á methraða.