Fréttablaðið - 28.10.2014, Síða 46

Fréttablaðið - 28.10.2014, Síða 46
28. október 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30 Hljómsveitin Pollapönk með sjálf- an æskulýðsfulltrúa kirkjunnar í broddi fylkingar skemmtir á fjölskyldumessu í Vídalínskirkju í Garðabæ næstkomandi sunnu- dag. Það voru hæg heimatökin hjá nýja æskulýðsfulltrúanum, Heiðari Erni Kristjánssyni, að hóa þeim saman enda sjálfur liðs- maður sveitarinnar ásamt bræðr- unum Haraldi Frey og Arnari Gíslasonum og Guðna Finnssyni. Heiðar Örn hefur sunnudaga- skólann á sinni könnu, en hann fellur einu sinni í mánuði inn í fjölskyldumessu. „Á sunnudag- inn verður árleg Stjörnumessa þar sem iðkendum og þjálfurum hjá Stjörnunni er boðið að koma og gera einhverjar kúnstir og vera með húllumhæ. Pollapönkar- ar leggja svo sitt af mörkum með spili, söng og skemmtilegheitum,“ segir Heiðar Örn. Hann telur ekki loku fyrir það skotið að þeir félagar verði í FH- treyjunum sínum innan undir Pollapönksgöllunum, enda þrír þeirra gallharðir FH-ingar. „Séra Jóna Hrönn Bolladóttir messar, en ekki er ólíklegt að hún fái líka annað hlutverk í pönk- messunni. Kannski bið ég hana að vera rótara, eða ég set hana á takkana, enda hef ég góða reynslu af henni sem hljóðmanni.“ - vþj Pollapönkstuð í sunnudagaskóla Heiðar Örn Kristjánsson, æskulýðsfulltrúi Vídalíns- kirkju, bryddar upp á nýjungum á sunnudaginn. POLLAPÖNKARAR Vinir æskulýðsfulltrúans halda uppi stuðinu í pönkmessu í kirkjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Séra Jóna Hrönn Bolladóttir messar, en ekki er ólíklegt að hún fái líka annað hlutverk í pönkmessunni. Heiðar Örn Kristjánsson HARPA ÞORSTEINSDÓTTIR, FRAM HERJI, STJARNAN, FÓTBOLTAKONA HEIMSKLASSA HLJÓMFLUTNINGUR LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · www.ormsson. is · Verslanir og umboðsmenn um land al l t BÍLGEISLASPILARI · DEH-X3600UI 4X50 W MOSFET magnari. Útvarp með 24 stöðva minni. Spilar: CD-R/RW, MP3, WMA, WAV. AUX og USB tengi á framhlið. EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna. Spilar og hleður iPod í gegnum USB (snúra fylgir ekki). Multi-Colour skjár. Verð: 28.900 23.100* *Eftir niðurfellingu Ormsson á vörugjaldi Veldu vandað – það borgar sig alltaf. Úrval af gæðahátölurum frá Pioneer BÍLGEISLASPILARI · DEH-150MP 4X50 Mosfet magnari · Útvarp með 24 stöðva minni · Spilar: CD, MP3, WMA WAV · USB og Aux-in af framan Verð: 19.900 15.900* „Hafragrautur, oft með hnetum og múslí og stundum bláberjasultu. Af og til fæ ég mér ávaxtahristing.“ Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar. MORGUNMATURINN „Myndirnar eru sambland af graf- ískri hönnun og ljósmyndun,“ segir Elsa Nielsen, grafískur hönnuður og myndlistarmaður, um sýninguna Borgin mín sem hún opnaði nýverið á kaffihúsinu Mokka. Myndefnið er borgarbúum kunn- uglegt, en þó framandlegt því Elsa ljær ýmsum kennileitum borgarinn- ar býsna ævintýralegan ljóma. Hug- myndina að verkefninu fékk hún eftir að hafa með sama hætti sett nokkur kennileiti Seltjarnarness í nýjan búning og sýnt á Eiðisskeri á HönnunarMars. „Ég læt ímyndun- araflið ráða för, mái út mörk hins raunverulega og hins óraunveru- lega með stafrænni tækni þar sem margar ljósmyndir eru skeyttar saman í eina heild,“ útskýrir Elsa. Hún tekur sjálf myndirnar, fer á vettvang og finnur gjarnan óvenju- legt sjónarhorn, til dæmis mynd- aði hún Hörpu frá báti. Einnig er mismunandi hvort hún hugsar sér útfærsluna áður en hún myndar viðfangsefnið eða á eftir. Allt eftir því hvernig hugrenningatengsl- in eru. Í endanlegri útfærslu varð Hallgrímskirkju að Stuðlakirkju, Skólavörðustígur að Skólavörðugíg, Perlan að Diskóperlu og Viðey að Friðey. - vþj Kennileiti borgarinnar í ævintýraljóma Grafíski hönnuðurinn og myndlistarmaðurinn Elsa Nielsen opnar sýninguna Borgin mín á kaffi húsinu Mokka. STÓRHÖFÐI Eitt verka Elsu Nielsen á sýningunni Borgin mín. LISTAMAÐURINN Elsa er myndlistar- maður og grafískur hönnuður. „Við tókum þessa ákvörðun að fara á næsta stig með þetta,“ segir Sig- urjón Kjartansson. Hann er svokallaður „show- runner“ sjónvarpsþáttaraðarinn- ar Ófærð sem verður frumsýnd á næsta ári. Það þýðir að hann hefur yfirumsjón með framleiðslu þátta- raðarinnar, þar á meðal handrits- vinnunni. „Mitt hlutverk er að vera límið, frá handritsstiginu upp í tökustigið. Ég þarf að vera á staðnum og vera dálítið maðurinn með svörin þegar á hólminn er komið og hrista hóp- inn saman þannig að allir stefni í sömu átt,“ segir Sigurjón. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi háttur er hafður á hér á landi, sem er kannski ekki skrítið því kostnað- urinn við Ófærð er um milljarður króna og er þáttaröðin þar með sú dýrasta í Íslandssögunni. Fyrirmyndin er fengin að utan en í Bandaríkjunum hefur „show- runner“ haft yfirumsjón með þátta- röðum á borð við House of Cards og Breaking Bad. Danir hafa tekið þetta upp eftir Bandaríkjamönnum eins og þættirnir Forbrydelsen og Borgen bera vott um. Ófærð, eða Trapped, eru drungalegir sakamálaþættir sem gerast á Seyðisfirði og verða sýnd- ir á RÚV á næsta ári. Sigurjón er þessa dagana staddur í Lundar- reykjadal þar sem hann lýkur við handrit síðustu tveggja þáttanna í samstarfi með Bretanum Clive Bradley, Klaus Zimmer man, sem hefur framleitt þáttaraðir á borð við Borgia og Transporter, og franska handritsráðgjafanum Soniu Moyerson. „Ég hef alltaf haft mjög góða reynslu af hóp- vinnu, alveg síðan við vorum í Fóstbræðrum í gamla daga,“ segir Sigurjón, sem byrjaði að skrifa handritið fyrir tveimur árum með Ólafi Egilssyni og Jóhanni Ævari Grímssyni. Eftir að þeir sneru sér að öðrum verkefnum hóf hann samstarf með erlenda hópnum. Handritsvinnunni lýkur formlega um áramótin. „Við förum líklega í tökur án þess að nokkur viti hver morðing- inn er, nema við. Maður þurfti að vera dálítið með pókerfésið í fram- an þegar leikararnir voru að spyrja mig. Þeir mega ekkert vita. Þetta er á „need to know basis“ eins og sagt er.“ freyr@frettabladid.is Fyrsti „showrunner“ í íslensku sjónvarpi Sigurjón Kjartansson er svokallaður „showrunner“ sakamálaþáttanna Ófærð sem eru í vinnslu. Þetta er í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á hér á landi. MEÐ ALLT Á HREINU Sigurjón Kjart- ansson hefur yfirumsjón með framleiðslu sjónvarpsþátta- raðarinnar Ófærð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Leikstjórar þáttanna tíu verða Baltasar Kormákur, Baldvin Z, Óskar Þór Axelsson og Börkur Sig- þórsson og hefjast tökur á næst- unni. Staðfestir leikarar eru m.a. Ólafur Darri Ólafsson og Bjarne Henriksen úr Forbrydelsen. ➜ Fjórir leikstýra Ófærð Mitt hlutverk er að vera límið, frá handrits- stiginu upp í tökustigið. Sigurjón Kjartansson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.