Fréttablaðið - 30.10.2014, Síða 70
30. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
iPhone
Aukahlutir
„Ég hlakka gríðarlega til,“ segir
Nelly Ben Hayoun, súperstjarna
í upplifunarhönnun, sem er eitt
stærsta nafnið á ráðstefnunni You
Are in Control sem hefst á mánu-
daginn. „Mig gæti ekki dreymt um
betri stað til að heimsækja.“
Hayoun hefur verið kölluð
„Willy Wonka vísinda og hönn-
unar“ en á ráðstefnunni mun hún
sýna heimildarmynd sína um verk-
efnið International Space Orc-
hestra. Þá fékk Hayoun hóp af
leiðandi geimvísindamönnum til
að flytja ýmis tónverk, meðal ann-
ars eftir Damon Albarn úr Blur og
meistara Bobby Womack. „Mynd-
in fjallar um ferlið við að hanna
þessar öfgakenndu upplifanir fyrir
almenning,“ segir Hayoun.
Hún mun líka sýna stiklu úr
nýrri mynd sinni sem fjallar um
verkefnið Disaster Playground.
Verkefnið snýst í kringum geim-
vísindamennina sem fylgjast
með smástirnum og breyta stefnu
þeirra svo að þau skelli ekki á jörð-
inni. „Ég hef aldrei sýnt þetta efni
áður og það verður einungis fyrir
gesti ráðstefnunnar,“ segir Hay-
oun, sem notar frítíma sinn í að
þjálfa sig sem geimfara. - þij
Willy Wonka vísinda og hönnunar
Stjarna í upplifunarhönnun verður með erindi á ráðstefnu í næstu viku.
NELLY BEN HAYOUN Súperstjarnan
íklædd búningi International Space
Orchestra. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Ég fullyrði að það eru ekki margir Íslending-
ar sem hafa spilað þar sem við erum að fara,“
segir Ragnar Ólafsson úr Árstíðum.
Hljómsveitin er á leiðinni í sitt lengsta tón-
leikaferðalag til þessa, eða til Síberíu í Rúss-
landi. „Við verðum austan Úralfjallgarðsins,
4.000 kílómetra austan við Moskvu, og spilum
í risatónleikahöllum í gömlum gúlag-borgum
sem eru með landamæri að Kasakstan, Kína og
Mongólíu,“ segir Ragnar. „Þarna fellur hitastig-
ið niður í 50 gráðu frost á veturna. Þetta verður
kalt og við verðum að taka hlý föt með okkur.“
Hljómsveitin verður í tvær vikur í Rússlandi og
spilar þar með tveimur mismunandi sinfóníu-
hljómsveitum. Fernir tónleikar verða í Síberíu
og svo nokkrir til viðbótar í Moskvu og Sankti
Pétursborg, þar á meðal í íslenska sendiráðinu í
höfuðborginni. Þetta verður þriðja tónleikaferð
Árstíða um Rússland.
„Orðspor okkar hefur breiðst út í Rússlandi
og það var óskað eftir því að fá okkur þangað,“
segir Ragnar, sem flýgur ásamt félögum sínum
til Rússlands daginn eftir að þeir spila á Air-
waves-hátíðinni 6. nóvember. Sveitin spilar þó
fyrst á Kexi Hosteli í kvöld kl. 21. - fb
Árstíðir fara beint frá Airwaves til Síberíu
Hljómsveitin Árstíðir spilar í fyrsta sinn í Síberíu í næsta mánuði. Spilað verður í stórum tónleikahöllum.
ÁRSTÍÐIR Hljómsveitin er á leiðinni í langt ferðalag til
Síberíu þar sem frostið getur farið niður í 50 gráður.
MYND/MATT EISMANN
„Dýrð í dauðaþögn með Ásgeiri
Trausta. Það er alltaf á grammófón-
inum niðri á vinnustofu.“
Elsa Nielsen, grafískur hönnuður.
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Á sama hátt og þegar heimurinn
fór að gera kynningar í tölvum, þá
varð PowerPoint til. Þegar allir
vildu gera sínar eigin vefsíður
varð WordPress til. Nú vilja allir
gera sín eigin öpp og þá komum
við til sögunnar,“ segir Ármann
Kojic.
Hann er eigandi Apon app, fyrir-
tækis sem hefur sett á markað nýtt
smáforrit sem önnur fyrirtæki og
einstaklingar nota til að þróa sín
eigin öpp.
„Í dag þykir eðlilegt að fá
aðgang að Dropbox eða álíka hjá
fyrirtæki þar sem það deilir upp-
lýsingum með þér. Af hverju ætti
ekki að vera eðlilegt að veita
aðgang að appi?“ spyr Ármann.
„Því ætti ekki að vera eðlilegt
að panta fund eða tíma í gegnum
appið þannig að það fari beint inn
í dagatalið hjá fyrirtækinu? Við
viljum taka tæknihausverkinn frá
fyrirtækjunum.“
Apon app var stofnað fyrir
tveimur árum þegar hann og fleira
fólk úr tækni- og auglýsingageir-
anum var orðið þreytt á að þurfa
að fara með hugmyndirnar í gegn-
um of mörg ferli. Þau hafa unnið
mjög leynilega að verkefninu
undanfarið en hugmyndin að því
að hanna forrit til að gera app
var fljót að fæðast. „Meðalmað-
ur athugar símann sinn að með-
altali hundrað sinnum á dag. Við
vorum bara með rétta hugmynd, á
réttum stað, á réttum tíma,“ segir
Ármann.
Í gegnum félaga sinn hér heima
gátu þeir sótt um í nýsköpunar-
hraðal Stanford-háskóla í Banda-
ríkjunum þar sem aðeins tíu pró-
sent umsækjenda komast að, en
þeir komust í gegn og gátu unnið
að hugmyndinni þar. „Hann var í
skólanum og mælti með okkur og
þannig komumst við inn. Þar feng-
um við aðgang að algjörum kanón-
um í þessum bransa, ráðgjöfum
sem vinna hjá Google og fleirum.
Það voru algjör forréttindi að fá
hjálp frá þeim við að finna réttan
fókus á vöruna og komast í þetta
net af fólki sem tengist nýsköpun-
arbransanum. Það sparaði okkur
mikinn tíma í þróunarvinnu,“
segir hann.
Fyrirtækið hefur fengið mjög
góð viðbrögð úti og hafa KPMG
og fyrirtæki í eigu viðskiptajöfurs-
ins Warrens Buffett nýtt sér þjón-
ustu þeirra. Hér heima hefur það
hlotið styrki frá Nýsköpunarsjóði
og Tækniþróunarsjóði, ásamt því
að hafa fengið stuðning frá tölvu-
leikjafyrirtækinu Plain Vanilla,
Bala hjá Startup Iceland og fleir-
um. „Við finnum fyrir raunveru-
legri þörf fyrir að koma þessu
áfram. Það er fullt af fólki þarna
úti sem vill koma sínum frábæru
hugmyndum á framfæri og gera
sitt eigið snjallsímaforrit.“
Aðspurður hvort það hljóti ekki
að verða gerð kvikmynd um hann
rétt eins og Steve Jobs, stofnanda
Apple, sem byrjaði einmitt í Stan-
ford-háskóla, segist Ármann ekki
vera viss um það. „Kannski ef það
verða nógu góðir leikarar sem
leika okkur.“ adda@frettabladid.is
Hjálpa fyrirtækjum
að búa til eigin öpp
Íslenska fyrirtækið Apon app sérhæfi r sig í að aðstoða fyrirtæki við að búa til
sín eigin öpp. Eigandinn, Ármann Kojic, telur mikla þörf fyrir slíkt fyrirtæki.
BARA RÉTT AÐ BYRJA Ármann Kojic við Stanford-skóla þar sem fyrirtæki hans
komst inn í mjög lokaða nýsköpunardeild. MYND/EINKASAFN
Þetta verður kalt og við
verðum að taka hlý föt með okkur.
Ragnar Ólafsson.
Mig gæti ekki
dreymt um betri stað til
að heimsækja.
Nelly Ben Hayoun.
Meðalmaður at-
hugar símann sinn að
meðaltali hundrað
sinnum á dag. Við vorum
bara með rétta hug-
mynd, á réttum stað á
réttum tíma.
Ármann Kojic.