Akureyri - 19.07.2012, Side 1
19. JÚLÍ 2012
28. tölublað 2. árgangur V I K U B L A Ð
Microsoft Dynamics NAV
viðskiptalausnir
Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti, 600 Akureyri
sími: 545 3200 » sala@maritech.is » www.maritech.is
Gold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
- tryggir þér samkeppnisforskot
Fjármálastjórinn:
„Notendavænt viðmót og þróuð framsetning gagna eykur
yrsýn yr reksturinn og auðveldar ákvörðunartöku.
Snjallar lausnir, sem einfalda þér þitt hlutverk.“
Opnunartími: kl. 10:00 - 22:00
Café Björk | Lystigarðinum Akureyri | 460 5600
cafebjork.is | facebook.com/CafeBjork
Velkomin
í Lystigarðinn
Súpa,
nýbakað
brauð og salat
í hádeginu
Snýst bara um störf Snorra
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
á Akureyri segir um málflutning Snorra
Óskarssonar kennara við Brekkuskóla
sem sagt var upp í síðustu viku vegna fyrri
umæla hans um samkynhneigð, að það sé
af og frá að málið tengist trúarskoðun-
um Snorra. Snorri segir að hann gruni
að uppsögn sín tengist þeirri fyrirætlan
að sjónvarpsstöðin Ómega verðir „snúin
niður“ vegna þess að boðskapur hennar
henti ekki samkynhneigðum og transfólki.
„Þetta er út í loftið. Uppsögnin snýst
ekki um neitt annað en störf Snorra við
Brekkuskóla,“ segir Eiríkur Björn.
Spurður hvort bærinn telji það rétt-
lætanlegan kostnað ef dómsmál verður
höfðað og dómur fellur Snorra í vil um
skaðabætur, segist bæjarstjóri engan til-
gang með þannig vangaveltum á þessu
stigi. Lögfræðilega er málið sagt flókið.
Akureyri vikublað greindi fyrst fjöl-
miðla sl. vetur frá viðamikilli óánægju
foreldra við Brekkuskóla vegna ummæla
Snorra á bloggsíðu hans sem þóttu niðr-
andi gagnvart samkynhneigðum. Logi
Már Einarsson sem situr í skólanefnd
stóð fyrir bókun vegna þess sem hann
kallaði „hatursskrif“ og skömmu síðar
var Snorri sendur í leyfi. Sjálfur segir
Snorri að upphaf málsins megi rekja til
þess að árið 2010 hafi Akureyrarbær farið
fram á það að hann hætti að nýta stjórn-
arskrárvarinn rétt sinn til tjáningarfrelsis.
„Takk fyrir samveruna!“ segir Snorri á
bloggsíðu sinni vegna starfslokanna hjá
Brekkuskóla. a
ÞAÐ ERU ÓLÍKAR hvatir sem liggja að baki heimsóknum norður í land. Sumir vilja leggja fellihýsi við innstungu á tjaldstæði en aðrir leita sér að
senum til að safna. Þessi sena sem Skjálfandafljótið og sólin ortu saman í vikunni gladdi þennan ameríska ljósmyndara mikið. Völundur