Akureyri


Akureyri - 19.07.2012, Síða 2

Akureyri - 19.07.2012, Síða 2
2 19. JÚLÍ 2012 Kraftbílar ehf. // Draupnisgötu 6 // 603 Akureyri // Sími 464 0000 // kraftbilar@kraftbilar.is // www.kraftbilar.is www.kraftbilar.is Þjónustuumboð BL á norðausturlandi Aðeins 2,9 prósenta atvinnuleysi „Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra er komið niður í 2,9% á Norðurlandi eystra,“ segir Soffía Gísladóttur forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra. Mikill viðsnúningur hefur orðið frá hruni þegar tölur um atvinnuleysi eru skoðaðar. Efnt hefur verið til sérstakra átaka til að skapa störf og virkja fólk á vinnumarkað og voru þannig í júní samtals 1.551 manns á landinu öllu í vinnumarkaðsúrræð- um, þar af 1.384 í gegnum átakið Vinnandi vegur. 139 voru í öðrum starfsþjálfunar-, reynsluráðningar- og átaksverkefnum, og 28 í frum- kvöðlastarfi innan fyrirtækja/ stofn- ana. Um er að ræða úrræði sem eru greidd af Atvinnuleysistrygginga- sjóði, en viðkomandi einstaklingar teljast ekki með í atvinnuleysistöl- um. Í grunnúrræðum og ýmsum nám- skeiðum voru 605 manns í júní , þar af 175 í ýmsum grunnúrræðum, í námsúrræðum og ýmsum náms- skeiðum voru 290 og í starfstengd- um úrræðum (atvinnutengdri endurhæfingu, sjálfboðaliðastarfi og þróun eigin viðskiptahugmynd- ar) voru 140. HORFUR Á VINNUMARKAÐI Í JÚLÍ Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi í júlí verði svipað og í júní og verði á bilinu 4,5%-4,9% á landsvísu. Staðan er því umfram landsmeðaltal á Norðurlandi eystra. Í júnímánuði síðastliðnum voru skráðir 182.852 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngildir því að 8.704 manns hafi að meðaltali verið atvinnulausir í mánuðinum. Mann- afli á vinnumarkaði skv. áætlun Vinnumálastofnunar var 181.527 í júní 2012. Mannaflaspáin byggist á upplýsingum um mannfjölda 2011 og upplýsingum úr vinnumarkaðs- könnun Hagstofunnar 2011 með tilliti til áætlaðrar atvinnuþátttöku á árinu 2012 og árstíðarsveiflu í at- vinnuþátttöku. Skráð atvinnuleysi er mælt á þann veg að fjöldi atvinnu- leysisdaga er umreiknaður í með- alfjölda einstaklinga, þar sem allir dagar í hverjum mánuði eru taldir nema laugardagar og sunnudagar og útkomunni deilt í áætlaðan mann- afla á vinnumarkaði. a Búðargluggar í miðbæ Akureyrar illa merktir Neytendasamtökin könnuðu verð- merkingar í gluggum 28 verslana í miðbæ Akureyrar 10. júlí sl. Í ljós kom að einungis 25% verslana í miðbænum eru með mjög góðar eða þokkalegar verðmerkingar í glugg- um. Alltof margar verslanir eru með engar eða ófullnægjandi verðmerk- ingar eða 75%. Mjög góðar merk- ingar voru í gluggum verslananna GS, Didda Nóa, Janus og Skóhúsinu. Í sumum verslunum voru merkingar þokkalegar en í allt of mörgum til- fellum voru engar verðmerkingar sýnilegar. Samkvæmt reglum um verð- merkingar eiga söluvörur að vera verðmerktar hvar sem þær eru til sýnis svo sem í búðargluggum, sýn- ingarkössum, á vefsíðum eða annars staðar. Markmiðið með slíkum reglum er m.a. að efla verðvitund neytenda og efla þannig samkeppni. Samtökin hvetja verslunar- eigendur til að fara að lögum og verðmerkja allar söluvörur þar sem þær eru til sýnis. „Góðar verðmerk- ingar í gluggum geta auk þess virkað söluhvetjandi og því skýtur skökku við að seljendur skuli almennt ekki sinna þessu betur,“ segir Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytendasamtök- unum. a Stórbætt aðstaða Gámaþjónusta Norðurlands og Sagaplast opnuðu í síðustu viku nýja og glæsilega móttöku- og flokkunarstöð Hlíðarvelli við Hlíðarfjallsveg á Akureyri. Meginmarkmiðin eru að hámarka endurnotkun, endur- nýtingu og endurvinnslu, en lágmarka sóun og urðun úrgangs. Mjög góður árangur hefur þegar náðst en nýja aðstaðan að Hlíðarvöllum gefur möguleika á ennþá betri árangri í flokkun og endurvinnslu. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að íbúar á Akureyri hafi tekið nýju sorphirðukerfi mjög vel og komi mikið af endurvinnanlegu efni í grenndargáma. „Íbúar í öðrum sveitarfélögum í Eyjafirði hafa einnig tekið mjög vel við sér varðandi breytt sorphirðukerfi og aukna flokkun. Söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi gengur alls staðar vel. Á svæðinu öllu hefur mikill metnaður og áhugi sveitarstjórnarmanna og íbúa farið saman til að gera sem best í málaflokknum. Með samstilltu átaki og samvinnu hefur mjög góður árangur náðst.“ Þjónustan skipti meiri máli en staðsetning Björn Gunnarsson læknisfræðilegur forsvarsmaður sjúkraflugs segir að flutningur stjórnar sjúkraflugs suður til Reykjavíkur frá Akureyri myndi fyrst og fremst þýða að störf flyttust til. Fyrir skemmstu fór Björn í sjö sjúkraflug sama daginn þar sem flog- ið var þvers og kruss yfir allt landið. Að það hafi gengið áfallalaust gefi vísbendingu um að upphafsstað- setning flugsins skipti minni máli en þjónustan sjálf. Björn segir það nokkuð sérstætt að Íslendingar séu með mun fleiri sjúkrabíla en ná- grannalöndin miðað við höfðatölu en þjónustan um borð í bílunum sé minna rædd. „Mín persónulega skoðun er að þjónustan skipti meira máli en staðsetning,“ segir Björn. Vegna fréttar blaðsins í síðustu viku tekur Björn undir með slökkvi- liðsstjóranum á Akureyri um að far- sælt samstarf hafi verið við Mýflug í sjúkrafluginu en áréttar að lækna- vakt sé sjúkrafluginu fyrir norðan og fari læknir að jafnaði í um 40% allra sjúkrafluga. Núrverandi þjón- ustusamningur við Mýflug rennur út um næstu áramót og vonast Sjúkra- húsið á Akureyri til að flugið verði áfram staðsett á Akureyri í góðri samvinnu við Mýflug og Slökkvilið Akureyrar. a ÞAÐ VAR NÓG að gera í vikunni við múrverk í nýrri byggingu við Síðuskóla. Völundur

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.