Akureyri - 19.07.2012, Side 6
6 19. JÚLÍ 2012
– LEIÐARI –
Akureyri og
heimspressan
Það líður að ársafmæli Akureyrar vikublaðs. 11. ágúst árið 2011 rann fyrsta tölublaðið inn um
dyralúgur Akureyringa og vakti forsíðufrétt blaðsins
strax landsathygli og var mikið vitnað til. Margir
voru þó skeptískir gagnvart þessum gesti í norðlenska
fjölmiðlaflóru og setti fyrirtæki í eigu KEA af stað
herferð sem virtist beint gegn útgáfu blaðsins. Var á
herferðinni að skilja að það væri engin dyggð ef hægt
væri að færa bæjarbúum frítt blað nema að fjöldi
manns hér í bæ hefði launatekjur af útgáfunni. En
þessar væringar eru fyrir bí. Lesendur hafa talað og
þeir vilja lesa Akureyri vikublað. Aðeins nokkrum
vikum eftir að fyrsta tölublaðið kom út mældist lestur
blaðsins meiri en hins staðbundna vikufréttablaðsins
í könnun sem Háskólinn á Akureyri framkvæmdi.
Auglýsingasala sem er forsenda þess að bæjarbúar
fái frítt blað inn um dyralúguna hefur gengið vel og
stöðugildum í kringum starfsemina hefur fjölgað. Þá
hefur fréttavefur blaðsins, akv.is fest sig vel í sessi og
hefur síðustu vikur ítrekað mælst í hópi 20 vinsælustu
vefsíðna landsins.
Gaman er að segja frá því að hið fámannaða Akur-
eyri vikublað náði heimsathygli fyrir skömmu þegar
margir af helstu fjölmiðlum heims s.s. Stern vitnuðu í
fréttir og umfjöllun blaðsins um komu Hollywoodleik-
ara til Akureyrar. Þökk Internetinu. Það eru hins vegar
ekki fréttir af Tom Cruise sem hafa haldið blaðinu á
floti. Traust og gott samband við lesendur, gagnvirkni,
símtöl, póstar og ýmsar ábendingar um fréttir frá
bæjarbúum eru helsta auðlegð blaðsins, auk þess sem
Akureyringar hafa verið iðnir við að senda blaðinu
greinar. Í fjölmiðlafræðum segir að hlutverk stað-
bundinna miðla sé ekki síst að vera bæði samfélags-
spegill og varðhundur í samfélaginu. Lítil hefð hefur
hins vegar skapast fyrir rannsóknablaðamennsku í
þessum bæ og þess vegna hefur fólk stundum sopið
hveljur þegar blaðið hefur stungið á kýlum. Það er
að sumu leyti skiljanlegt fyrir þá sem ekki eru vanir
slíku. Gagnrýni er líka markvisst þögguð niður af
hagsmunaaðilum. Auðræði ýtir út virku lýðræði og
fjölmiðlamenn eru um allan heim sakaðir um að vera
vilhallir valdhöfum og stórfyrirtækjum.
Það er mikill munur á faglegri og persónulegri
gagnrýni þegar fjölmiðlun er annars vegar. Starfsmenn
blaðsins eiga ekki persónulega sökótt við þá pólitík-
usa og embættismenn sem eru til umfjöllunar hverju
sinni þegar upp koma álitamál. Efnisgreining myndi
sýna að hið mannlega, hlýlega og forvitnilega hefur í
langflestum blöðum verið ríkjandi en svæðisbundin
sérstaða miðilsins er sú að ef lesendur telja einhverju
ábótavant verður því ekki án rannsókna sópað undir
teppið hjá blaðamönnum Akureyrar vikublaðs.
Björn Þorláksson
AKUREYRI VIKUBLAÐ 28. TÖLUBLAÐ, 2. ÁRGANGUR 2012
ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi @ fotspor.is.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as @ fotspor.is.
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar @ fotspor.is.
Ritstjóri: Björn Þorláksson. Myndir: Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. Netfang: bjorn @ akureyrivikublad.is, Sími: 862 0856.
Umbrot: Völundur Jónsson Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 13.500 eintök. Dreifing:
13.500 EINTÖK ÓKEYPIS – FRÁ BLÖNDUÓSI TIL ÞÓRSHAFNAR
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LOF fær Blaðamannafélag Íslands sem ályktaði m.a. svo vegna
rassskellsins sem íslenskir dómarar fengu hjá Mannréttindadómstólnum
í Strassbourg í síðustu viku: „íslenskir dómstólar hafa því miður ekki
haft skilning á mikilvægi tjáningar frelsins fyrir lýðræðislega umræðu
í samfélaginu. Það hefur ítrekað endurspeglast í úrskurðum þeirra
á undanförnum árum og þannig lagt stein í götu blaðamennsku
og fjölmiðlunar í landinu. Það er óskandi að nú verði breyting á,
því tjáningarfrelsið er hornsteinn lýðræðislegra samfélagshátta og
ekkert er jafn öflugt meðal til til að uppræta spillingu og ranglæti.”
LOF fá þeir sem hafa barist fyrir frelsi til að tjá sig þótt það
hafi kostað dóma og fésektir. Last fá dómarar sem dæmt hafa
blaðamenn til greiðslu skaðabóta fyrir það eitt að blaðamenn
vinni vinnuna sína...
LOF fær handverksfólk í Dyngjunni í Mývatnsveit en karl hafði
samband við blaðið sem hafi keypt vöru þar og fékk hana í poka
sem saumaður hafði verið úr auglýsingabæklingi. Þótti karlinum
framtakið umhverfisvænt og skemmtilegt, ekki síst þar sem
plastpokar þykja skaðvaldur um allan heim. Og handverksfólk í
Mývatnssveit nú einnig...
Nýja endurvinnslan fær LOF fyrir hjálpsemi og notalegt viðmót,
segir kona sem hafði samband við blaðið.“ Það er svo frábær
þjónusta. Þau eru svo tilbúin og taka manni opnum örmum.
Þetta er alveg til fyrirmyndar hjá þeim. Glaðlegt viðmót og
almennilegheit....“
LOF fá veðurguðir fyrir að gefa landsmönnum um allt land
sumar. Hefur oft heyrst meðal Norðlendinga að undanförnu að
þeim hafi orðið það ljóst síðasta sumar þegar kom ekkert sumar
fyrr en í ágúst, hve mikinn þátt gott veður á í lífsgæðum fólks.
Hamingjustigið í hámarki, kreppan á undanhaldi og líf og fjör
hvar sem litið er undir glitrandi sól...
LÍFRÍKIÐ EYÞÓR INGI JÓNSSON
Á HVERJU ÁRI sjást á milli 180 og 200 tegundir fugla á Íslandi. Af þeim eru bara 76 tegundir fastir varpfuglar. Örfáar tegundir eru fargestir, sem
eru á leið til eða frá norrænum varpstöðvum, en meirihluti fugla sem sést á landinu eru flækingar. Fjallafinkan er einn þessara flækinga. Þessi
karlfugl söng afar kröftuglega og fallega í Þineyskri sveit um daginn. (Takk fyrir upplýsingarnar Yann Kolbeinsson)
Akstursstefnu Spítalavegar verði breytt
Almennur fundur Innbæjarsamtakanna
á Akureyri - hagsmunasamtaka íbúa,
vekur athygli á miklum umferðarhraða
í hverfinu. Hraðinn veldur mikilli hættu
og hefur oft legið við stórslysi á börn-
um. Í þeim tilgangi að ná niður almenn-
um umferðarhraða leggur fundurinn
til að settar verði upp hraðahindranir
og þrengingar í hverfinu í samráði við
íbúa,“ segir í ályktun frá Innbæjarsam-
tökunum.
Þá gera Innbæjarsamtökin athuga-
semdir við breytingar á deili skipulagi
í Innbænum og er mælt gegn niðurrifi
húsa í Innbænum. „Öll gömlu húsin í
Innbænum hafa á einhverjum tíma-
punkti frekar verið talin hæf til niður-
rifs en uppbyggingar. Í deiliskipulags-
tillögunni er lagt til að Lækjargata 11
verði rifið, en fundurinn telur húsið vera
hluta af götumyndinni og leggur til að
það standi áfram, hvort sem það verður
endurbyggt að hluta eða öllu leyti.“
Innbæjarsamtökin telja að fyrir-
huguð fjölgun húsa í Lækjargötu muni
breyta götumyndinni verulega, en í
deiliskipulagi er gert ráð fyrir fjórum
nýjum byggingarlóðum. „Það er álit
fundarins að halda skuli í upprunalega
götumynd.“
TIL HÁBORINNAR SKAMMAR
Innbæjarsamtökin hvetja jafnframt
bæjaryfirvöld til að hefja þegar í stað
undirbúning að endurreisn leikvallar-
svæðisins við Hafnarstræti í samráði við
samtökin. „Meðal innlendra og erlendra
ferðamanna er vinsælt að ganga um Inn-
bæinn og aðrir bæjarbúar sækja hann
heim í auknu mæli. Elsta hús bæjarins,
Laxdalshús, vekur áhuga ferðamanna,
en þar beint á móti er umrætt svæði í
algerri niðurníðslu og er bæjaryfirvöld-
um til háborinnar skammar. Þrátt fyrir
það er stöðug aðsókn á leikvallarsvæðið,
bæði í þau fáu leiktæki sem þar eru og
í körfuna, sem einkum er vinsæl hjá
eldri krökkum.“
Þá telja Innbæjarsamtökin mjög
mikilvægt að akstursstefnunni í neðsta
hluta Spítalavegar verði snúið við, ekið
verði upp brekkuna. „Spítalavegur
hefur í gegnum tíðina verið mikilvæg
tengileið íbúa í Innbænum upp á Brekk-
una, rakleiðis upp að Spítalanum, að
Menntaskólanum og að Brekkuskóla.
Einstefna niður Spítalaveg hefur beint
umferðinni upp Lækjargötu, en þar er
umferðin allt of mikill. Þess vegna er
æskilegt að deila umferðinni á þessar
tvær götur.“
Vísa Innbæjarsamtökin í nýlega um-
ferðartalningu á vegum bæjarins þar
sem mældust 700 bílar yfir eina helgi. a
ÍBÚAR INNBÆJARINS vilja snúa akstursstefnu Spítalavegar. Völundur