Akureyri - 19.07.2012, Síða 14
14 19. JÚLÍ 2012
www.minnismerki.is
• Vönduð og falleg minnismerki
• Mikið úrval af graníti og íslensku efni
• 25 ára reynsla
• Sjáum um uppsetningar um allt Norðurland
Glerárgata 36 • Sími: 466 2800 • sala@minnismerki.is • Opið mán. - fim. kl. 13-18 og föst. kl. 13-17.
Ný
he
im
así
ða!
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Útsalan í fullum
gangi
Flott föt
fyrir flottar
konur
Stærðir 40-58
Fálkar voru fluttir út frá Gásum
Miðaldadagar um helgina
Miðaldadagar hefjast á Gásum um
10 km norðan Akureyrar á morgun
og standa yfir í þrjá daga. Skúli
Gautason mernningarfulltrúi Hörg-
árbyggðar segir að þarna hafi verið
mikill verslunarstaður og umskip-
unarhöfn fyrr á öldum, frá því um
1150 og fram á 15. öld, en þá fór
Akureyri að taka við. „Þarna hefur
verið mikið og fjölbreytilegt mannlíf
öll sumur, enda er talið að Gásir hafi
verið helsti verslunarstaður á Norð-
urlandi og ein meginhöfn Íslands á
þessum tíma,“ segir Skúli.
Samkvæmt upplýsingum frá Skúla
fór fyrir nokkrum árum fram um-
fangsmikill uppgröftur við Gásir en
þó var aðeins lítill hluti svæðisins
grafinn upp. Mikið fannst af mann-
vistarleifum af ýmsu tagi. Kom í
ljós að menn af ýmsu þjóðerni hafa
siglt til Gása. „Þarna hefur verið
hreinsaður brennisteinn og mik-
ill brennisteinsútflutningur. Þar
fannst líka gríðarlega mikið af alls
kyns keramikbrotum, dýrabeinum,
brýnum og öðrum munum,“ segir
Skúli.
Merki fundust einnig um að
fálkar hefðu verið fluttir út frá Gás-
um og má af forngripum ráða sem
fundist hafa að þarna hafi menn gert
vel við sig í mat og drykk. „Raunar
virðist sem á Gásum hafi einkum ver-
ið verslað með lúxusvarning.“
Farið aftur í tímann
Miðaldadagar hafa verið haldnir
síðan árið 2005. Það ár tók Lauf-
áshópurinn sig til og gerði tilraunir
með að vinna brennistein með fornu
verklagi, en þá var brennisteinninn
soðinn í lýsi til að ná úr honum
óhreinindunum. Á hverju ári æ síð-
an hefur hópur áhugafólks reynt að
endurskapa mannlífið eins og það
gæti hafa litið út í kringum árið 1300.
Áhugafólki um þessi mál er sífellt
að fjölga og fólk kemur allsstaðar
að af landinu til að taka þátt og
það er umtalsverður fjöldi erlendra
ferðamanna sem kemur til Íslands
gagngert til að heimsækja þennan
sögufræga stað.
Stuð þótt vanti EM og rafmagnsgítar
„Það er ekki víst að nútímamenn
og heimamenn átti sig á því hversu
merkilegur staður Gásir er í raun
og veru. Það var einmitt á Gásum
sem Þórður Kakali stökk á land
fyrir réttum 770 árum og hóf með
því lokakaflann í átökum Sturl-
ungaaldar. Fyrir utan sögulega
gildið er gaman að koma að Gásum,
þar er talsvert fuglalíf og nú í sum-
ar voru lagðir göngustígar niður
að fornleifasvæðinu og meðfram
því. Þessir stígar sem gera svæðið
mun aðgengilegra. Þeir liggja í hr-
ing frá bílastæðinu og að því aftur.
Þetta er mjög falleg gönguleið og
hæfilega löng heilsubótarganga
fyrir flesta. Fyrir nokkrum árum
var komið upp salernum á svæðinu
svo aðstæðurnar eru mjög boðlegar.
Miðaldadagar eru haldnir upp úr
miðjum júlí ár hvert. Þar er reynt
að höfða til allra, jafnt barna sem
fullorðinna. Enga hoppukastala er
þar að finna, en reynt er að endur-
skapa þá leiki sem börn hafa unað
sér við á miðöldum. Þar er blásið
til knattleiks með knatttrjám sem
er engu síður spennandi en EM og
það er ekki minna stuð í tónlistinni
þó rafmagnsgítarinn vanti,“ segir
Skúli.
Á miðaldadögum mun margt bera
fyrir augu. „Þarna er gert til kola,
brennisteinn hreinsaður, eldsmiðir
knýja afli sína, unglingar æfa axark-
ast og bogfimi og fléttuð verða reipi
úr hrosshári. Hrosshár þóttu sérlega
góð til sjós þar sem þau drekka ekki
í sig vatn og frjósa því ekki. Erlendir
kaupmenn versla með glerperlur og
annan framandi varning og unnið
verður að gerð bókfells svo hægt sé
að rita Íslendingasögurnar.“
MIÐALDABÁTUR
Í vikunni var sjósettur miðaldabátur
sem hefur verið í smíðum á Akureyri
undanfarna vetur. Það er myndlista-
maðurinn og miðaldaáhugamaðurinn
Haraldur Ingi sem smíðaði bátinn, en
hann er byggður á hugmyndum og
og rannsóknum á bátum frá þessum
tíma. Þessi bátur er smíðaður með
nútímaaðferðum, en allur búnaður
s.s. árafestingar og stýri er gert sam-
kvæmt því sem tíðkaðist á miðöldum.
Báturinn hefur því útlit og vonandi
sjólag þeirra tíma báta. Hægt verður
að komast í bátsferð á Miðaldadög-
um 20. - 22. júlí, en opið verður frá
kl. 11-18 alla dagana. a
EYSTEINN MUNKUR VELTIR fyrir sér
næsta erindi í „Lilju“, en allir vildu Lilju
kveðið hafa eins og alkunna er.
ENN ER VERSLAÐ á Gásum en skilyrði er að söluvarningurinn sé í anda miðalda.
Sumir segja jafnvel að allt sé falt fyrir rétt verð. Hörður Geirsson
EKKI ER ÓLÍKLEGT að tónlistin á miðöldum hafi verið ögn rammari en sírópið sem við hlýðum á í dag. Hörður Geirsson