Akureyri


Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 1

Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 1
17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014 VI KU BL AÐ Mjúku rúmfötin fyrir börnin Lín Design Glerártorgi & Laugavegi 176 www.lindesign.is 100% Pima bómull Dularfullt hljóð veldur andvöku Embætti heilbrigðisfulltrúa Norður- lands eystra rannsakar nú dularfullt lágtíðnihljóð sem valdið hefur íbúum í nokkrum hverfum á Akureyri svefn- truflunum og ónæði undanfarið. Grun- ur beinist að loftblásara í Vaðlaheiðar- göngum gegnt bænum. Fleira er nefnt til sögunnar sem hugsanlegur orsakavaldur, s.s. skipaniður, starfsemi í Slippnum eða ljósavélar. „Þetta er fyrirbæri sem er ekki óþekkt í fræðunum en vissulega dálítið ráðgáta. Gæti verið lágtíðnihljóð sem berst um langan veg. Í erli dagsins tekur enginn eftir þeim en svo þegar kvöldar og kyrrist magnast hlutfallegur styrkur,“ segir Al- freð Schiöth heilbrigðisfulltrúi á Akur- eyri. Nokkrir aðilar hafa haft samband við embætti heilbrigðisfulltrúa á Akureyri. Akureyri vikublað hefur rætt við fólk sem segist ekki geta sofið út af hljóð- inu. Einn íbúa bæjarins kallar hljóðið draugahljóð. „Það er full ástæða til að taka svona rannsókn alvarlega,“ segir Alfreð Schiöth. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, hefur sjálfur heyrt lágtíðnihljóðið frá eigin heimili á Ak- ureyri. „Þetta hljóð er væntanlega ekki yfir hávaðamörkum en það gæti verið yfir þægindamörkum.“ „Ég myndi halda ef ég ætti að giska á eitthvað að þetta væri loftblásarinn. Það þarf að finna upptökin sem fyrst og bregðast við,“ segir Valgeir. -BÞ FERÐALAG UM DRAUMALAND Nýr Lambi, skáli Ferðafélags Akureyrar, var fluttur af félögum í FFA og snjóruðningsmönnum Hlíðarfjalls í síðustu viku inn í botn Glerárdals. Glerárdalur er án vafa ein mesta náttúru- og útivistarperla Norðlendinga. Völundur Matthías Rögnvaldsson 1. sæti Kosningaskrifstofa: virka daga kl. 14-18 og um helgar kl. 12-16 Kosningastjóri s: 842 0208 Matthías hefur reynslu af miklum rekstri

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.