Akureyri


Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 6

Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 6
6 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014 AÐSEND GREIN JÓN INGI CÆSARSSON Útivistarsvæðin eru auðlind Í áranna rás hefur uppbygging úti- vistarsvæðanna á Akureyri gengið þokkalega. Þó má segja að betur má ef duga skal. Íbúar á Akureyri eru vel settir hvað varðar fjölda svæða og fjölbreytileika. Þó hefur gengið of hægt að mínu mati að gera svæðin eins vel úr garði og nauðsynlegt er til að þau þjóni íbúum bæjarins og ekki síður þeim mikla fjölda sem sækir bæinn heim, vetur sem sumar. Staða mála hvað varðar einstök svæði er mismunandi, sum svæð- in eru þokkalega stödd en önnur á frumstigi hvað varðar uppbyggingu og þjónustu. KROSSANESBORGIR Þar er staða mála með þeim hætti að svæðið var gert að fólkvangi árið 2004 og síðan hefur áhersla verið lögð á stígagerð og nú verður loks- ins hafist handa við merkingar á svæðinu, sett verða upp 11 kynn- ingarskilti víðsvegar þar sem kynnt er saga, fuglalíf og fleira nú í vor. En betur má ef duga skal, fjölga þarf þessum skiltum verulega og ljúka stígagerðinni, þá er svæðið orðið eitt það áhugaverðasta á landinu. KJARNASKÓGUR Í Kjarnaskóg koma tugir þúsunda á hverju ári. Það þarf að leggja meiri fjármuni í að byggja upp og viðhalda svæðinu, álagið er mjög mikið og víða sér á landi og umhverfi, sér- staklega nærri leiksvæðum og grilla- stöðunni. Fyrirhugað er að gera aðra slíka í sumar og gera upp þá gömlu. Að mínu mati þarf að segja meiri fjármuni i viðhald svæðisins og ekki síst að koma þar fyrir merkingum þar sem sögu og náttúru eru gerð skil, á það skortir sárlega. Einnig þarf að gera fleiri áhugaverða áfangastaði til að dreifa álagi. Raflínur verða að hverfa. ÓSHÓLMAR EYJAFJARÐARÁR Það eru mörg herrans ár síðan gert var deiliskipulag af óshólmasvæði Eyjafjarðaár, en illa hefur gengið að fá Eyjafjarðarsveit með í að ljúka því formlega ferli. Það verður að gerast, því á meðan skipulag er ekki fulln- ustað hjá öllum hagsmunaaðilum er ekki hægt að hefja stígagerð og laga aðgengi að svæðinu. Gömlu brýrnar þarf að lagfæra, þær eru sögulegar minjar sem ber að varðveita. Það er verkefni nýrra bæjaryfirvalda að koma þessu máli í höfn sem fyrst svo svæðið fái þá umhirðu og eftirlit sem sárlega skortir. Eftirlitsnefnd sem hefur það hlutverk að fylgjast með og ber ábyrgð á svæðinu gagnvart sveitastjórnunum hefur verið dáin allt þetta kjörtímabil. Því verður að breyta. Áhugi fráfarandi meirihluta á þessu svæði hefur enginn verið. NAUSTABORGIR Naustaborgirnar eru sennilega minnst þekktar af útivistarsvæðun- um á Akureyri. Þar hefa verið gerðir stígar og gróðurinn fer hratt vax- andi. Verið er að vinna að endurheimt Hundatjarnar sem þarna var og hafa verið gerðar tilraunir til að stífla skurði og fá fram tjörn eins og þarna var. Því miður hefur það ekki gengið sem best og líklega þarf að grípa til aukinna framkvæmda á svæðinu til að svo geti orðið. Í Naustaborgum er eitt af fjórum fuglahúsum í landi Akureyrar en nánast engar merk- ingar eru á svæðinu auk þess sem raf- línur liggja eftir því endilöngu sem verða að hverfa á næstu árum til að Naustaborgir verði sá gimsteinn sem efni svo sannarlega standa til. En til að svo megi verða þarf að sýna svæð- inu meiri áhuga og leggja áherslu á uppbyggingu og viðhald. GLERÁRDALUR Unnið er að því að gera Glerárdal að fólkvangi, og það mál er í ferli og fær vonandi þá bestu niðurstöðu sem hentar hagsmunum allra Akur- eyringa til framtíðar. AUÐLIND AKUREYRAR Þetta eru hin formlegu útivistar- svæði en auðvitað er Akureyri, allt bæjarandið, eitt áhugaverðasta útivistarsvæði á Íslandi. Útivistar- svæðin sjálf eru síðan eru auðlind til viðbótar við það. Það er hreinlega lífsnauðsynlegt að bæjaryfirvöld átti sig á mikilvægi þess að gera heild- stætt kynningarefni um öll útivist- arsvæðin. Það er einn af lykilþáttum í þeirri viðleitni að fá ferðamanninn til að dvelja lengur í bænum auk þess sem bæjarbúar mun áreiðan- lega mæta oftar og betur á svæðin þegar kynningarefni og umfjöllun liggur fyrir. Við erum rík af fallegum svæðum, við þurfum að sinna þeim betur og byggja þau betur upp, það er spurn- ing um áherslur og vilja. Gerum Akureyri skemmtilegri. AÐSEND GREIN EYMUNDUR L.EYMUNDSSON Að hugsa út fyrir kassann Forvarnir og fordómar Forvarnir og fordómar eru mér hug- leikin málefni. Þegar einstaklingar og sérfræðingar fara að skiptast á skoðunum um hvaða forvarnir virka best vil ég gjarnan blanda mér í um- ræðuna. Forvarnir byrja heima og foreldrar eiga að vera fyrirmynd og styðja börn sín en hvernig er staðið að þessum málum út í samfélaginu? Ég tel mig hafa ágæta reynslu af bæði fordómum og forvörnum þar sem ég er með “meistaragráðu” í fé- lagsfælni, kvíða og þunglyndi sem ég hef glímt við frá því ég var krakki. Ég veit hvað þessi veikindi geta haft mikil áhrif og stjórnað lífinu. Ég veit líka hvað hægt er að gera til að kom- ast úr þessum vítahring og öðlast betra líf. Ég var svo heppinn að taka þátt í geðfræðsluteymi Hugarafls í Reykjavík. Geðfræðsluteymið hef- ur gert samning við Reykjavíkur- borg og fer í alla grunn- og fram- haldsskóla borgarinnar. Meðlimir geðfræðsluteymisins eru allir með reynslu af geðsjúkdómum og kallaðir notendur eða fræðarar. Þeir segja frá veikindunum, hvernig þau lýsa sér og hvað hægt er að gera til að ná góðum bata. Einnig greina þau frá því hvaða lausnir sé að finna í nánasta umhverfi nemenda og hvað það sé ávallt mikils virði að láta sig hvort annað varða ef vanlíðan er á ferðinni. Ungmennum er kennt að leita sér hjálpar og að tala um hlutina fyrr en síðar. Oft er gripið inní vanda sem síðar meir hefði get- að orðið óbærilegur og því er hér ómetanleg forvörn á ferðinni og að sama skapi er hræðslan við vanlíðan tekin frá ungmennum sem á hlýða. Óhætt er að segja að þessi nálgun virkar mjög vel. Þegar krakkarnir hitta manneskju, augliti til auglitis og heyra hvað sé hægt að gera til að ná bata hefur það orðið mörgum þeirra hvatning til að stíga skrefið og leita sér hjálpar. Margir íþróttamenn hafa verið að koma fram, lýst reynslu sinni af geðröskunum og hvaða áhrif það hefur haft á líf þeirra. Slíkar frásagnir minnka fordóma gefa von og segja okkur að allir geta orðið veikir en að alltaf sé hægt að vinna í lausnum. Fordómar og vanþekking eru því miður enn mikil í samfélaginu, ekki síður hjá fagmönnum en notendum. Það vill enginn vera veikur og því held ég að það sé kominn tími til að samfélagið standi saman. SAMFÉLAGIÐ Akureyri er lítið samfélag og hefur mikla möguleika á að vera braut- ryðjandi og til fyrirmyndar í því að nota sérþekkingu þeirra sem orðið hafa fyrir áföllum í lífinu og náð góðum bata. Ég tel það skyldu bæjarins, óháð flokkspólitík og sam- félagsins alls, að opna á þessa um- ræðu og fylgja eftir með forvörnum og fræðslu í þessu litla samfélagi. Bæjarfélög og sveitarfélög hér í kring ættu að vera partur af þessu samstarfsverkefni. Afhverju leið- ast unglingar út í vímuefni? Ýmsar ástæður. Þess vegna eru forvarnir og fræðsla mikilvægt afl sem við eigum að nota ef við viljum gera okkur að betra samfélagi. Hér eru samtök eins og Grófin Geðverndarmiðstöð og Aflið sem ætti að vera hægt að virkja í vinnu að forvörnum. Einnig þyrftu vímuefna- og eineltisforvarnir að fylgja með. Hægt væri að koma á skipulögðu samstarfi. Með stuðningi frá bænum gætu notendur sinnt fræðslu í skól- um, stofnunum og öðrum stöðum í samfélaginu. Förum að hugsa út fyrir kassann og nýta dýrmæta þekkingu notend- anna sjálfra sem eru fagmanneskjur í sínum veikindum, fagmanneskjur sem geta gefið öðrum von og geta hjálpað mörgum að öðlast betra líf. Það eru þrír sem taka sitt eigið líf á mánuði hér á Íslandi og eru að glíma við geðraskanir. Ég veit að ég hefði getað verið einn af þeim. Komum á vitundarvakningu til að búa til betra samfélagi fyrir börn- in okkar og framtíðina. Hættum að tala og förum að framkvæma til að á Akureyri séu öll lífsins gæði fyrir alla. Eymundur L.Eymundsson ráð- gjafi úr Ráðgjafaskóla Íslands og notandi Grófarinnar Geðverndar- miðstöðvar. Það eru þrír sem taka sitt eigið líf á mánuði hér á Íslandi og eru að glíma við geðrask­ anir. Ég veit að ég hefði getað verið einn af þeim. EYMUNDUR L.EYMUNDSSON Áhugi fráfar- andi meirihluta á óshólmum Eyjafjarðarár hefur enginn verið. Jón Ingi Cæsarsson Mikið úrval af hjólum Schwinn Wheeler Mongoose GT Varahlutir og viðgerðar- þjónusta SkíðaþjónustanFjölnisgötu 4b – sími 462-1713

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.