Akureyri


Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 18

Akureyri - 08.05.2014, Blaðsíða 18
18 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014 AFKOMA STAPA LÍFEYRISSJÓÐS Á ÁRINU 2013 Ársfundur Ársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 21. maí kl. 14:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum. Efnahagsreikningur í árslok Fjárhæðir í milljónum króna 2013 2012 Verðbréf með breytilegum tekjum 50.209 42.245 Verðbréf með föstum tekjum 85.111 81.237 Veðlán 1.357 1.028 Bankainnstæður 6.957 7.101 Aðrar eignir 64 66 Kröfur 681 1.319 Skuldir -877 -1.340 Hrein eign til greiðslu lífeyris 143.501 131.656 Hrein eign tryggingadeildar 139.330 127.657 Hrein eign séreignardeildar 4.172 3.999 Breytingar á hreinni eign Fjárhæðir í milljónum króna 2013 2012 Iðgjöld 6.729 6.376 Lífeyrir -3.967 -3.776 Fjárfestingartekjur 9.340 12.152 Fjárfestingargjöld -81 -68 Rekstrarkostnaður -178 -160 Hækkun á hreinni eign 11.845 14.524 Hrein eign frá fyrra ári 131.657 117.132 Hrein eign til greiðslu lífeyris 143.501 131.656 Kennitölur Tryggingadeild 2013 2012 Nafnávöxtun 6,8% 10,1% Raunávöxtun 3,0% 5,3% Raunávöxtun 5 ára 1,0% -2,5% Raunávöxtun 10 ára 2,4% 2,9% Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,12% 0,12% Lífeyrir í % af iðgjöldum 56,3% 55,1% Fjöldi sjóðfélaga 18.705 18.505 Fjöldi launagreiðenda 2.668 2.609 Fjöldi lífeyrisþega 7.337 6.972 Stöðugildi 12,4 13,1 Séreignardeild 2013 2012 Safn 1 Nafnávöxtun 8,1% 8,8% Raunávöxtun 4,3% 4,1% Safn 2 Nafnávöxtun 7,9% 10,9% Raunávöxtun 4,1% 6,1% Safn 3 Nafnávöxtun 6,6% 7,1% Raunávöxtun 2,8% 2,5% Afkoma Nafnávöxtun tryggingadeildar var jákvæð um 6,8% og raunávöxtun var jákvæð um 3,03%. Séreignardeild býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir Safn I, Safn II og Safn III og var raunávöxtun leiðanna 4,3%, 4,1% og 2,8% á árinu. Tryggingafræðileg staða Tryggingafræðileg úttekt hefur verið gerð á stöðu tryggingadeildar sjóðsins og var hún neikvæð um 4,6% í árslok 2013. Lífeyrisgreiðslur Lífeyrisgreiðslur tryggingadeildar námu 3.671 millj.kr. og hækkuðu þær um 7,3% milli ára en fjöldi lífeyrisþega í árslok var 7.337. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild námu 232 millj.kr. en þar af var sérstök útborgun séreignar skv. lögum 113 millj.kr. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs: Björn Snæbjörnsson formaður, Ágúst Torfi Hauksson varaformaður, Ásgerður Pálsdóttir, Gunnþór Ingvason, Pálína Margeirsdóttir og Unnur Gréta Haraldsdóttir. Framkvæmdastjóri er Kári Arnór Kárason. STAPI lífeyrissjóður Strandgötu 3, 600 Akureyri Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað Sími 460 4500 www.stapi.is STAPI L Í F E Y R I S S J Ó Ð U R List án landamæra á Norðurlandi List án landamæra er síbreytileg og lifandi hátíð þar sem fatlaðir og ófatl- aðir mætast og vinna saman í list sinni. Hátíðin á Norðurlandi er vettvangur viðburða og stendur frá 3. – 22. maí. Vorfánar og alls konar mynd- ir munu dagana 9. – 23. maí prýða verslunina Eymundsson á Akureyri. Það eru verk eftir notendur í Skógar- lundi sem mynda sýninguna en hún er opin á opnunartíma verslunarinnar. Garðurinn blómstar í Skógarlundi fimmtudaginn 15. maí og föstudaginn 16. maí kl. 9-11 og 13 – 15:30. Þá er gestum og gangandi boðið að koma í heimsókn. Í garðinum verða sýnd verk notenda sem eru unnin undir handleiðslu myndlistarkonunnar Að- alheiðar S. Eysteinsdóttur og starfs- mannafélag Skógarlunds mun selja veitingar. Af öðrum dagskrárliðum Listar án landamæra á Norðurlandi má nefna Opið hús í Iðjunni á Siglufirði fimmtudaginn 8. maí og föstudaginn 9. maí kl. 9-17. Þar gegna tónlist og ljóðalestur mikilvægu hlutverki ásamt handverkssýningu notenda Iðjunnar. Á Húsavík verður opið hús, vormarkaður og kaffihúsastemning í Miðjunni laugardaginn 17. maí kl. 14 – 16. Í Samkomuhúsinu á Húsavík verða þrjár sýningar sunnudaginn 18. maí á Stuttmyndinni X kl. 13: 15 og 17. Þetta er hetjustuttmynd byggð á Þrymskviðu og hinum japönsku sentai ofurhetjum en myndin er unnin í samstarfi við Sam og Mar- inu Rees. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu. Að koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. „Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni og hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum. Það er von aðstandenda hátíðarinnar að sem flestir komi og njóti þess sem um er að vera,“ segir í tilkynningu. a AÐSEND GREIN SINDRI GEIR ÓSKARSSON Þess vegna kristinfræði! Á baksíðu síðasta tölublaðs Akur- eyri vikublaðs spyr Silja Björk hvers vegna kristinfræði sé skyldufag í grunnskólum, hvort ekki væri „nær að kenna börnum almenna siðfræði og samhug um hin fjölmörgu ólíku trúarbrögð og lífskoðanir, fremur en að þylja upp ævistörf Salómons konungs eins og páfagauka?“. Þeir eru margir sem setja spurn- ingarmerki við það að í grunnskól- um sé kennd námsgrein sem nefn- ist kristinfræði og vissulega eru það gildar vangaveltur í ljósi þess að varla sé hægt að kalla íslenskt samfélag kristið, þ.e. þetta er ekki samfélag sem einkennist af kristinni trúrækni. Við búum við fjölhyggju og trúfrelsi á Íslandi, í ört smækk- andi heimi verðum við fyrir sífellt meiri áhrifum frá hinum fjölbreyttu og ólíku menningar og trúarhefð- um heimsins. Menningararfur okkar byggir hinsvegar á, og er rækilega mótaður af kristinni trú. Samfélag okkar, eins og öll samfélög í væst- rænum heimi, hvílir á heimsmynd sem hefur þróast og mótast í samspili við kristinn arf fortíðar okkar. Því væri kannski hægt að tala um ís- lenskt samfélag sem post-kristið þar sem menning okkar er tengd kristni órjúfanlegum böndum þó að trúar- lega hliðin sé ekki hluti af daglegu lífi allrar þjóðarinnar. Ég á ekki margar minningar úr kristinfræði í grunnskóla þrátt fyrir að hafa haft góða kennara. Ég veit ekki hversu spennandi mér þótti fag- ið, en það sem ég man eftir á lítið skilt við trúboð. Ég man eftir að hafa lært um þá kristnu hátíðisdaga sem við höldum uppá og einhverjar dæmisögur las ég líka en mér þykir ólíklegt að ég hafi þurft að þylja upp ævistörf Salómons konungs (þrátt fyrir að vera að ljúka B.A gráðu í guðfræði veit ég ekki hvort ég gæti þulið þau upp). Ef það stendur til að ræða gagnsemi og tilvistarrétt kristinfræði í grunnskólum tel ég skynsamast að fletta upp í aðal- námskrá grunnskóla og sjá hverju sú kennsla á að skila. Meðal markmiða í samfélags- greina námi kemur fram að: Við lok 4. bekkjar eigi nemandi m.a. að geta „áttað sig á að trúar- og lífsviðhorf fólks birtast í mismun- andi viðhorfum, siðum og venjum,“ „velt fyrir sér nærtækum spurning- um sem tengjast trú, lífsviðhorfum og breytni“, „sagt deili á nokkrum frásögnum, helstu hátíðum og sið- um kristni og annarra trúarbragða, einkum í nærsamfélaginu“, „nefnt dæmi um trúarlegar vísanir í listum og bókmenntum“. Við lok 10. bekkjar eigi nem- andi m.a. að geta „útskýrt marg- breytileika trúarbragða og lífs- viðhorfa og greint áhrif þeirra á líf einstaklinga, hópa og samfélaga“, „fengist við og greint viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og sið- ferði og tengjast spurningum um merkingu og tilgang lífsins,“, „sýnt fram á læsi á frásagnir, hefðir, kenn- ingar, hátíðir, siði og tákn kristni og annarra helstu trúarbragða heims,“, „rætt og borið saman ólík trúar- og lífsviðhorf og gert sér grein fyrir hvað er sameiginlegt og hvað sér- stætt,“, „útskýrt trúarlegar vísanir og tjáningu í listum og bókmenntum“. Ekki er gerð krafa í aðalnámskrá að kenndur sé sérstaklega áfangi sem heitir kristinfræði en vissulega á skv. henni að kenna um kristna trú sem og fræða um ólík trúarbrögð og lífsskoð- anir. Kristinfræði virðist eiga að stuðla að því að gera börn, læs á samfélag sitt, menningu og listir. Skilja á hvaða hátt kristni hefur mótað samfélagið okkar, m.a. hvað varðar helgidaga og hátíðir. Mér sýnast þessi markmið sem liggja kristinfræðikennslu til grund- vallar vera vel ígrunduð og skynsamleg. Kristinfræði á ekki að vera kennd sem trúarinnræting heldur sem lykill að menningararfi okkar. Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart eftir að ég hóf nám í guðfræði er að sjá hvað samfélag okkar er gegnsýrt af trúarvís- unum og hvað tungumál okkar, orðtök og hugmyndir sækja mikið í Biblíuna. Áhrif kristinnar trúar, menningar og hugsunar á samfélag okkar eru gíf- urleg, hvort sem okkur líkar það betur eða verr og því þykir mér nauðsynlegt að kristinfræði sé kennd í grunnskól- um. Við lifum við ákveðna fjölhyggju, sem er mjög jákvætt, en í þessu ástandi eigum við á hættu að glata tengingu við uppruna menningar okkar. Á sama tíma og við eigum að kynnast framandi menningar- straumum og trúarbrögðum annarra þjóða, hinni norrænu heiðni sem mótaði hugarheim forfeðra okkar og goðsagna og mýtuarfi heimsins, þurf- um við að halda í kristinfræði. Eins og Carl Sagan sagði eftirminnilega þurfum við að þekkja fortíðina til að skilja samtíma okkar, þess vegna þarf að kenna kristinfræði, hvort sem hún gengur undir því nafni eða ekki. Höfundur er guðfræðinemi. Við lifum við ákveðna fjölhyggju, sem er mjög jákvætt, en í þessu ástandi eigum við á hættu að glata tengingu við uppruna menningar okkar SINDRI GEIR ÓSKARSSON LEIKSÝNING Á LAUGARDAG Leikhópurinn Talking Timber sýnir verkið “Answering Answering – Machine” í Rýminu laugardaginn 10. maí kl. 17:00. Hópurinn sam- anstendur af Josephine Kylén Collins (SÞ), Mikkel Rasmussen Hofplass (NO), Piet Gitz-Johan- sen (DK) og Hanna Reidmar (SÞ). Tónlistarmennirnir Jonny Collins Wartel og Georgia Wartel Collins sýna með þeim í þessu verki. Sýn- ingin er flutt á ensku. Bakgrunnur hópsins liggur í mismunandi listgreinum: inn- setningum, sjónrænu leikhúsi, ljósmyndun og dansi. Að loknu námi í The Norwegian Theatre Academy í Fredrikstad í Noregi ákváðu þau að setja saman krafta sína og vinna að sérhæfðu tungu- máli innan sviðslistanna. Talking Timber leitar stöðugt eftir nýjum leiðum í vinnu sinni bæði í inni- haldi og byggingu. Miða á sýninguna er hægt að nálgast hjá Leikfélagi Akureyrar, sími 4 600 200 og á leikfelag.is

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.