Akureyri


Akureyri - 08.05.2014, Síða 10

Akureyri - 08.05.2014, Síða 10
10 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014 Heilsugæslan í höndum Akureyrarbæjar Bæjarráð Akureyrar fjallaði um samninga Akureyrarbæjar við ríkis- valdið um rekstur Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri á fundi sínum á mánudag og var það gert í framhaldi af bókun félagsmálaráðs um sama efni. Í bókun bæjarráðs segir orðrétt: Félagsmálaráð telur að rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eigi heima í höndum Akureyrarbæj- ar eins og verið hefur undanfarin 17 ár. Félagsmálaráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til við- ræðna um nýjan samning við Vel- ferðarráðuneytið sbr. framlögð gögn vegna málsins. Sömuleiðis skorar félagsmálaráð á Alþingi að taka fjárveitingar til Heilsugæslustöðvar- innar til gagngerrar endurskoðunar hið fyrsta. Bæjarráð tekur undir bókun fé- lagsmálaráðs. Þar sagði: Félagsmála- ráð telur að rekstur Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri eigi heima í höndum Akureyrarbæjar eins og verið hefur undanfarin 17 ár. Félags- málaráð samþykkir að fela bæjar- stjóra að ganga til viðræðna um nýj- an samning við Velferðarráðuneytið sbr. framlögð gögn vegna málsins. Sömuleiðis skorar félagsmálaráð á Alþingi að taka fjárveitingar til Heilsugæslustöðvarinnar til gagn- gerrar endurskoðunar hið fyrsta. Bæjarráð tekur undir bókun fé- lagsmálaráðs. a Sjöhundruð syngjandi konur Helgina 9-11. maí næstkomandi verður landsmót Gígjunnar, lands- sambands íslenskra kvennakóra, haldið á Akureyri. Kvennakór Ak- ureyrar sér um framkvæmd mótsins að þessu sinni en þetta er í níunda sinn sem mótið er haldið. Von er á tuttugu kórum víðsvegar að af landinu auk þess sem einn gestakór er væntanlegur frá Noregi. Alls verða um það bil sjöhundruð syngjandi konur samankomnar á Akureyri þessa helgi. Miðpunktur mótsins verður í menningarhús- inu Hofi en æfingar í söngsmiðjum fara fram víðs vegar um bæinn. Viðfangsefnin í söngsmiðjunum eru mjög fjölbreytt, má þar nefna rokklög, þjóðlög frá ýmsum lönd- um, madrigala og spuna. Hefð hefur skapast fyrir því að samið sé sérstakt landsmótslag og í ár var tónskáldið Hugi Guðmundsson fenginn til að semja lag við texta Jakobínu Sig- urðardóttur, Vor í garði. Söngurinn mun því óma um Ak- ureyri þessa helgi og hápunkturinn verður svo í Hofi sunnudaginn 11. maí þar sem allir þátttakendur sam- einast á sviði ásamt hljómsveit og frumflytja meðal annars landsmóts- lagið, segir í tilkynningu. a LEIÐRÉTTING Að gefnu tilefni skal tekið fram að vegna mistaka blaðamanns er ranglega haft eftir leikhússtjóra LA, Ragnheiði Skúladóttur, að menningarhúsinu Hofi megi kenna um hvernig komið er fyrir Leikfélagi Akureyrar fjárhagslega. Mistök við vinnslu fréttarinnar urðu til þess að fyrirsögn fréttar í papp- írsútgáfunni sem dreift verður á Norðurlandi á morgun er röng. Blaðið biður Ragnheiði Skúladóttur og aðra hlutaðeigandi auðmjúklega afsökunar og harmar ónákvæmnina. - ritstjóri Ný sumaráætlun strætó Frá og með 18. maí nk. tekur ný áætlun gildi á Vestur- og Norður- landi. Helstu breytingar eru að leið 57 fer tvær ferðir á laugardögum milli Akureyrar og Reykjavíkur og ekur þar með tvær ferðir á dag alla daga vikunnar. Fyrri ferðin fer frá Akureyri kl 10:15 kl. Seinni ferðin fer kl 16:20. Í öllum ferðum milli Akureyrar og Reykjavíkur verður nú gert ráð fyrir 30 mín stoppi í Staðarskála. a

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.