Akureyri - 08.05.2014, Page 16
16 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014
AÐSEND GREIN BJARKI ÁRMANN ODDSSON
Akureyri tækifæranna
Akureyri er sannkölluð paradís.
Fegurð bæjarins er óumdeilanleg
og þykir mörgum Akureyri vera
fegursti bær landsins. Hér þrí-
fst blómlegt menningarstarf og
kraftmikið íþróttalíf. Jafnt sumar
sem vetur, alltaf er nóg að gera.
Frábært og vel menntað starfs-
fólk ber uppi öfluga skóla. Úrval
verslunar og þjónustu er mikið og
ferðamennirnir eru duglegir að
heimsækja bæinn. Meira að segja
íbúar Akureyrar þykja bera af
þrátt fyrir að gefa aldrei stefnuljós.
Engu af síður hef ég þó óneitan-
lega nokkrar áhyggjur af atvinnu-
lífinu í bænum. Það er einfaldlega
of fábreytt. Hlutfallslega er hér
gríðarlega mikið af þjónustustörfum
og störfum hjá hinu opinbera sem
verður þess valdandi að Akureyri
hefur dregist aftur úr og er orðið
að láglaunasvæði, sérstaklega þegar
miðað er við höfuðborgarsvæðið.
Samanlagður hagvöxtur Norð-
urlands eystra á árunum frá 2004-
2011 er 0%. Þetta er eini lands-
hlutinn sem hefur ekki séð neina
aukna framleiðni á þessum árum. Á
sama tíma jókst framleiðni á höfuð-
borgarsvæðinu um 11%, Suðurnesj-
um um 32% og á Vesturlandi um
18%. Á ársgrundvelli er framleiðni
á mann um 600.000 krónum minni á
Norðausturlandi en á höfuðborgar-
svæðinu.
Það jákvæða er þó að hvert sem
litið er í okkar fallega bæjarfélagi
eru tækifæri. Tækifæra til að gera
betur.
Gerum atvinnulífið í bænum fjöl-
breyttara og ögn skemmtilegra
Það yrði alveg frábært að koma á
fót alvöru matarmarkaði miðsvæðis
í bænum. Þar sem framleiðendur í
Eyjafirði og nágrenni myndu kynna
og selja vörur sínar heimamönnum
jafnt sem ferðamönnum. Áherslan
yrði á vörur úr heimahéraði. Þarna
gefst frábært tækifæri fyrir stóra
sem smáa framleiðendur, sem við
eigum nóg af, til að koma sér og sín-
um vörum á framfæri. Hver hefði til
dæmis trúað því að bestu smyrsl í
heimi væru framleidd á Svalbarðs-
eyri, að bestu paprikur heims væru
innan úr Eyjafjarðarsveit og besti
fiskur heims kæmi að landi á Akur-
eyri? Hversu frábært yrði til dæmis
ef trillusjómenn gætu lagst upp að
Torfunesbryggjunni og selt fisk á
góðum sumardögum?
Menning er önnur aðalástæða
heimsókna ferðamanna til Íslands.
Akureyri þarf að bjóða upp á stóra
alþjóðlega menningarviðburði til
að standast samkeppni við höfuð-
borgarsvæðið og nágrannalönd. Með
tilkomu Menningarhússins Hofs hafa
möguleikar bæjarins til að setja upp
stærri listviðburði ásamt ráðstefnu-
haldi aukist. Þennan möguleika þarf
að nýta betur. Það skiptir ekki máli
hvaða viðburður það er. Tónleikar,
ráðstefnur, kvikmyndahátíðir eða
íþróttamót, aðstaðan er til staðar hér
á Akureyri. Það þarf bara að nýta
hana betur!
Tryggja þarf áframhaldandi
starfsemi Leikfélags Akureyrar og
Sinfóníuhjómsveitar Norðurlands.
Það þarf að gera þessum stofnunum
hátt undir höfði svo þær geti tek-
ist á við metnaðarfull verkefni til
frambúðar.
Starfsfólk Akureyrarbæjar hef-
ur fundið allhressilega fyrir niður-
skurði hin síðustu ár. Nú þegar rofar
til þarf að gera úttekt á því hvernig
bærinn stendur sig sem vinnuveit-
andi og skoða sérstaklega hvaða
áhrif margra ára niðurskurður hjá
stofnunum bæjarins hefur haft.
Nauðsynlegt er að fjölga störfum
innan þjónustustofnana til dæmis í
leik- og grunnskólum og öldrunar-
þjónustu, þar sem undirmönnun er
orðin viðvarandi. Betra vinnuum-
hverfi þýðir ánægðara starfsfólk og
betri þjónusta.
Ferðaþjónustan
Ferðaþjónustan skipar stóran sess
á Akureyri og skilar íbúum meiri
og betri þjónustu allt árið um kring.
Auk þess eflir hún allt mannlíf og
gera það skemmtilegra. Akureyr-
ingar eru góðir gestgjafar og mik-
ilvægt er að hlúa að jákvæðum
samskiptum við gesti bæjarins. Ak-
ureyri er um þessar mundir gríðar-
lega vinsæll ferðamannastaður. Það
er því mikilvægt að hamra járnið á
meðan það er heitt og markaðsetja
bæinn enn betur. Ferðaþjónustufyr-
irtæki ásamt Akureyrarbæ þurfa að
skilgreina vörumerkið AKUREYRI.
AKUREYRI á að verða samheiti í
ferðaþjónustu fyrir allt Norðaustur-
land. Öflug ferðaþjónusta og mark-
aðssetning Akureyrar sem ferða-
mannabæjar eflir ferðaþjónustu á
öllu Norðurlandi.
Eitt sem sveitarfélagið getur gert
er að efla Akureyrarstofu og Mark-
aðsstofu Norðurlands til að kynna
vörumerkið AKUREYRI, efla mark-
aðsrannsóknir og halda áfram með þá
vinnu að fá fleiri bein millilandaflug
til Akureyrar. Mikilvægt er að leggja
áherslu á þróun atvinnugreinarinnar
með sjálfbærni og aukna arðsemi
að leiðarljósi. Sérstaklega þarf að
leggja áherslu á að markaðssetja
Vetrarbæinn Akureyri sem paradís
útivistar- og ævintýraferðamennsku.
Forsenda þess er frekari uppbygging
upp í Hlíðarfjalli.
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri skiptir okk-
ur gríðarlegu miklu máli. Hann er
ekki bara stór vinnustaður heldur
útskrifar hann hæfa einstaklinga og
er verðmætaskapandi fyrir svæðið
sem heild. Háskólinn á Akureyri er
frábær skóli og þekki ég það mjög
vel eftir að hafa lokið gráðum bæði
úr HA og HÍ að sá fyrrnefndi stendur
þeim síðarnefnda framar á mörgum
sviðum. Persónulegri kennsla, metn-
aður fyrir hönd landsbyggðarinnar
og einstaklega hjálpfúst starfsfólk
standa þar upp úr að mínum dómi.
Reynslan hefur sýnt að útskrifaðir
nemendur úr HA er mun líklegri til
að starfa á landsbyggðinni.
Skólinn er um þessar mundir alvar-
lega fjársveltur og vissulega þarf hið
opinbera að koma þar að með myndar-
legri hætti. Hins vegar vil ég benda
á að atvinnulífið, sérstaklega hér í
Eyjafirði, þarf að koma mun meira
að því að styðja við bakið á skólanum.
Of mörg stór fyrirtæki leggja ekkert
til skólans en njóta góðs af honum.
Fyrirtækin ættu hins vegar að sjá sér
hag í því að styðja vel við bakið á skól-
anum og fá þannig til baka hæfara
starfsfólk. Stuðningurinn þarf ekki
að vera annað en að verðlauna fyrir
góðan árangur, ritgerðasamkeppnir,
nýsköpunarverðlaun, uppfinninga-
keppnir og svo framvegis.
Það sem ég tel þó vera brýn-
ast fyrir framtíð skólans er að efla
vísindastarf og auka stuðning við
rannsóknir við allar deildir háskól-
ans. Það myndi auka nýsköpun og
efla mannauð. Þetta myndi svo hafa
margföldunaráhrif eftir því sem
vegur háskólans vex með auknum
fjölda sprota- og þekkingarfyrir-
tækja tengdum Háskólanum.
Að auki tel ég okkur Akureyr-
inga vera að súpa seyðið af því að
hafa misst tölvunarfræðideildina
úr háskólanum. Mikill skortur er
á tölvu- og tæknifræðingum. Störf
þeirra eru ein af forsendum þess að
byggja hér upp öflugt þekkingasam-
félag. Ég held að það liggji ljóst fyrir
að við þurfum að berjast fyrir því að
fá fullt tækni- og tölvunarfræðinám
á háskólastigi til Akureyrar á allra
næstu árum.
Já, tækifærin eru svo sannarlega
til staðar. Áfram Akureyri!
Höfundur er stjórnsýslufræðingur
og 3. maður á lista Samfylkingarinn-
ar á Akureyri
Samanlagður
hagvöxtur
Norðurlands
eystra á árunum
frá 20042011
er 0%. Þetta
er eini landshlutinn sem
hefur ekki séð neina aukna
framleiðni á þessum árum.
BJARKI ÁRMANN ODDSSON
Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir
veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör.
Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar
verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 12. – 19. maí. Staðsetning gámana verður á eftir-
töldum stöðum:
• Kaupangi
• Hagkaup
• Hrísalundi
• Bónus við Kjarnagötu
• Bónus við Langholt
• Aðalstræti sunnan Duggufjöru
• Bugðusíðu við leiksvæði
• Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð
Einnig er tekið við garðaúrgangi og fl. á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttöku-
stöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli. Í samvinnu við hestamenn verða gámar fyrir rusl
staðsettir í hesthúsahverfum bæjarins frá 20. – 30. maí.
HVATNING TIL DÁÐA
Akureyrarbær hefur stundum fengið sæmdarheitið “fegursti bær landsins” en til þess að
hann verðskuldi það þurfa allir að leggjast á eitt og taka til í sínum ranni. Það er samfé-
lagsleg skylda okkar sem í þessum bæ búa að ganga vel um og koma í veg fyrir sóðaskap
sem hlýst af uppsöfnuðu rusli.
Með því að hreinsa rusl og snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til
að taka til hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan lóðarmarka, við næsta
göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður
upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu
verkefni.
OPNUNARTÍMAR GÁMASVÆÐIS VIÐ RÉTTARHVAMM:
Frá 16. ágúst til 15. maí:
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 18.00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00
Frá 16. maí til 15. ágúst:
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 20.00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00
Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar
Forstöðumaður umhverfismála
Fögnum sumrinu og fegrum umhverfið
Hreinsunarvika 2014