Akureyri - 12.06.2014, Blaðsíða 8
8 22. tölublað 4. árgangur 12. júní 2014
Gasið getur valdið
fólki miklum skaða
Á sumrin eykst gasnotkun til muna.
Í húsbílum og hjólhýsum er gas
mikið notað bæði til upphitunar
og eldamennsku. Í ökutækjaskrá
eru 3.600 hjólhýsi skráð og 2.600
húsbílar. Hvort tveggja eru vel þétt
þannig að bæði súrefnisskortur og
gasleki getur haft mjög alvarlegar
afleiðingar. Huga þarf því vel að
loftristum, lögnum, samskeytum,
gasskynjara, kolsýrlingsskynjara
og eldvörnum, að því er kemur fram
í varnaðarorðum frá VÍS.
Í vor kviknaði í hjólhýsi í Þjórs-
árdal sem brann til grunna og
voru eldsupptök í gasofni. Í fyrra
létust þrír á sama stað í tveimur
slysum. Annað slysið varð vegna
súrefnisskorts út frá gasnotkun
er kolsýrlingur hlóðst upp í and-
rúmsloftinu. Í hinu slysinu lést
kona er kviknaði í hjólhýsi út frá
gasleka sem var við ísskáp. Árin
2001 og 2008 létust sex einstak-
lingar vegna súrefnisskorts, er gas
var notað í loftþéttu rými. Varnað-
orðin eiga erindi við lesendur
þessa norðlenska blaðsins eins og
aðra Íslendinga.
„Á ferð hristast og hreyfast öll
samskeyti og lagnir sem eykur lýk-
ur á að eitthvað gangi til. Mikilvægt
er því að skoða lagnir og tengingar
nokkrum sinnum yfir sumarið en
ekki bara í upphafi þess. Líftími
búnaðar er ekki ótakmarkaður og
til að mynda þarf að skipta slöng-
um út á fimm ára fresti.
Lofttúður niður við gólf eru sér-
staklega hugsaðar til að hleypa gasi
út ef það lekur og þurfa alltaf að
vera opnar. Gas er þyngra en and-
rúmsloft og því eiga gasskynjarar
að vera niður við gólf. Kolsýrling-
ur leitar aftur á móti upp og slíkur
skynjari þarf því að vera staðsettur
í lofti. Þar eiga einnig að vera opnar
lofttúður,“ segir í frétt VÍS. a
Gagnaeyðing fyrir dóm
Manni á Norðurlandi var óheimilt
að nota í atvinnustarfsemi sinni
auðkennið Gagnaeyðing Norður-
lands og önnur auðkenni sem inni-
halda vörumerkið og firmaheitið
Gagnaeyðing, hvort sem er á bréf-
hausum, nafnspjöldum, í kynn-
ingu, munnlegri eða skriflegri, á
heimasíðu sinni, í auglýsingum eða
á annan sambærilegan hátt. Þetta
kemur fram í máli sem dæmt hefur
verið í hjá Héraðsdómi Norðurland
eystra. Gagneyðing ehf sótti málið
og þarf Gagnaeyðing Norðurlands
einnig að greiða Gagnaeyðingu ehf.,
200.000 krónur í málskostnað.
Málið var höfðað 3. október
2013, af Gagnaeyðingu ehf., Bæj-
arflöt 4, Reykjavík, á hendur Pétri
Axel Valgeirssyni, Valagili 2, Akur-
eyri. Stefnandi gerði þær kröfur
að viðurkennt verði að stefnda sé
óheimilt að nota í atvinnustarfsemi
sinni auðkennið GAGNAEYÐING
NORÐURLANDS Stefnandi sagð-
ist hafa notað auðkennið GAGNA-
EYÐING frá stofnun, bæði sem
vörumerki og firmaheiti en heitið
sé sérkennandi fyrir þjónustu
sem stefnandi veiti. Hafi stefn-
andi jafnframt verið í forystu hvað
varði kröfur til upplýsingaöryggis
við meðhöndlun gagna.Stefnandi
sagði að í vörumerkjarétti fælist
að öðrum væri óheimilt að nota í
atvinnustarfsemi tákn sem séu eins
eða lík vörumerkjum hans en svo
hafi verið.
Stefndi sagðist telja að það heiti,
sem hann hafi valið starfsemi sinni,
sé alls ekki líkt því sem stefnandi
hafi fengið skráð og engin ruglings-
hætta sé því á milli merkjanna.
Í niðurstöðukafla dóms segir:
„Þegar á framanritað er horft verður
að líta svo á að stefnandi hafi rennt
stoðum undir þau sjónarmið sín, að
vegna notkunar um rúmlega tutt-
ugu ára skeið og kynningar á henni
á opinberum vettvangi hafi orð-
merki hans öðlazt slík sérkenni að
það verði hæft til skráningar. Þyk-
ir stefnandi hafa axlað sönnunar-
byrði sína, en ekkert í málatilbún-
aði stefnda þykir styðja gagnstæða
niðurstöðu um þetta atriði. Verður
í ljósi framanritaðs að fallast á að
stefndi hafi, með notkun heitisins
Gagnaeyðing Norðurlands á starf-
semi sína brotið gegn vörumerkja-
rétti stefnanda. Verður því fallizt á
kröfu stefnanda um að viðurkennt
verði að slíkt sé stefnda óheimilt,
og sama niðurstaða verður um aðra
notkun vörumerkisins GAGNA-
EYÐING.“
Þorsteinn Davíðsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. a
Eru
m a
ð ta
ka u
pp n
ý úr
fyrir
vori
ð!
HAFGOLAN er ekki alltaf uppspretta leiðinda. Heldur líka stundum flugdreka. Völundur