Akureyri - 12.06.2014, Blaðsíða 16
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
UM DAGINN OG VEGINN
SILJA BJÖRK
SKRIFAR
Vélaval
560 Varmahlíð
453 8888 - velaval.is
Tindar
Ný sending af tindum í:
- Rakstrarvélar
- Snúningsvélar
- Sópvindur
Vélfræðingar – hugvitsmenn – hönnuðir.
Hjallahraun 2 - 220 Hafnarfj.
s. 562 3833 - 863 5512
www.asafl.is - asafl@asafl.is
Helac um borð í
Þóri SF 177
Ætla sko ekki að
deyja svöng
Fyrirhuguð fjölskylduferð til lands
tækifæranna fór að valda mér
ótæpilegum áhyggjum um eig-
ið holdafar nú í byrjun árs. Jú, þó
Kanarnir væru feitasta þjóð í heimi
gat ég ekki séð sjálfa mig spranga
um á bikiní við hliðina á sólbrún-
um súpermódelum, enn að burðast
með jólakílóin. Hófst þá hundrað-
asta herferð mín gegn aukakíló-
um, kalórítutalningar og líkams-
ræktarferðir. Það gekk vel framan
af en Adam var ekki lengi í paradís.
Þannig er mál með vexti, að ég
sver mig í ætt kúrudýra og nautna-
seggja, og entist þetta líkams-
ræktarátak mitt ekki í hálft ár eins
og ætlunin var. Ég leit í spegilinn og
mér til ómældrar óhamingju höfðu
freistingarnar borið mig ofurliði.
Ég er einfaldlega ekki þannig víruð
að geta neitað sveittri flatbökusneið
eða góðu vínglasi.
Svo rennur það upp fyrir mér
einn daginn, að eftir lokaprófana-
mmiát og stöðugar kráarheimsókn-
ir eftir vinnu, var aðeins mánuður
til stefnu. Almáttugur, hugsaði ég!
Nú verð ég sprangandi um með
bjórbumbuna og sykraða appel-
sínuhúð við hliðina á þvengmjóum
Barbídúkkum. Í hálfgerðu kvíða-
kasti hringdi ég í móður mína til
að tilkynna henni að ég sæi mér
einfaldlega ekki fært að mæta í
ferðina, ég ætlaði bara að vera
heima og skammast mín. Hafalda
samviskubits yfir steikunum og
víninu helltist yfir mig þegar ég fór
í geðshræringu að þylja upp fyrir
hana í símann hversu oft ég hafði
sleppt ræktinni eða fengið mér
samloku í stað próteinhristings.
Lystisemdamanneskjan hún
móðir mín hnussaði og sagði við
mig “Ég veit ekki með þig dóttir
góð, en ég ætla sko ekki að deyja
svöng.”
Þegar þú lest þetta, lesandi góð-
ur, verð ég flatmagandi á strönd-
um Flórída líklegast með einn
ískaldan í annarri og amerískt
súkkulaðistykki í hinni. a