Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1983, Blaðsíða 19
Þessi Viken Mustangskápa- og hillusamstæöa viröist kjörin til þess
að auka á hlýlegan og vistlegan heimilisblæ og gæti sem best átt vel
heima meö Tangó-stofuhúsgögnunum. Efnið er mahóní og gefur litur
og formfastar línur heildinni efnismikinn og vandaöan svip. Hæöin er
1,76 m, breidd 0,95 m en á samtals þremur einingum 2,85 m. Verð á
einingahlutum: Bar-eining kr. 7.840,00, bókahillu-eining kr. 6.030,00,
glerskápur með lýsingu kr. 7.840,00 og Ijósakappi kostar kr. 2.650,00.
Þessi húsgögn eru innflutt frá Noregi og fást í Z-húsgögn, Síðumúla 2.
Tangó-stofuhúsgögn frá Borgarhúsgögnum. Um þau má segja að þau séu bæði nýtískuleg og þó sígild;
þeinar línur og skörp horn gefa stílhreinan svip en mýkt og hlýleiki einkennir þau þó öðru fremur. Þá hafa
þessi húsgögn sér til ágætis, aö þeim má stilla upp á ýmsa vegu, eru með öðrum orðum raðhúsgögn. Hver
eining, sem er eitt sæti, er fáanleg ein sér og má því kaupa svo mörg sem henta eða allt settið smám
saman, en þessi húsgögn hafa veriö og eru í stöðugri framleiðslu að sögn Hauks Óskarssonar, fram-
kvæmdastjóra.
Eins og sjá má ræður uppröðun hvort útkoman er hornsófi með innfelldum borðum eða önnur
uppstilling hentar betur. Bygging sætanna er trégrind með stálfjöörum í setu og sérstökum borðum í baki,
bólsturefnið er svampur með dakron-mýkingu yst.
Verð á hverri sætiseiningu er kr. 4.700,00, en arma má hafa eftir vild og er verð kr. 1.250,00 á hverjum
armi. Skemill kostar kr. 2.210,00. Verð á hornborði, sem er með hillu er kr. 5.890,00; lítið borö einnig með
hillu (á milli stóla) kostar kr. 2.250,00. Sófaborð með klæddum sökkli og kanti, stærð 90 X 90 sm kostar kr.
4.120,00. Borðplötur eru úr bæsaðri eik, en velja má um annan lit eða viðartegund ef óskað er svo og
áklæði. Einnig má fá leðurklæðningu, sem yrði þá með öðru verði. Verö miðast viö jan. '83. Tangó-
raðhúsgögnin eru hönnuð hjá Borgarhúsgögnum, Fellsmúla 26, og eru aðeins seld þar í verslun fyrirtækis-
ins og veita framleiðendur alla þjónustu sem kaupendur þurfa í sambandi við húsgögnin.
Norsk Sandvik-borðstofuhús-
gögn sem henta vel í borðkrók í
eldhúsi eða borðstofu þar sem
þau eiga viö. Segja má að
pinna-stólar séu bæði sígildir og
sívinsælir. Uppfinningin er talin
ensk að uppruna og eiga um 300
ára hefð að baki. Sé framleiðslan
vönduð þola þessir stólar næst-
um hvað sem á þeim mæðir á
venjulegu heimili og svo er einnig
um borð af svipuðu tagi, en
Sandvik-borðstofuhúsgögn eru
talin með því besta sem völ er á.
Hér er efnið fura en svipaðar
gerðir fást í eik og bæsuðu
beyki. Borðið er 125 X 85 að
stærð og kostar kr. 4.522,00;
hver stóll kostar kr. 1.825,00.
Borðið og stólarnir fást í Borg-
arhúsgögnum, Fellsmúla 26, en
skápinn þarf að panta og kostar
hann nú kr. 10.829,00.
HUSGÖGN
Fullyröa má aö íslensk heimili þoli vel samanburð við aðrar þjóðir hvað húsbúnað áhrærir og gildir það
einnig um íslenska húsgagnaframleiðslu, þótt sá iðnaður sé nú á góðri leið að leggjast niður að því er
heimildir herma. í þessu sambandi má vel minnast þess, að eitt af því fyrsta sem alþýðufólk veitti sér, að
kreppuárunum liðnum fyrir rúmum 40 árum, var það að búa heimili sín betur að húsgögnum og þeim
þægindum sem þekkt voru á þeim tíma. Má segja að æ síðan hafi allar stéttir landsmanna lagt kapp á að
eignast sem best búin og glæsilegust heimili. Sjálfsagt þykir að hvert herbergi heimilisins sé búið viðeigandi
húsgögnum, svo sem sófasetti, borðstofuhúsgögnum, skápasamstæðum og hverju því sem sem tískan
útheimtir á hverjum tíma, og er í samræmi við smekk og efnahag viðkomandi heimilisfólks. Er ekki laust við
að íhaldsömum og hófsömum einstaklingum þyki stundum jaðra við ofurkapp í þessum efnum. En á hjtt ber
að líta; hvar ætti fremur að vera þörf ffyrir vandaðan og hlýlegan húsbúnað en á íslenskum heimilum? Á þetta
hefur reynt nú í vetur, þegar óveður og fannfergi hafa hamlaö útivist nema i nauðsyn. Hefur þá vafalaust
mörgum orðið það notaleg tilhugsun að hreiðra um sig í sófahorninu heima hjá sér.
NYTT A
MARKAÐNUM