Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 2

Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 2
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 HEILBRIGÐISMÁL Haraldur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri Hafn- arfjarðar, segir lágt tilboð í St. Jósefs spítala í Hafnarfirði ekki hafa komið sér á óvart. Hann telur ólíklegt að gengið verði að 85 milljóna króna tilboði í eign- ina. Hæsta tilboð sem barst í hús- næðið hljóðaði upp á 85 milljón- ir króna sem er langt undir fast- eignamati hússins. Sjúkrahúsið er í sölumeðferð hjá Ríkiskaup- um og var hæsta tilboð frá fyrir- tækinu Stofnási ehf., sem hefur áform um að breyta húsnæðinu í hótel eða íbúðir. St. Jósefsspítali er í eigu Hafn- arfjarðarbæjar og ríkissjóðs. Hafnarfjarðarbær á 15 prósenta hlut í eigninni á móti 85 prósent- um ríkisins. Fasteignamat hús- næðisins hljóðar upp á 382 millj- ónir króna og því er hæsta boð í húsnæðið langt undir því eða um fjórðungur af fasteignamati. Haraldur segir gott að vita hvað markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir eignina en telur ólíklegt að gengið verði að þessu tilboði. „Upphæð hæsta tilboðs- ins kom mér ekki á óvart, ég verð að viðurkenna það. Ég átti von á því að hæsta tilboð yrði einhvers staðar undir hundrað milljónum. Það var vilji ríkisins að fara þessa leið og nú vitum við hvað markaðurinn er tilbú- inn að greiða fyrir húsið,“ segir hann. Gunnar Gunnarsson, eigandi Stofnáss ehf., sem átti hæsta til- boðið í fasteignina, telur að það þurfi að breyta húsnæðinu fyrir um 200 milljónir til að koma því í gang. „Það er útséð um það að heilsutengd starfsemi verði í húsinu. Menn hafa reynt það. Ég bauð í húsnæðið með fyrirvara um breytingu á starfsemi í hús- inu,“ segir Gunnar. Hann telur ólíklegt að boði sínu verði tekið. „Ég á frekar von á því að öllum tilboðum verði hafnað.“ Hugmyndir hæstbjóðanda eru að breyta húsnæðinu í íbúð- ir eða hótel. Haraldur vill ekki tjá sig um þær hugmyndir að svo stöddu, „Bæjarstjórn mun fjalla um málið á miðvikudaginn næstkomandi. Hins vegar er það alveg ljóst að þessar hugmyndir munu ekki hugnast mörgum, til að mynda hagsmunasamtökum St. Jósefsspítala. Ég tel að þessu tilboði verði ekki tekið og húsið sett aftur í söluferli.“ Hollvinasamtök St. Jósefs- spítala lögðu í haust blessun sína yfir söluferli hússins með þeim kvöðum að við mat á til- boðum væri heimilt að horfa til þess hvort starfsemi í húsinu til framtíðar tengdist heilbrigðis- þjónustu. sveinn@frettabladid.is Líklegt að öllum til- boðum verði hafnað Hæsta boð í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði hljóðaði upp á um 23 prósent af fast- eignamati hússins. Ríkiskaup annast sölu hússins sem er í eigu Hafnarfjarðarbæjar og ríkisins. Upphæðin kom mér ekki á óvart, segir bæjarstjóri Hafnarfjarðar ST. JÓSEFSSPÍTALI Þar hefur engin starfsemi verið um nokkra hríð og hafa Hafn- firðingar barist fyrir því að heilsutengd starfsemi verði í húsinu. Það var vilji ríkisins að fara þessa leið og nú vitum við hvað markað- urinn er tilbúinn að greiða fyrir húsið. Haraldur Líndal Haraldsson FRAKKLAND, AP Réttarhöldin yfir Dominique Strauss-Kahn hófust í borginni Lille í Frakklandi í gær. Reiknað er með að þau standi í þrjár vikur. Hann er, ásamt þrettán öðrum, ákærður fyrir tengsl við vændis- hring og á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi og hálfa aðra milljón evra í sektir. Sanrine Vandenschrik, ein vændiskvennanna, segist hafa sagt lögreglunni að ef Strauss- Kahn ætli að halda því fram að hann hafi ekki vitað að þarna hefðu verið vændiskonur á ferð, þá væri hann að reyna að „fá okkur til að trúa því að hann sé einfeldn- ingur og lítur á okkur sem fífl“. - gb Réttarhöld hafin í Lille: Réttað yfir Strauss-Kahn BANDARÍKIN, AFP Íbúar í Chicago-fylki í Bandaríkjunum áttu í fullu fangi við að komast úr snjónum eftir mikla snjókomu þar aðfaranótt mánudags. Tæplega 50 sentimetra lag af snjó þakti götur borgarinnar, sem er fimmta mesta snjókoma þar í borg í sögunni. - fbj Íbúar Chicago í Bandaríkjunum eru óvanir mikilli snjókomu: Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó SÓPAÐ AF BÍLNUM Chicago-búinn Marcus Neris þurfti að grafa bíl sinn úr fönn og sópa af honum áður en hann komst að heiman. FRÉTTBLAÐIÐ/AFP SAMFÉLAG Embætti landlæknis stendur fyrir árlegri tannverndar- viku 2. til 7. febrúar í samstarfi við Tannlæknafélag Ísland og þetta árið er hún helguð því að kynna landsmönnum mikilvægi þess að draga úr sykurneyslu undir kjör- orðinu Sjaldan sætindi og í litlu magni. Meðal sykurneysla hvers Íslendings nemur 60 kílóum á ári. Náttúrulækningafélag Íslands benti á fyrir nokkru að neysluhlut- fall barna væri jafnvel enn hærra en hjá fullorðnum. Embætti landlæknis hefur opnað nýjan vef, sykurmagn.is, þar sem er að finna myndrænar upplýsing- ar um viðbættan sykur í ýmsum matvælum, einkum sætindum og sykruðum gos- og svaladrykkjum. Markmið síðunnar er að efla færni barna og foreldra þeirra í fæðuvali. Matvörur sem eru sér- staklega markaðssettar fyrir börn eru oft og tíðum ekki þær æskilegustu fyrir þau. Nokkur dæmi eru tekin á síðunni, þar má til dæmis sjá að í 250 ml fernu af Svala með appelsínubragði er sem nemur 9 sykurmolum en hver syk- urmoli er 2 grömm. Í 100 ml af drykknum eru 7,2 grömm af við- bættum sykri. Í tilefni átaksins var gefið út myndbandið Sykur á borðum, í því er litið inn hjá fjölskyldu sem ætlar að eiga notalega stund við sjónvarpið. Myndbandið verður aðgengilegt á vef Embættis land- læknis á síðunni Tannvernd og á að verða til vitundarvakningar. - kbg Meðalsykurneysla Íslendinga 60 kíló á ári. Neysla barna jafnvel talin meiri en fullorðinna: Matvörur fyrir börn oft óæskilegar 179 SYKURMOLAR Ef fjölskylda ætlar að fá sér 500 g af blandi í poka og drekka með því einn lítra af kók hefur hún neytt sem nemur 179 sykurmolum. VIÐSKIPTI Eigendur tískuvöru- verslunarinnar Kron verða á fimmtudag með 400 gölluð skópör til sýnis í verslun sinni. Um verður að ræða listrænan gjörning vegna dóms sem féll í Hæstarétti í síð- ustu viku þar sem þeim var gert að greiða skóframleiðendum sam- tals 18 milljónir króna. Yfirskrift- in verður „Myndir þú kaupa þessa skó með 20 prósenta afslætti?“ Hugrún Árnadóttir segir skó- pörin sem þau fengu frá framleið- andanum öll vera gölluð en fram- leiðandinn hafi boðið þeim afslátt. Það vildu þau ekki þiggja en kröfð- ust þess að skórnir yrðu teknir til baka. Úr varð fyrrgreint dómsmál. - sks Gjörningur með skópörum: Eigendur Kron ósáttir við dóm BJÖRGUN Viðamikil björgunaraðgerð stóð yfir í gær á Norðurlandi en 22 björgunarsveitarmenn fóru upp á hálendið til að bjarga sjö íslenskum ferðalöng- um, þar af tveimur börnum, sem voru þar fastir í tveimur jeppum. Þrjár björgunarsveitir tóku þátt í aðgerðum, Súlur, björgunarsveit Akureyrar, Hjálp- arsveitin Dalbjörg frá Eyjafjarðarsveit og Björgun- arsveitin Þingey frá Aðaldal. Fólkið hafði ekki verið í símasambandi síðan klukkan tíu á sunnudagskvöld þegar það óskaði eftir aðstoð björgunarsveitarinnar. Björgunarsveit- armenn komu fólkinu til aðstoðar um áttaleytið í gærmorgun sem var þá heilt á húfi, en það hafði þá hafst við í einum bílanna um nóttina. ,,Fólkið var nokkuð vel búið og gerði það rétta, að halda kyrru fyrir í bílnum,“ segir Skúli Árnason, formaður björgunarsveitarinnar Súlna, í samtali við Fréttablaðið. Fólkið var í jeppaferð og hafði komið úr Kerlingafjöllum og var á leið ofan í Bárðardal með viðkomu í Bárðarfelli. Er þessi leið töluvert algeng að sögn Skúla. ,,Einn bílanna bilaði og stopp- uðu hinir bílarnir til þess að veita aðstoð en festust í kjölfarið. Þau festu sig á Dragleið sem er á milli Laugafells og Sprengisandsleiðar.“ Fólkið kom heilt á húfi til Akureyrar um níuleytið í gærkvöldi og fékk heita súpu. Skúli segir ferðalangana alla mjög þreytta og uppgefna, einnig björgunarsveitarmenn- ina. ,,Þetta er búinn að vera mjög langur sólarhring- ur hjá þeim öllum.“ - ngy Björgunarsveitir aðstoðuðu sjö ferðalanga sem festust á hálendinu: Föst með tvö ung börn í bílum BJARGAÐ Ferðalangarnir sem festust á hálendinu aðfaranótt mánudags eru komnir heilir á húfi til byggða. SPURNING DAGSINS Páskar í Barcelona 1. - 5. apríl Verð frá 109.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar á mann á hótel Ayre Gran Via með morgunverði *Verð án Vildarpunkta 119.900 kr. Fararstjóri er Kristinn R. Ólafsson VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair Guðný Hrund, er autt rúm betra en illa skipað? „Það er illa skipað að hafa þessi rúm auð.“ Legurými heilbrigðisstofnunar Hvammstanga eru ekki notuð þar sem ríkið hefur ekki tryggt fjármagn til reksturs. Guðný Hrund Karlsdóttir er sveitarstjóri Húnaþings vestra. 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -B 4 6 0 1 3 9 C -B 3 2 4 1 3 9 C -B 1 E 8 1 3 9 C -B 0 A C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.