Fréttablaðið - 03.02.2015, Page 6
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir íþróttamaðurinn sem
setti Íslandsmet í bæði 200 og 400 m
hlaupi um helgina?
2. Hvaða fyrirtæki hefur fengið styrk
til að halda áfram vöruþróun úr fi sk-
roði?
3. Á vegum hvaða tímarits keppir fata-
hönnuðurinn Elísabet Karlsdóttir?
SVÖR:
1. Kolbeinn Höður Gunnarsson. 2. Codland
í Grindavík. 3. Á vegum ítalska Vogue.
GRIKKLAND Barack Obama Banda-
ríkjaforseti kom grísku stjórninni
til varnar í gær og sagði frekari
niðurskurð ekki nauðsynlegan í bili
í Grikklandi, heldur þyrfti að hjálpa
Grikkjum að auka hagvöxtinn.
„Það er ekki hægt að halda
áfram að þrengja að ríkjum sem
eru í miðri efnahagskreppu,“ sagði
Obama í viðtali á sjónvarpsstöðinni
CNN.
George Osborne, fjármálaráð-
herra Bretlands, sagði einnig nauð-
synlegt að leggja áherslu á hag-
vöxt og hvatti til þess að evruríkin
gerðu betri áætlun um hagvöxt og
atvinnumál.
Þetta sagði hann eftir að Janis
Varúfakis, fjármálaráðherra
grísku stjórnarinnar, hélt á fund
hans í London í gær. Osborne tók
samt fram að óhjákvæmilegt væri
að Grikkir sýndu ábyrgð.
Varúfakis hefur verið á ferða-
lagi um Evrópuríki undanfarið,
og segir viðtökurnar þess eðlis að
Grikkir geti verið bjartsýnir á að
nýtt samkomulag um skuldavanda
Grikklands geti tekist innan fárra
mánaða.
Þannig sagði Michel Sapin, fjár-
málaráðherra Frakklands, að
Frakkar væru reiðbúnir að hjálpa
Grikkjum við að komast að sam-
komulagi við lánardrottna sína.
François Hollande Frakklandsfor-
seti hefur einnig sagst reiðubúinn
að ræða við Grikki um hugsan-
legar lausnir á þeim gríðarmikla
skuldavanda sem hrjáir gríska
ríkið. Grikkir verði samt að standa
við skuldbindingar sínar gagnvart
evrusvæðinu.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra
nýju stjórnarinnar í Grikklandi,
sagðist í gær undrandi á því hve
góðan hljómgrunn málstaður hans
hefði fengið í Evrópu.
SYRIZA, vinstriflokkur Tsip-
ras, vann stórsigur í þingkosn-
ingum fyrir rúmri viku út á lof-
orð um að nú verði horfið frá því
að leggja alla áherslu á að greiða
niður skuldir gríska ríkisins, held-
ur fara frekar að huga að því að
efla hagvöxtinn.
Gríska ríkið skuldar enn 315
milljarða evra, jafnvirði nærri
50.000 milljarða króna, eða um
það bil 175 prósent af vergri lands-
framleiðslu Grikklands.
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, segir réttast að leggja
niður þríeykið svonefnda, sendi-
nefnd Evrópusambandsins, Evr-
ópska seðlabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, sem stýrt hefur
samningum við grísk stjórnvöld um
skuldavanda ríkisins. „Við þurfum
að finna aðra leið og það hratt,“
sagði hann í blaðagrein í gær.
Þeir Juncker og Tsipras ætla
svo að hittast á morgun til að ræða
næstu skref. gudsteinn@frettabladid.is
Tsipras undrandi á
velvilja Evrópuríkja
Obama Bandaríkjaforseti segir nauðsynlegt að hjálpa Grikkjum til hagvaxtar
frekar en að leggja áfram alla áherslu á niðurskurð. Ráðamenn nokkurra Evrópu-
ríkja hafa tekið í sama streng. Fjármálaráðherra Grikklands segist bjartsýnn.
JANIS
VARÚFAKIS
Fjármálaráð-
herra nýju grísku
stjórnarinnar hélt í
gær á fund George
Osborne, hins
breska starfsbróður
síns, í Downing-
stræti númer ellefu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNSÝSLA Greiðslur til Bald-
vins Jónssonar fyrir kynningu
á íslenskum vörum í Bandaríkj-
unum voru teknar upp að nýju
í utanríkisráðuneytinu eftir að
Baldvin skilaði skýrslum um
framvindu verksins.
Utanríkisráðuneytið borgar
Baldvini samtals 36 milljónir
fyrir markaðsstörf á þessu ári
og í fyrra.
Baldvin fékk ekki umsamda
4,5 milljóna króna greiðslu í
september. Ráðuneytið sagði
Baldvin ekki
h a fa sk i l a ð
inn t i lsk i ld -
um skýrslum
um framvindu
verkefnisins.
„ Þ a ð e r
ágreiningur
um það sem ég
vil gera til þess
að hlíta samn-
ingnum sjálfum,“ útskýrði hann
í samtali við Fréttablaðið í októ-
ber.
Baldvin skilaði inn tveimur
skýrslum í nóvember og des-
ember og fékk í kjölfarið sept-
embergreiðsluna upp á 4,5 millj-
ónir króna og þriggja milljóna
króna desembergreiðslu.
„Að mati stjórnar voru þessi
gögn fullnægjandi samkvæmt
samningnum og grundvöllur til
greiðslna sem getur um í samn-
ingi fyrir september og desem-
ber,“ segir Urður Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins.
Að sögn Urðar tók stjórn verk-
efnisins ekki saman nein gögn
um það sem Baldvin lagði fram.
Í annarri skýrslunni kveðst
hann ætla að reyna til þrautar
að ná mönnum saman um sam-
eiginlega vinnu á sviði markaðs-
mála.
„Sem því miður er nánast ekki
til staðar – jafn augljóst og það
er að hagsmunir geta vel farið
saman og sparað umtalsverða
fjármuni en um leið aukið verð-
mætin,“ segir hann. - gar
Utanríkisráðuneytið aftur byrjað að greiða fyrir markaðsstörf Baldvins Jónssonar:
Skilaði stöðuskýrslum og fékk 7,5 milljónir
BALDVIN
JÓNSSON
HEILBRIGÐISMÁL Stjórnvöld ætla
ekki að endurnýja samning
Félags sjúkraþjálfara við Hrafn-
istu um rekstur endurhæfingar-
rýma sem ætluð eru öldruðum
sem enn búa í eigin húsnæði.
Félag sjúkraþjálfara segist
harma þá ákvörðun í fréttatil-
kynningu og leggur áherslu á að
endurhæfing sé ein alhagkvæm-
asta meðferð fjármuna í heil-
brigðiskerfi okkar.
„Þessi gjörningur er í hróp-
legri andstöðu við það markmið
að efla getu og færni fullorðins
fólks til að halda eigið heimili
eins lengi og auðið er,“ segir í
tilkynningunni.
- ngy
Endurhæfingarrými lokað:
Mikilvægri
starfsemi hætt
SVÍÞJÓÐ Sjötíu starfsmenn á
heimili fyrir aldraða í Gauta-
borg vinna nú sex klukkustundir
á dag í stað átta og halda fullum
launum.
Um er að ræða tilraunaverk-
efni sem standa á í eitt ár. Fylgst
verður með hvaða áhrif styttri
vinnutími hefur á heilsu starfs-
fólks og á störf þess til að geta
metið hvort sex tíma vinnudag-
ur komi í framtíðinni til greina
hjá sveitarfélaginu. Ráða þarf 14
nýja starfsmenn vegna verkefnis-
ins. Fjárframlög vegna þess eru
átta milljónir sænskra króna eða
um 128 milljónir íslenskra króna.
- ibs
Tilraun í Gautaborg:
Vinna minna á
fullum launum
VIÐSKIPTI Samherji hefur samið
við Sjóvá um öll vátryggingavið-
skipti fyrirtækisins og tengdra
félaga á Íslandi til næstu þriggja
ára. Samningurinn er gerður í
framhaldi af flutningi trygginga
Samherja og tengdra félaga til
Sjóvár í ársbyrjun 2014.
„Samherji er eitt umsvifamesta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins
sem krefst sérhæfðrar trygginga-
verndar. Samstarf til þriggja ára
tryggir bestu þjónustu af hendi
Sjóvár, sem rekur öflugt útibú á
Akureyri þar sem Samherji er
með höfuðstöðvar,“ segir Her-
mann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
- ngy
Samherji semur við Sjóvá:
Sjá um vátrygg-
ingar í þrjú ár
SKIP SAMHERJA Fyrirtækið er eitt það
umsvifamesta í sjávarútvegi á Íslandi.
MYND/SAFN SAMHERJI
SVÍÞJÓÐ Bandalag stjórnarand-
stöðuflokkanna í Svíþjóð vill
ásamt Svíþjóðardemókrötum
leyfa skólaslit í kirkjum þegar á
komandi sumri.
Nú má eingöngu fjalla um
trú í trúarbragðafræðslu og í
sumum skólum hefur það verið
túlkað sem svo að skólaslit megi
ekki fara fram í kirkju, að því
er segir á fréttavef Sænska dag-
blaðsins. Verði breytingin á
skólalögunum samþykkt verður
einnig leyfilegt að nefna Jesú og
syngja sálma.
- ibs
Sænska stjórnarandstaðan:
Skólaslit verði
leyfð í kirkjum
HARMA ÁKVÖRÐUNINA Félag
sjúkraþjálfara fékk samning um rekstur
endurhæfingarrýma ekki framlengdan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNSÝSLA Víðir Reynisson,
deildarstjóri almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra, segir
engar reglur hafa verið brotnar
þegar bandarísku fréttastofunni
ABC var veitt leyfi til að senda út
morgunþátt sinn frá lokuðu svæði
við gosstöðvarnar í Holuhrauni.
Umboðsmanni Alþingis barst
um helgina erindi þess efnis að
fréttastofan bandaríska hefði
fengið sérmeðferð og talið var
að umsókn um að komast á lokað
svæði hefði fengið hraðari með-
ferð. Umboðsmaður staðfestir að
erindið hafi verið móttekið.
Víðir telur þá
meðferð sem
ABC-fréttastof-
an fékk ekki á
nokkurn hátt
frábrugðna því
vinnulagi sem
almannavarna-
dei ldin vinni
eftir.
„Umsóknin
var innan allra þeirra marka sem
við höfum sett okkur varðandi
aðgang að lokuðu svæði vegna
eldsumbrota í Bárðarbungu og
eldgoss í Holuhrauni. Þarna hafi
verið á ferðinni þrettán frétta-
menn og tæknimenn. Fjórtán
mönnum er heimilt að vera á
svæðinu í einu. Má einnig segja
að gerðar hafi verið meiri kröf-
ur til öryggis þeirra. Fréttastof-
an ætlaði sér að nota einungis
þyrlur við flutninga á fólki en við
gerðum kröfu um að einnig væri
hægt að flytja fólk á jörðu niðri.
Því þurfti þessi aðili að kosta
meiru til í þjónustu,“ segir Víðir.
„Allir fá sömu meðferð hjá okkur
og enginn hefur hingað til fengið
neina sérmeðferð.“
- sa
ABC fékk leyfi til að senda út morgunþátt við gosstöðvarnar í Holuhrauni:
Engar reglur brotnar við leyfið
HOLUHRAUN ABC-fréttastofan sendi morgunþátt sinn Good morning America frá
lokuðu svæði við Holuhraun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VÍÐIR
REYNISSON
VEISTU SVARIÐ?
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
9
C
-D
B
E
0
1
3
9
C
-D
A
A
4
1
3
9
C
-D
9
6
8
1
3
9
C
-D
8
2
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K