Fréttablaðið - 03.02.2015, Qupperneq 8
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
STJÓRNMÁL Nýr sendiherra, Robert
C. Barber, kom í fyrsta sinn til
Íslands föstudaginn 23. janúar síð-
astliðinn. Hann ætlar að nýta tím-
ann til að skoða landið vel, fyrst
Reykjavík og nágrenni, en segist
vonandi síðar geta skoðað allt landið.
Bandarískum ferðamönnum
hefur fjölgað verulega hérna á
landi. Spurður út í það segir Barber
að það þýði vissulega að verkefnum
sendiráðsins fjölgi. „Það er ýmis-
legt sem við getum hjálpað með og
gerum allt sem við getum. Ég held
að Bandaríkjamenn séu í öðru sæti
þegar kemur að fjölda ferðamanna
á Íslandi og það er frábært. Þetta er
allt fólk sem er að koma hingað af
góðri ástæðu. Við vildum gjarnan
ná fyrsta sætinu.“ En hann bendir
líka á að það sé tækifæri til að fjölga
íslenskum ferðamönnum í Banda-
ríkjunum og hann vilji gjarnan ýta
undir þá þróun.
Hann segist líka gjarnan vilja
leggja sitt af mörkum við að auka
viðskipti milli ríkjanna. „Það er
beggja hagur að viðskiptin aukist.“
Barber bendir á að hann hafi
reynslu af því að starfa með
nýsköpunarfyrirtækjum, litlum og
meðalstórum fyrirtækjum og unnið
með frumkvöðlum. „Ég hlakka til
að verða talsmaður á mörgum ólík-
um sviðum, þar á meðal viðskipta-
sviðinu,“ segir sendiherrann.
Barber segist hafa átt fjölda
funda síðan hann kom hingað til
lands og margir þeirra hafi verið
viðskiptafundir. Hann hafi meðal
annars fundað með Amerísk-
íslenska viðskiptaráðinu og hitt
forstjóra fjölda fyrirtækja hérna.
„Ég var svo lánsamur að hitta líka
fólk úr viðskiptalífinu, og annars
staðar frá, í móttöku Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, þegar
ég afhenti trúnaðarbréf mitt á mið-
vikudaginn,“ segir hann.
Þá vekur Barber athygli á því að
hann hafi heimsótt Íslenska sjávar-
klasann. „Það er mjög góður hópur
fyrirtækja þar, sem á það sameig-
inlegt að hafa sjálfbærni og hag-
kvæmni að leiðarljósi. Þar eru svo
miklir möguleikar á að flytja þær
vörur og þá þjónustu til Banda-
ríkjanna.“ Ísland eigi líka sókn-
arfæri vegna þekkingar sinnar á
jarðhita. Ekki einungis í samskipt-
um við Bandaríkjamenn heldur við
fleiri aðila. Þessi þekking hafi til
að mynda mikla þýðingu fyrir upp-
byggingu í Eþíópíu.
Samskipti Íslands og Bandaríkj-
anna hafa breyst nokkuð frá því sem
var á tímum kalda stríðsins. Skiptir
Ísland jafn miklu máli fyrir Banda-
ríkin og áður?
„Íslendingar og Bandaríkja-
menn hafa verið miklir bandamenn
í marga áratugi, allt frá því að lýð-
veldið var stofnað. Þjóðirnar eru
miklir bandamenn í NATO og Ísland
skiptir Bandaríkin virkilega máli,“
segir hann. Bandaríkjamenn hafi
kunnað vel að meta þessi tengsl.
„Samskipti þróast með tímanum
og ég get ekki haft áhrif á það sem
hefur gerst fram að þessum tíma.
En ég ætla að gera allt sem ég get
til að auka samskiptin, bæði tví-
hliða samskipti og líka þar sem við
erum hluti af stærri hreyfingum.
Norðurskautsráðið er til að mynda
vettvangur þar sem ég held að hags-
munir Bandaríkjanna og hagsmunir
Íslands fari saman. Það eru margar
leiðir, bæði innan ráðsins og í tví-
hliða samskiptum og sem félagar
í NATO, þar sem Ísland skiptir
Bandaríkin miklu máli. Ég vonast
til að geta stutt við þau samskipti á
meðan ég er hér.“
Barber segir að lokum að Ísland
hafi fylgst vel með þróun mála í
Úkraínu og Bandaríkjamenn kunni
vel að meta það. Hann segist hafa
hitt Gunnar Braga Sveinsson utan-
ríkisráðherra á föstudagsmorgun.
„Honum hefur verið mjög umhugað
um þetta mál og hann hefur verið
skýr í afstöðu Íslands til deilunnar
í Úkraínu. Bandaríkin kunna vel að
meta það. Ísland hefur boðið fram
stuðning sinn, ekki bara í orðum
heldur líka með gjörðum.“
jonhakon@frettabladid.is
Afstaða Íslands til Úkraínu er skýr
Robert Barber, sendiherra Bandaríkjanna, vonast til þess að geta nýtt reynslu úr fyrri störfum til þess að styðja við aukin viðskipti Banda-
ríkjanna og Íslands. Hann varð heillaður í heimsókn sinni til Íslenska sjávarklasans og segir Íslendinga geta nýtt þekkingu sína á jarðhita.
SENDI-
HERRANN
Robert C.
Barber kom
til Íslands í
fyrsta skipti
23. janúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
afsláttur af vítamínum til 12. feb.20%
PIP
AR
\T
BW
A
•
SÍ
A
www.apotekarinn.is
Vissir þú að kalk
og D-vítamín eru
bestu vinir?
Apótekarinn mælir með neyslu D-vítamíns
með kalki. D-vítamín eykur frásog á kalki
í þörmum.
Ég ætla að
gera allt sem ég
get til að auka
samskiptin,
bæði tvíhliða
samskipti og
líka þar sem
við erum hluti
af stærri
hreyfingum.
ATVINNUMÁL Frá stofnun VIRK –
Starfsendurhæfingarsjóðs hafa
3.800 einstaklingar, af þeim
7.700 sem til sjóðsins hafa leitað,
„útskrifast“ eða lokið þjónustu
frá sjóðnum. Fram kemur á vef
sjóðsins að við útskrift hafi 74
prósent þeirra verið virk á vinnu-
markaði.
Þessir tæplega þrír fjórðu
útskrifaðra hafi þá ýmist farið
beint í launað starf, virka atvinnu-
leit eða í lánshæft nám. Þá komi
fram í þjónustukönnun VIRK að
77 prósent svarenda telji í lok þjón-
ustu að hvatning ráðgjafa VIRK
hafi styrkt fyrirætlun þeirra um
að snúa aftur til vinnu.
Í lok síðasta árs notuðu um 2.400
einstaklingar þjónustu VIRK. Á
árinu komu 1.783 nýir inn, sam-
kvæmt upplýsingum sjóðsins,
tæpum níu prósentum fleiri en
2013 þegar 1.639 einstaklingar leit-
uðu til VIRK. „1.066 einstaklingar
luku þjónustu 2014, um 18,5 pró-
sent fleiri en 2013 en þá útskrif-
uðust 899,“ segir á vef VIRK. Þar
segir jafnframt að vísbendingar
séu um að aðsókn að VIRK gæti
verið að ná jafnvægi eftir mikinn
vöxt undanfarin ár. - óká
HJÁ VIRK VIRK er
sjálfseignarstofnun
sem ASÍ og SA stofn-
uðu í maí 2008, en
í ársbyrjun 2009 var
svo gerð ný stofn-
skrá með aðkomu
stéttarfélaga og
atvinnurekenda á
opinberum vinnu-
markaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Um 3.800 einstaklingar af 7.700 hafa frá upphafi útskrifast frá VIRK :
Þrír fjórðu virkir á vinnumarkaði
Ár Fjöldi
2010 1.155
2011 1.304
2012 1.236
2013 1.639
2014 1.783
Heimild: ASÍ
➜ Skráningar hjá
VIRK síðustu ár
ÚKRAÍNA Uppreisnarmenn í aust-
anverðri Úkraínu segjast ætla að
kalla fjölda manns til liðs við sig
til að berjast við úkraínska stjórn-
arherinn og stuðningssveitir hans.
Alexander Sakhartsjenkó, leið-
togi uppreisnarmanna, segir að leit-
að verði til sjálfboðaliða og liðsöfn-
unin eigi að hefjast innan tíu daga.
„Þetta er gert til þess að stækka
her okkar upp í hundrað þúsund
manns,“ sagði hann við fjölmiðla.
„Það þýðir ekki að við ætlum að
bæta við okkur hundrað þúsund
manns, heldur að her alþýðulýð-
veldanna í Donetsk og Luhansk
verði samtals 100 þúsund manna
lið.“
Hörð átök hafa verið í landinu
undanfarnar vikur. Tilraunir til
þess að semja um vopnahlé hafa
allar farið út um þúfur og engin
lausn er í sjónmáli.
Breska ríkisútvarpið BBC hefur
eftir Christopher Miller, blaða-
manni í Úkraínu, að afar ólíklegt
sé að nægilega margir sjálfboða-
liðar fáist. Líklegra sé að fá eigi
fleiri rússneska hermenn til liðs
við úkraínsku uppreisnarmennina.
Rússnesk stjórnvöld hafa ávallt
neitað því að rússneskir hermenn
hafi farið til Úkraínu að berj-
ast, en bæði úkraínsk og vestræn
stjórnvöld hafa ítrekað fullyrt að
þúsundir rússneskra hermanna
hafi barist með uppreisnarliðinu.
- gb
Uppreisnarmenn í Úkraínu búa sig undir átök:
Liðsauki kallaður út
ÚTFÖR Í KÆNUGARÐI Úkraínskir hermenn bera félaga sinn til grafar, en hann féll í
átökum við uppreisnarmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
9
C
-D
6
F
0
1
3
9
C
-D
5
B
4
1
3
9
C
-D
4
7
8
1
3
9
C
-D
3
3
C
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K