Fréttablaðið - 03.02.2015, Page 16
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Í NÆRSAM-
FÉLAGINU
„Með verkefninu er
horft til nágranna-
landa þar sem
þjónusta við geð-
fatlaða og einstak-
linga með geðrask-
anir fer að mestu
fram í nærsam-
félaginu. Þar fara
þeir helst inn á
sjúkrahúsin sem
þurfa á bráðainn-
lögnum að halda.“
Geðheilsustöðin í Breiðholti hlaut nýlega Nýsköpunarverðlaunin 2015 í opinberri þjónustu og
stjórnsýslu. Verðlaunin voru afhent
í fjórða sinn en í ár voru um 50 verk-
efni tilnefnd. Í rökstuðningi valnefndar
segir meðal annars að „Geðheilsustöð-
in í Breiðholti sé tímamótaverkefni í
þjónustu við geðfatlaða. Með Geðheilsu-
stöðinni er ætlunin að veita heildræna
þjónustu fullorðnum einstaklingum sem
greindir hafa verið með geðraskanir
og draga m.a. þannig úr innlögnum á
geðsvið Landspítalans.“
Að sögn Sigríðar Hrannar Bjarnadótt-
ur, geðhjúkrunarfræðings og verkefna-
stjóra Geðheilsustöðvar Breiðholts,
hafa verðlaunin töluverða þýðingu fyrir
starfsmenn og þjónustu stöðvarinnar.
„Verðlaunin stuðla vonandi að því að
vekja meiri athygli á verkefninu svo
hægt sé að styrkja það enn frekar, því
auðvitað má gera enn betur til að auka
gæði þjónustunnar. Vonandi verða þau
einnig hvatning til að útfæra sams kon-
ar starfsemi fyrir aðra hluta Reykjavíkur
og önnur sveitarfélög.“
TVÆR STOÐIR
Hún segir einnig að mikilvægt sé að
vekja athygli almennt á samfélagsgeð-
þjónustu og þeirri nauðsyn að sam-
hæfa þjónustu sem þegar sé til staðar í
þessum málaflokki. „Víða í Reykjavík og
í öðrum sveitarfélögum er verið að gera
frábæra hluti og nokkur samfélagsgeð-
teymi eru nú þegar starfandi víða. Þó
er mikilvægt að samhæfa betur og setja
stefnu varðandi þjónustuna.“
Að sögn Sigríðar er starfsemi Geð-
heilsustöðvarinnar tímamótaverk-
efni þar sem starfsemi hennar hvíli á
tveimur meginstoðum; það er heilbrigð-
is- og félagsþjónustu. „Verið er að færa
þjónustuna enn frekar út í nærsam-
félagið með samvinnu félagsþjónust-
unnar og geðheilbrigðisþjónustunnar.
Með verkefninu er horft til nágranna-
landa þar sem þjónusta við geðfatlaða
og einstaklinga með geðraskanir fer
að mestu fram í nærsamfélaginu. Þar
fara þeir helst inn á sjúkrahúsin sem
þurfa á bráðainnlögnum að halda. Víða
erlendis er einnig ríkari hefð fyrir þéttri
samvinnu félags- og heilbrigðiskerfis,
stofnana í nærumhverfi og þriðja stigs
stofnana sem sjúkrahúsin eru.“
SKILVIRKARI ÞJÓNUSTA
Með meiri samvinnu þeirra stofnana
sem eru í nærsamfélaginu segist Sig-
ríður vonast til þess að skilvirkni þjón-
ustunnar aukist til þeirra sem eiga við
geðrænan vanda að stríða, að boðleiðir
verði styttri og betri yfirsýn fáist yfir þá
þjónustu sem er í boði í þjóðfélaginu.
Fjölmargir starfsmenn með fjöl-
breyttan bakgrunni koma að starfs-
semi Geðheilsustöðvarinnar að sögn
Sigríðar. „Að verkefninu koma meðal
annars hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar,
félagsráðgjafar, iðjuþjálfi, geðlæknir, sál-
fræðingur og tveir fyrrverandi notendur
geðþjónustunnar sem starfa sem lið-
veitendur við geðheilsustöðina.“
Starfsemi Geðheilsustöðvarinnar
í Breiðholti er samvinna geðteymis
Heimaþjónustu Reykjavíkur og Þjón-
ustumiðstöðvar Breiðholts. Að verk-
efninu kemur stýrihópur sem í eru full-
trúar frá Embætti landlæknis, geðsviði
Landspítalans, Velferðarsviði Reykjavík-
urborgar, Þjónustumiðstöð Breiðholts
og Heimaþjónustu Reykjavíkur.
Að Nýsköpunarverðlaunum í opin-
berri þjónustu og stjórnsýslu standa
fjármála- og efnahagsráðuneytið, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga, Félag
forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Stofnun
stjórnsýslufræða og stjórnmála við Há-
skóla Íslands. ■ starri@365.is
TÍMAMÓTAVERK-
EFNI VERÐLAUNAÐ
NÝSKÖPUN Með starfssemi Geðheilsustöðvarinnar í Breiðholti er þjónusta
við fólk með geðraskanir færð út nærsamfélagið til hagsbóta fyrir alla aðila.
MIKIL REYNSLA
Fjölmargir starfsmenn
með ólíka menntun og
starfsreynslu koma að
starfi Geðheilsustöðv-
arinnar í Breiðholti.
BETRI ÞJÓNUSTA „Verið er verið að færa þjónustuna enn frekar út í nærsamfélagið með samvinnu félagsþjónustunnar og geðheilbrigð-
isþjónustunnar,“ segir Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Geðheilsustöðvar Breiðholts. MYNDIR/VALLI
Þóra Guðlaug Ásgeirsdóttir,
hómópati og brautryðjandi í sölu
heilsuvara, rak ásamt eiginmanni
sínum verslunina Heilsuhornið á
Akureyri til fjölda ára.
„Ég starfa í dag sem hómópati
og hef í gegnum tíðina ráðlagt
fjölda fólks inntöku á Solaray-
bætiefnum. Þar sem ég þekki
gæðin, þá get
með góðri sam-
visku ráðlagt
öðrum Sol-
aray.“
„Sunny
Green Chloro-
phyll eða
blaðgrænu,
ráðlegg ég
fyrst og
fremst
vegna
hreins-
andi
eiginleika
hennar
fyrir
líkam-
ann. Hún
inniheld-
ur líka
fjölmörg
víta-
mín og
steinefni.
Chloro-
phyll er líka mjög húðverndandi.
Mörgum finnst sérlega jákvætt
hvað hún virkar vel á andremmu
og þá er hún best svona fljót-
andi. Sunny Green-línan, sem er
partur af framleiðslu Solaray, er í
sérstöku uppáhaldi hjá mér.“
CHLOROPHYLL LIQUID
● Hreinsar og hressir líkamann
● Inniheldur fjölmörg vítamín og
steinefni
● Fær húðina til að ljóma
● Er góð gegn andremmu
Solaray-bætiefni fást í apótekum og
heilsuvöruverslunum.
HREINSAR LÍKAMANN
HEILSA KYNNIR Þóra Guðlaug Ásgeirsdóttir hómó-
pati mælir með vörunum frá Solaray.
ÞÓRA GUÐLAUG ÁSGEIRSDÓTTIR
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
FYRI
R DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
Skipholti 29b • S. 551 0770
Allar yfirhafnir
á útsölu komnar á
50% afslátt
ÚTSALA!
ÚTSALA!
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
9
C
-D
2
0
0
1
3
9
C
-D
0
C
4
1
3
9
C
-C
F
8
8
1
3
9
C
-C
E
4
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K