Fréttablaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 20
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 2 3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Sími 512 5457 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is S íðasta ár var ár milli- stærðarbílanna í Evr- ópu. Bílar eins og Volkswagen Golf, Skoda Octavia, Toyota Auris og Peugeot 308 seldust gríðarlega vel og sala þeirra, sem og margra annarra bíla í þessum stærðar- flokki, tók stórt stökk. Einstaka bílar í þessum flokki voru með gríðarmikla söluaukningu. Góð dæmi um þetta er að sala Seat Leon jókst um 60%, Peugeot 308 um 59% og Skoda Octavia um 27%. Ekki átti þetta þó við alla bíla í þessum flokki, en sala sumra, sérstaklega bíla sem farn- ir eru að eldast af núverandi kyn- slóð, minnkaði. Dæmi um það eru Hyundai i30 með 15% minnkun, Renault Megane með 10% minnk- un og Opel/Vauxhall með 9% minnkun. Söluaukning þeirra bíla sem gekk best að selja gerði þó mun meira en að vega upp sölu þeirra bíla sem seldust ver en á árinu 2013 og því varð mikil aukning í flokkn- um. Spá sumir því reyndar að heild- arsalan í flokknum muni falla úr þremur milljónum bíla í Evrópu í fyrra í 2,9 milljónir bíla í ár. Mikil velgengni Volkswagen-bíla öl- skyldunnar Gengi Volkswagen-bílafjölskyld- unnar var gríðarlega gott í þess- um flokki í fyrra og voru bílar fyr- irtækisins með 51% sölunnar í álfunni. Komu þar mest við sölu bílarnir Volkswagen Golf, Skoda Octavia, Skoda Rapid og Seat Leon. Frá 2010 hefur Skoda Octavia farið úr sjötta sæti í sölu í flokknum og upp í það þriðja. Skoda Rapid seld- ist 114% betur í fyrra en árið 2013. Í Þýskalandi var fór sala Skoda Octavia upp fyrir sölu Ford Focus, en Focus var samt í öðru sæti allra bílgerða í sölu í Evrópu. Þýska- land er orðið stærsti sölumarkað- ur Skoda-bíla á eftir heimalandinu Tékklandi. Sala Skoda Rapid fór á árinu í fyrra upp fyrir sölu bíla eins og Citroën C4 og Kia cee’d og er það til vitnis um frábært gengi í sölu Skoda-bíla. Sala Seat Leon fór upp úr áttunda sæti söluhæstu bíla í flokknum í Evrópu og upp í það sjötta með sölu á 113.537 bílum. HELDUR VELGENGNI BÍLA AF MILLISTÆRÐ ÁFRAM? Bílar frá Volkswagen-bílafjölskyldunni voru með 51% sölunnar í Evrópu í flokki bíla í millistærð. Skoda Rapid með 114% aukningu. S ubaru er þessa dag- ana að kynna nýja kyn- slóð hins fjölhæfa Sub- aru Outback, bíls sem hæfir vel íslenskum aðstæðum og selst hefur mjög vel hér á landi til margra ára. Fjölmörg- um bílablaðamönnum er nú boðið að reyna bílinn í Ljubliana í Sló- veníu og var bílablaðamaður Fréttablaðsins og Vísis á meðal þeirra í síðustu viku. Var bíllinn bæði reyndur í ófærð og á ágæt- um vegum Slóveníu og Ítalíu og verður ekki sagt annað en að eina ferðina enn hafi Subaru tekist að smíða bíl sem þjónar næstum öllum þörfum ökumanna, ekki síst þeirra sem krefjast mikillar drifgetu, flutningsrýmis, öryggis og þæginda farþega. Outback sameinar margt Þessi bíll sameinar nefnilega svo margt. Fyrir það fyrsta er hann frábær er kemur að erfiðari að- stæðum og þar sem hann er bæði háfættur og búinn rómuðu fjór- hjóladrifi Subaru er hann afar hentugur bíll þar sem snjór og erfiðari vegir mæta ökumönnum. Hann er mjög rúmgóður bíll sem fer létt með vísitölufjölskylduna á ferðalagi og með mikið flutnings- rými. Hann er einn öruggasti bíll sem hægt er að eignast, en Subaru hefur einfaldlega fengið hæstu einkunn öryggisstofnana um heim allan fyrir allar bílgerðir sínar. Magnaður Eyesight-öryggis- búnaður Með nýjum Eyesight-öryggis- búnaði, sem enginn annar bíla- framleiðandi státar af, er Out- back orðinn enn þá öruggari og er þar á ferð staðalbúnaður. Eye- sight er athyglisverður búnað- ur sem styðst við tvær mynda- vélar sem greina hættu með þrí- víðum hætti og getur tekið yfir stjórnbúnað bílsins ef hættu ber að höndum. Hreint magnað var að prófa þennan búnað þar sem ekið var hratt að aðsteðjandi hættu og öllum pedölum sleppt og taugarn- ar þandar. Bíllinn brást fullkom- lega við og stöðvaðist sjálfur áður en að árekstri kom. Subaru Out- back verður sem fyrr boðinn með dísil- og bensínvél og báðar af box- er-gerð, eins og í öllum öðrum gerðum Subaru-bíla. Reynsluakst- ursgrein um nýja kynslóð Subaru Outback mun brátt birtast í bíla- blaðinu. NÝ KYNSLÓÐ SUBARU OUTBACK Á LEIÐINNI Er laglegri en síðasta kynslóð og útlitið sem afturhvarf til fortíðar. Með Subaru Outback af árgerð 2015 er horfið aftur til fortíðar í útliti bílsins. Ford átti ekki eitt af sínum betri árum í fyrra en hagnaðurinn minnkaði um 56% frá árinu 2013. Ford hagnaðist um 429 milljarða króna í fyrra en 965 milljarða árið áður. Fjórði árs órðungur síðasta árs var Ford ekki fengsæll, en á honum varð aðeins sjö milljarða króna hagnaður, en 402 milljarða hagnaður árið 2013. Ljósið í myrkrinu var að þessi  órðungur var sá 22. í röð sem Ford hagnast og er því hálft sjötta ár síðan tap var á rekstri Ford á einum árs órðungi. Ford tapaði markaðshlutdeild á heimamarkaði í Bandaríkjunum og var með 14,9% markaðarins við enda árs en 15,9% við árslok 2013. Á móti kom að hlutdeild Ford í Kína jókst úr 4,1% í 4,5% á milli ára. Tekjur Ford í heild í fyrra minnkuðu um 2% og námu 19.310 milljörðum króna. Framlag af veltu Ford lækkaði frá 5,4% í 3,9% á milli ára og það telur Ford ekki viðunandi. Hagnaður Ford í Bandaríkjunum minnkaði ekki eins mikið og á alheimsvísu, en þó samt um 22%. Þessi minnkaði hagnaður Ford verður til þess að meðalarðgreiðslur á hvern hluthafa í Ford minnkar úr 8.800 dollurum í 6.900. Spáin fyrir hagnað þessa árs hljómar upp á 1.140 til 1.270 milljarða króna. Ford hefur miklar væntingar með nýja kynslóð síns best selda bíls heima fyrir; Ford F-150, sem nú er byggður að mestu úr áli, en hluti skýringarinnar á minnkuðum hagnaði síðasta árs var að Ford þurfti að leggja niður framleiðslu á bílnum til að breyta verksmiðjunum sem hann er framleiddur í. Kostnaður vegna innkallana vó einnig drjúgt í lækkun hagnaðar. Hagnaður Ford minnkaði um 56% í fyrra Þekktasta einstaka keppnin í mótaröðinni til heimsmeistara í rallakstri er án vafa Monte Carlo Rally og fylgir sigri í henni mikill heiður. Ekki minnkar sá heiður ef þar vinnst þrefaldur sigur, en það var einmitt það sem Volkswagen náði fyrir skömmu. Það voru ökumennirnir Sebastian Ogier, Jari-Matti Latvala og Andreas Mikkelsen sem óku allir Volkswagen Polo-bílum og einokuðu verðlaunapallinn í þessari fyrstu keppni nýhafi ns keppnistímabíls í rallakstri. Ogier hafði sigur, Latvala varð annar og Mikkelsen þriðji. Þetta er í annað sinn sem Volkswagen tekst að fylla verðlaunapallinn í einni keppni WRC, en það tókst einnig í Ástralíu í fyrra. Volkswagen hóf að keppa í World Rally Championship (WRC) árið 2003 og hefur átt afar góðu gengi að fagna síðan. Sigur Ogiers var sannarlega á heimavelli, en á einni sérleiðinni ók hann fram hjá fæðingarstað sínum í Saint Julien-skóginum. Ogier sigraði einnig í rallakstrinum í Monte Carlo í fyrra og var reyndar í öðru sæti, rétt á eftir Sebastian Loeb, árið þar á undan. Þrefaldur sigur eins bíla- framleiðanda í Monte Carlo Rally hefur áður náðst fi mm sinnum. Fyrst náði Renault-Alpine því árið 1973, svo Lancia Stratos árið 1976, þá Audi Quattro árið 1984, svo aftur Lancia, með Delta Integrale-bíl sinn árið 1989, og loks Citroën árið 2003. Þá óku fyrir Citroën ekki ófrægari menn en Sebastian Loeb, Colin McRae og Carlos Sainz. Það vekur nokkra athygli að sigursælir bílar frá Subaru, Mitsubishi, Toyota og Ford hafa ekki náð þreföldum sigri í Monte Carlo Rally, þrátt fyrir að hafa á tíma haft mikla yfi rburði í World Rally Championship. Volkswagen með þrefaldan sigur í Monte Carlo Rally Skoda Octavia 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -E 0 D 0 1 3 9 C -D F 9 4 1 3 9 C -D E 5 8 1 3 9 C -D D 1 C 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.