Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 24
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
6 3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR
OPEL CORSA
Finnur Thorlacius reynsluekur
O
pel Corsa á sér langa
sögu, en hann kom
fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1982.
Corsa er nú að koma
af fimmtu kynslóð
en hann er að sönnu
mikill magnsölubíll. Hann hefur
selst í 12,3 milljónum eintaka
frá upphafi og er fyrir vikið afar
mikilvægur bíll fyrir Opel, enda
stendur hann fyrir þriðjungi allr-
ar sölu Opel. Opel Corsa er mest
selda einstaka bílgerð sem fram-
leidd er af öllum þýsku bílafram-
leiðendunum og selst hann í um
250.000 eintökum á ári bara í
Evrópu. Opel Corsa má einnig
finna undir nafni Vauxhall í Bret-
landi og um tíma einnig undir
merkjum Holden í Ástralíu. Svo
vel hefur gengið að selja Opel
Corsa af síðustu kynslóð hans,
þeirri fjórðu, að útlit hans nú er
líkt og örlítil uppfærsla frá þeim
bíl. En það segir þó alls ekki alla
söguna, því breytingar eru á svo
til hverjum einasta hlut í bílnum.
Opel Corsa fæst sem fyrr bæði
sem þriggja og fimm dyra bíll, en
í báðum útfærslum fimm manna.
Hann er 4,02 metra langur, en
flestir bílar í B-stærðarflokki eru
nálægt þeirri lengd.
Frábær þriggja strokka bensínvél
Undirvagn bílsins er allur nýr,
stífleiki hans hefur aukist og
fjöðrunin er orðin sportlegri og
stífari. Reyndar má breyta hegð-
un hennar með Comfort- og Sport-
stillingu og fæst meiri tilfinning
fyrir vegi með Sport-stillingunni.
Til að auka á aksturshæfni bíls-
ins hefur hann verið lækkaður um
fimm millimetra frá vegi. Allar
þessar breytingar frá fyrri kyn-
slóð virðast hafa aukið aksturs-
getu bílsins og fyrir vikið er fer-
lega skemmtilegt að henda honum
um göturnar, ekki síst um góðar
götur Þýskalands þar sem hann
var reyndur og þar fannst honum
býsna gaman að leika sér. Lík-
lega er enginn bíll í B-flokki hæf-
ari til þess nema ef vera skyldi
Ford Fiesta og Volkswagen Polo,
en þeir eru einnig rómaðir fyrir
akstursgetu. Ein þeirra bensín-
véla sem í boði verður í Corsa er
1,0 lítra og þriggja strokka vél
með forþjöppu sem fæst í tveim-
ur útfærslum, 90 og 115 hestafla.
Þessi vél er hrikalega spræk þrátt
fyrir lítið sprengirými og öflugri
gerð hennar gerir Corsa að rak-
ettu og gleður mjög ökumenn með
þungan bensínfót. Þá er einnig
í boði 4-strokka, 1,4 lítra og 100
hestafla vél, líka með forþjöppu.
Óhætt er að mæla með þriggja
strokka vélinni umfram þá stærri,
sérlega í öflugri útfærslu hennar.
Einnig er rétt að mæla með bein-
skiptingu umfram sjálfskiptingu
og spara í leiðinni aur. Opel Corsa
mun einnig fást með 1,3 lítra dísil-
vél í tveimur útfærslum, 75 og 95
hestafla og eyða þær svo litlu sem
3,2 lítrum. Skemmtilegust þeirra
allra er öflugri 3-strokka vélin.
Með hana undir húddinu leggur
maður ekki frítt í stæði, en það á
við dísilvélina, sem aðeins meng-
ar 88 g/km.
Lítið breyttur að utan
en þess meira að innan
Eins og fyrr sagði er útlits-
breyting Opel Corsa ekki mikil,
en samt verður að segja að öllu
því sem þó hefur verið breytt
hafi verið til góðs. Hann er með
fegurra og grimmara nef og
hann hefur fengið lánaða flotta
neðri hliðarlínuna frá Opel In-
signia. Breytingin að aftan er
sáralítil, en þó má helst greina
á milli kynslóðanna með ljós-
unum. Ef til vill hefur Opel
verið hrætt við að breyta bíln-
um mikið, rétt eins og Volks-
wagen með Golf, en báðir eiga
það sameiginlegt að hafa selst
mjög vel af síðustu kynslóð.
Opel hefur tekist að stækka
innanrými Corsa þrátt fyrir
að bíllinn hafi ekki lengst og
hann stendur undir nafni sem
5-manna bíll þrátt fyrir að vera
í B-stærðarflokki. Langmesta
breytingin á bílnum frá fyrri
kynslóð er hvað innréttingu
hans varðar. Hún er orðin ári
lagleg, þó svo efnisval gæti nú
verið ríkulegra. Erfitt er þó að
leysa plast af með leðri, burst-
uðu stáli, viði eða öðru fíneríi
í bíl á þessu verði. Greinilegt
er að Corsa hefur fengið margt
að láni í innanrýminu frá enn
minni bróður sínum, Adam, og
er það hið besta mál. Hreint
magnað er að sjá hve innanrými
bílsins er gott og ekki geta aft-
ursætisfarþegar kvartað undan
fóta- eða höfuðrými. Farangurs-
rými er 285 lítrar og er á pari
við flesta aðra bíla í stærðar-
flokknum.
Eitthvað um verðið
Helstu samkeppnisbílar Opel
Corsa eru Ford Fiesta, Volks-
wagen Polo, Renault Clio, Peu-
geot 208, Kia Rio og Toyota
Yaris. Fiesta kostar frá
2.390.000 (65 hestöfl), Polo frá
2.310.000 (75 hestöfl), Clio frá
2.360.000 (75 hestöfl), Peugeot
208 frá 2.290.000 (68 hestöfl),
Rio frá 2.550.000 (75 hestöfl)
og Yaris frá 2.740.000 ( hest-
öfl). Opel Corsa mun kosta frá
2.690.000 og er því í hærri kant-
inum í þessum flokki bíla. Hafa
verður í huga að um mjög vel
búinn bíl er að ræða og með öfl-
ugri vél en flestir hinna. Bíla-
búð Benna mun hefja sölu á
Opel Corsa kringum tuttugasta
þessa mánaðar.
GERBREYTT CORSA EN
ÚTLITIÐ LÍTIÐ BREYTT
Svo til hverjum einasta hlut hefur verið breytt. Fæst nú með
skemmtilegri 1,0 lítra og 115 hestafla þriggja strokka vél.
www.yamaha.is
Léttasti fjórgengissleðinn frá Yamaha til þessa.
Frábærir aksturseiginleikar.
Eigum örfáa sleða til afhendingar strax.
umboðsaðili
á Akureyri
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
9
C
-B
9
5
0
1
3
9
C
-B
8
1
4
1
3
9
C
-B
6
D
8
1
3
9
C
-B
5
9
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K