Fréttablaðið - 03.02.2015, Síða 24

Fréttablaðið - 03.02.2015, Síða 24
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 6 3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR OPEL CORSA Finnur Thorlacius reynsluekur O pel Corsa á sér langa sögu, en hann kom fyrst fram á sjónar- sviðið árið 1982. Corsa er nú að koma af fimmtu kynslóð en hann er að sönnu mikill magnsölubíll. Hann hefur selst í 12,3 milljónum eintaka frá upphafi og er fyrir vikið afar mikilvægur bíll fyrir Opel, enda stendur hann fyrir þriðjungi allr- ar sölu Opel. Opel Corsa er mest selda einstaka bílgerð sem fram- leidd er af öllum þýsku bílafram- leiðendunum og selst hann í um 250.000 eintökum á ári bara í Evrópu. Opel Corsa má einnig finna undir nafni Vauxhall í Bret- landi og um tíma einnig undir merkjum Holden í Ástralíu. Svo vel hefur gengið að selja Opel Corsa af síðustu kynslóð hans, þeirri fjórðu, að útlit hans nú er líkt og örlítil uppfærsla frá þeim bíl. En það segir þó alls ekki alla söguna, því breytingar eru á svo til hverjum einasta hlut í bílnum. Opel Corsa fæst sem fyrr bæði sem þriggja og fimm dyra bíll, en í báðum útfærslum fimm manna. Hann er 4,02 metra langur, en flestir bílar í B-stærðarflokki eru nálægt þeirri lengd. Frábær þriggja strokka bensínvél Undirvagn bílsins er allur nýr, stífleiki hans hefur aukist og fjöðrunin er orðin sportlegri og stífari. Reyndar má breyta hegð- un hennar með Comfort- og Sport- stillingu og fæst meiri tilfinning fyrir vegi með Sport-stillingunni. Til að auka á aksturshæfni bíls- ins hefur hann verið lækkaður um fimm millimetra frá vegi. Allar þessar breytingar frá fyrri kyn- slóð virðast hafa aukið aksturs- getu bílsins og fyrir vikið er fer- lega skemmtilegt að henda honum um göturnar, ekki síst um góðar götur Þýskalands þar sem hann var reyndur og þar fannst honum býsna gaman að leika sér. Lík- lega er enginn bíll í B-flokki hæf- ari til þess nema ef vera skyldi Ford Fiesta og Volkswagen Polo, en þeir eru einnig rómaðir fyrir akstursgetu. Ein þeirra bensín- véla sem í boði verður í Corsa er 1,0 lítra og þriggja strokka vél með forþjöppu sem fæst í tveim- ur útfærslum, 90 og 115 hestafla. Þessi vél er hrikalega spræk þrátt fyrir lítið sprengirými og öflugri gerð hennar gerir Corsa að rak- ettu og gleður mjög ökumenn með þungan bensínfót. Þá er einnig í boði 4-strokka, 1,4 lítra og 100 hestafla vél, líka með forþjöppu. Óhætt er að mæla með þriggja strokka vélinni umfram þá stærri, sérlega í öflugri útfærslu hennar. Einnig er rétt að mæla með bein- skiptingu umfram sjálfskiptingu og spara í leiðinni aur. Opel Corsa mun einnig fást með 1,3 lítra dísil- vél í tveimur útfærslum, 75 og 95 hestafla og eyða þær svo litlu sem 3,2 lítrum. Skemmtilegust þeirra allra er öflugri 3-strokka vélin. Með hana undir húddinu leggur maður ekki frítt í stæði, en það á við dísilvélina, sem aðeins meng- ar 88 g/km. Lítið breyttur að utan en þess meira að innan Eins og fyrr sagði er útlits- breyting Opel Corsa ekki mikil, en samt verður að segja að öllu því sem þó hefur verið breytt hafi verið til góðs. Hann er með fegurra og grimmara nef og hann hefur fengið lánaða flotta neðri hliðarlínuna frá Opel In- signia. Breytingin að aftan er sáralítil, en þó má helst greina á milli kynslóðanna með ljós- unum. Ef til vill hefur Opel verið hrætt við að breyta bíln- um mikið, rétt eins og Volks- wagen með Golf, en báðir eiga það sameiginlegt að hafa selst mjög vel af síðustu kynslóð. Opel hefur tekist að stækka innanrými Corsa þrátt fyrir að bíllinn hafi ekki lengst og hann stendur undir nafni sem 5-manna bíll þrátt fyrir að vera í B-stærðarflokki. Langmesta breytingin á bílnum frá fyrri kynslóð er hvað innréttingu hans varðar. Hún er orðin ári lagleg, þó svo efnisval gæti nú verið ríkulegra. Erfitt er þó að leysa plast af með leðri, burst- uðu stáli, viði eða öðru fíneríi í bíl á þessu verði. Greinilegt er að Corsa hefur fengið margt að láni í innanrýminu frá enn minni bróður sínum, Adam, og er það hið besta mál. Hreint magnað er að sjá hve innanrými bílsins er gott og ekki geta aft- ursætisfarþegar kvartað undan fóta- eða höfuðrými. Farangurs- rými er 285 lítrar og er á pari við flesta aðra bíla í stærðar- flokknum. Eitthvað um verðið Helstu samkeppnisbílar Opel Corsa eru Ford Fiesta, Volks- wagen Polo, Renault Clio, Peu- geot 208, Kia Rio og Toyota Yaris. Fiesta kostar frá 2.390.000 (65 hestöfl), Polo frá 2.310.000 (75 hestöfl), Clio frá 2.360.000 (75 hestöfl), Peugeot 208 frá 2.290.000 (68 hestöfl), Rio frá 2.550.000 (75 hestöfl) og Yaris frá 2.740.000 ( hest- öfl). Opel Corsa mun kosta frá 2.690.000 og er því í hærri kant- inum í þessum flokki bíla. Hafa verður í huga að um mjög vel búinn bíl er að ræða og með öfl- ugri vél en flestir hinna. Bíla- búð Benna mun hefja sölu á Opel Corsa kringum tuttugasta þessa mánaðar. GERBREYTT CORSA EN ÚTLITIÐ LÍTIÐ BREYTT Svo til hverjum einasta hlut hefur verið breytt. Fæst nú með skemmtilegri 1,0 lítra og 115 hestafla þriggja strokka vél. www.yamaha.is Léttasti fjórgengissleðinn frá Yamaha til þessa. Frábærir aksturseiginleikar. Eigum örfáa sleða til afhendingar strax. umboðsaðili á Akureyri 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -B 9 5 0 1 3 9 C -B 8 1 4 1 3 9 C -B 6 D 8 1 3 9 C -B 5 9 C 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.