Fréttablaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 26
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
8 3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR
F
ram að þessu hafa fáir
bílar frá Porsche verið
búnir forþjöppu. Þar
á bæ hefur ríkt nokk-
ur tregða við að nota
forþjöppur nema í
allra öflugustu gerð-
ir bíla fyrirtækisins. Því hafa
flestar vélar Porsche verið „nat-
urally aspired“ eins og sagt er
upp á enska tungu um vélar sem
hvorki fá aðstoð frá forþjöppum
né keflablásurum. Á þessu verð-
ur brátt breyting og frá og með
árgerð 2016 verða svo til allir
bílar Porsche búnir forþjöppu.
Ástæða þessarar stefnubreyting-
ar Porsche eru sífellt strangari
reglur um mengun bíla. Porsche
á í raun enga undankomuleið þar
sem forþjöppuvæðing er skilvirk-
asta leiðin til að minnka eyðslu
bíla þeirra án þess að afl þeirra
minnki. Í leiðinni mun Porsche
minnka sprengirými flestra
sinna bíla, en engu að síður mun
afl þeirra bara aukast.
Sá síðasti án forþjöppu
Stutt er í að næsta árgerð Porsche
911 GT3 RS komi á markað og
verður það síðasti bíll þeirrar
gerðar frá Porsche sem ekki mun
hafa forþjöppu í vélarhúsinu. Bíll-
inn verður slétt 500 hestöfl og með
bættu loftflæði ætti þessi bíll, sem
sérhannaður er fyrir brautarakst-
ur, að skera minnst 5 sekúndur af
7:20 tímanum sem hann hefur náð
á Nürburgring-brautinni. Næsta
gerð af hefðbundnum Porsche 911
Carrera mun sem sagt fá forþjöppu
og minna sprengirými, en Porsche
911 Carrera S heldur sínu 3,8 lítra
sprengirými en með aðstoð for-
þjöppu mun hann skila 520 hest-
öflum. Það er á pari við núverandi
Porsche 911 Turbo. Porsche hefur
einnig látið hafa eftir sér að stytt-
ast fari í rafmagnsútfærslu 911
bílsins. Boxster- og Cayman-bílar
Porsche munu einnig fá forþjöpp-
ur, en aðeins fjögurra strokka
vélar.
PORSCHE FORÞJÖPPUVÆÐIST
Frá og með árgerð 2016 verða svo til allir bílar Porsche búnir
forþjöppu. Næsta gerð Porsche 911 GT3 er þó án forþjöppu.
Lars Wrebo, forstjóri framleiðslu og innkaupa, ásamt Peter Mertens,
forstjóra rannsókna og þróunar hjá Volvo, sjást hér í fyrsta nýja Volvo
XC90. Samkvæmt upplýsingum frá Brimborg er stefnt að því að afhenda
fyrstu bílana hér á landi í júlí. „Það er gríðarlegur áhugi fyrir nýja Volvo
XC90 enda markar hann stór tímamót hjá Volvo. Við fáum einungis
takmarkaðan ölda bíla fyrst um sinn og við hvetjum því áhugasama til
að hafa samband við okkur í tíma til að tryggja sér einn af fyrstu Volvo
XC90. Í fyrstu lotu koma bílar með dísilvélinni en síðar koma bílar með
tengiltvinnvélinni. Það er þó hægt að panta báðar gerðir strax,“ segir
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
G
engi McLaren-
liðsins í Formúlu
1 hefur ekki tal-
ist gott að undan-
förnu, en þetta sig-
ursæla lið endaði í
fimmta sæti á síð-
asta keppnistímabili. McLaren
státar af 12 titlum ökumanna,
átta titlum sem bílasmiðir og
182 sigrum í einstökum keppn-
um Formúlu 1, engum þó frá
2012. Því ættu aðdáendur liðs-
ins að kætast við nýjustu frétt-
ir úr herbúðum liðsins, en það
hefur endurnýjað kynnin við
Honda. Á næsta keppnistíma-
bili verður sem sagt Honda-vél
í bílum McLaren, í fyrsta sinni í
23 ár. McLaren verður eina liðið
sem verður með vél frá Honda,
nafn hennar er RA615H og er
hún forþjöppudrifin. Hún er
vonandi nægilega öflug til að
verma Mercedes Benz-liðinu
undir uggum en það lið drottn-
aði yfir keppninni í fyrra. Það
er þó ekki bara vélin sem verð-
ur ný af nálinni hjá McLaren
– bíll McLaren fær nýja trjónu
og nýja fjöðrun og afturend-
inn verður ekki eins
breiður og í fyrra.
Einnig verður bíll-
inn öðruvísi mál-
aður og fær marg-
ar nýjar
aug-
lýs-
ingar,
meðal
ann-
ars frá Mobil 1, SAP, Tag Heuer,
Johnnie Walker, Hilton, CNN
og KPMG, auk þess sem auð-
vitað verður auglýs-
ing frá Honda. Öku-
menn McLaren á kom-
andi keppnistímabili
verða Fernando Alonso
og Jenson
Button.
MCLAREN ENDURNÝJAR
KYNNIN VIÐ HONDA
Hætti með Honda-vélar fyrir 23 árum en tekur nú upp þráðinn
eitt liða í Formúlu 1-kappakstrinum næsta tímabil.
Á bílasýningunni í Chicago, sem hefst 12. febrúar, ætlar Kia að kynna
nýjan jeppling sem bæði verður drifi nn áfram af hefðbundinni bensínvél
sem og rafmótorum. Bíllinn verður órhjóladrifi nn og Kia segir að hann
sé mjög seigur torfærubíll með fremur grófgert útlit. Samkvæmt því gæti
hann verið líkt og Kia Soul á sterum, en víst er að hann er þó nokkuð
háfættari en Kia Soul. Þessi bíll á að henta fólki sem eyðir mestum tíma
sínum innan borgarmarkanna, en hefur engu að síður þörf fyrir bíl sem
treysta má á erfi ðari slóðum stöku sinnum. Þessi hugmyndabíll Kia er
því ekki ýkja arri hugmyndafræðinni bak við Mitsubishi Outlander, sem
einnig er tvinnbíll sem fær á að vera um að fara ótroðnar slóðir. Báða
þessa bíla er ódýrt að reka þar sem flestir þeir kílómetrar sem þeim er
ekið eru eingöngu á rafmagni.
Kia kynnir nýjan tvinnjeppling
Volvo framleiðir nú XC60, XC70 og XC90 Cross Country-bílana og eru
tveir þeirra fyrstnefndu upphækkaðar útfærslur af V60- og V70-bílum
Volvo, en XC90 er nýkynntur bíll og eini jeppinn sem Volvo framleiðir.
Volvo framleiðir einnig V40-, S60- og S80-bílana og hefur nú í hyggju
að bjóða allar bílgerðir sínar í Cross Country-útfærslu. Styttast fer þó í
S90-bíl sem leysa mun af hólmi S80-fólksbílinn og því verður ný Cross
Country-gerð hans líklega hækkuð gerð þess bíls. Einnig er ekki langt að
bíða nýs V90-bíls sem leysa mun af hólmi núverandi V70-wagon, en Volvo
mun einnig bjóða Cross Country-útfærslu þess bíls. Framleiðsla Volvo
verður því frekar einföld, fi mm fólksbílagerðir sem allar munu einnig fást í
Cross Country-útfærslu og svo jepplingurinn XC60 og jeppinn XC90.
Fleiri Cross Country frá Volvo
Söguleg stund hjá Volvo
Porsche 911 GT3 árgerð 2015.
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
9
C
-B
E
4
0
1
3
9
C
-B
D
0
4
1
3
9
C
-B
B
C
8
1
3
9
C
-B
A
8
C
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K