Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.02.2015, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 03.02.2015, Qupperneq 39
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2015 | LÍFIÐ | 19 Talið er að Hollywood-leikar- inn Bradley Cooper og fyrirsæt- an Suki Waterhouse, ætli að búa saman í London. Cooper ætlar að frumsýna Broadway-leikritið sitt The Ele- phant Man á West End í London í maí og orðrómur er uppi um að á meðan á sýningunum stendur ætli hann að búa þar með kær- ustunni. „Það hefur alltaf verið draum- ur Bradleys að stíga á svið í West End en það þýðir að hann getur einnig búið með Suki. Hann er að leita að leiguíbúð og ræðir þetta allt saman við hana. Bradley er yfir sig ástfanginn,“ sagði heim- ildarmaður The Sun. Ætla að búa saman í London KÆRUSTUPAR Bradley Cooper og Suki Waterhouse hafa verið saman í tvö ár. NORDICPHOTOS/GETTY Kate Winslet segist aldrei hafa notað bótox eða látið setja í sig fyllingar. „Nei, alls ekki. Það er þetta ótrúlega töfraefni Lan- côme’s Visionnaire Cx. Þú heldur að ég segi það bara af því að ég er andlit merkisins en satt best að segja þá verðurðu að trúa mér,“ sagði leikkonan í viðtali við breska tímaritið Harper´s Bazaar. „Þetta efni er töfrum líkast. Ég ber það á mig á hverjum degi og maður sér virkilegan mun. Ég verð 39 ára í næstu viku, þannig að ég þarf á allri mögulegri hjálp að halda.“ Hefur aldrei notað bótox KATE WINSLET Hollywood-leikkonan notar töfraefni til að halda sér unglegri. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrir alla húðliti FULLKOMIN LITGREINING MEÐ NÝJUSTU TÆKNI. Digital iMatch Shade Finder Í dag og á morgun frá kl. 11.00 – 17.00 verða sérfræðingar frá Estée Lauder með iMatch myndavél og litgreini sem segir til um og greinir hvaða farði, púður og hyljari hentar þinni húð og þínum húðlit, þér að kostanaðarlausu. Glæsilegur kaupauki fylgir kaupum á öllum förðum frá Estée Lauder. 25% afsláttur af förðunarvörum frá Esteée Lauder. Brian May, gítarleikari einnar þekktustu rokkhljómsveitar heims, glímir við þráláta flensu. Hljóm- sveitin Queen er á tónleikaferða- lagi um Evrópu og eftir tónleika sveitarinnar var gítarleikarinn ekki hress. May, sem er 67 ára gamall, við- urkenndi að hann hefði átti mjög erfitt með að klára tónleikana sem á eftir fylgdu í Köln og Amster- dam, en hann þvertók fyrir að hætta við að koma fram. „Mér hefur sjaldan liðið eins illa á tónleikum,“ skrifaði May á blogg- síðu sveitarinnar eftir tónleikana í Köln þann 29. janúar. „Ég nældi mér í slæma flensu eftir Parísar- tónleikana og hef verið með hita, beinverki og höfuðverk síðan. Ég tók svo mikið af verkjalyfjum að ég gleymdi hvar ég var í kringum „Crazy Little Thing“ og var orð- inn alveg ruglaður í „Bohemian Rapsody“,“ bætti hann við. May er nú búinn að ná fullri heilsu á ný og sendi aðdáendum þakkir fyrir batakveðjurnar á Twitter. Brian May lætur fl ensuna ekki stöðva sig Gítarleikari hljómsveitarinnar Queen fékk slæma fl ensu á miðri tónleikaferð. LÆTUR EKKERT STOPPA SIG Gítarleikarinn Brian May er enn með þetta. 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -C 3 3 0 1 3 9 C -C 1 F 4 1 3 9 C -C 0 B 8 1 3 9 C -B F 7 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.