Fréttablaðið - 03.02.2015, Page 42

Fréttablaðið - 03.02.2015, Page 42
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22 Dagskrá: Erasmus+ menntun • Nám og þjálfun • Samstarfsverkefni Menningaráætlun ESB - Creative Europe Kynningin hefst kl. 12:00 með léttu hádegissnarli. Skráning á www.erasmusplus.is Nám og þjálfun: Umsóknarfrestur til 4. mars 2015 Samstarfsverkefni: Umsóknarfrestur til 31. mars 2015 Erasmus+ mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun ESB veitir skólum, stofnunum, félagasamtökum, sveitarfélögum og Menningaráætlun ESB - Creative Europe styrkir menningarstofnanir hvers konar, bókaútgefendur, menningarmiðstöðvar, Fimmtudaginn 5. febrúar kl.12:00 – 13:30, Borgartúni 30, 6. hæð Kynningin verður einnig send út á vefnum Kynningarfundur í Reykjavík Tækifæri og styrkir í Evrópusamstarfi Erasmus+ og Creative Europe H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n SPORT HANDBOLTI Umræðan í kringum lið Katar á nýafstöðnu HM er ekk- ert sérstaklega jákvæð. Það var áhugavert að þjálfarar og leik- menn margra liða veigruðu sér við að ræða dómgæsluna í leikj- um liðsins á mótinu. Pólverjar sprungu þó eftir undanúrslitaleik- inn gegn Katar. Þeir klöppuðu hæðnislega fyrir dómurunum eftir leikinn og einn þeirra sagði að allir gætu séð að það hafi verið löngu búið að ákveða úrslit leiksins. Hann sagði líka að dómarar leiksins ættu aldrei að fá að dæma aftur. „Ég get ekki fullyrt neitt um spillingu en ég get sagt mína skoð- un. Mér fannst lykta af því að það væri verið að dæma viljandi með Katar,“ segir Kjartan Steinbach en hann var formaður dómara- nefndar Alþjóðahandknattleiks- sambandsins, IHF, í ein átta ár og þekkir þessi mál vel sem og menn- ina sem standa í kringum dómara- málin. „Það var farið að túlka regl- urnar öðruvísi núna. Þessi túlkun gerir það að verkum að ef dómar- arnir vilja vera óheiðarlegir þá geta þeir falið það betur.“ Þegar komið var út í útsláttar- keppnina fannst flestum áhorf- endum sem það hallaði verulega á andstæðinga Katar. Kjartan er sammála því. „Ef við teljum frá 16-liða úrslit- unum þá fannst mér Katarbúar hagnast á dómgæslunni í öllum þremur leikjum sínum á leið í úrslitin. Þetta lítur út eins og að þeim hafi verið hjálpað í úrslit,“ segir Kjartan en hann segir aftur á móti að Katarar hafi ekki feng- ið dómgæsluna áberandi með sér í úrslitaleiknum gegn Frökkum. Katar vann þrjá leiki í útslátt- arkeppninni til þess að komast í úrslit. Dómararnir í þeim leikjum voru frá Króatíu, Makedóníu og Serbíu. Feðgar með völdin Formaður dómaranefndar EHF, Dragan Nachevski, var þar að auki eftirlitsmaður á ritaraborð- inu í leikjum Katar í átta liða og undanúrslitaleiknum. Hann er líka í dómaranefnd IHF og sonur hans var annar dómaranna í leiknum í 8-liða úrslitunum gegn Þýskalandi. „Mér fannst það mjög undarlegt. Ég hefði aldrei samþykkt að hafa kallinn á borðinu þegar sonurinn er að dæma ef ég hefði enn verið að stýra málum þarna. Ég hefði enn síður samþykkt að hafa hann á borðinu í undanúrslitaleiknum og þá var hann í þeirri stöðu að ráða öllu á ritaraborðinu,“ segir Kjartan. Þó svo ekki margir hafi þorað að tjá sig á HM þá býst Kjartan við því að menn fari að gera það núna. „Það munu ýmsir menn opna sig. Menn sem vildu ekki opna munn- inn í Katar. Okkar þjálfarar í Katar með erlendu liðin fóru til að mynda mjög varlega í öllu sem þeir sögðu. Það var ekki fyrr en eftir undanúrslitaleikinn sem menn létu í sér heyra. Einn Pólverjinn var þá dæmdur í sex mánaða bann og það bann er byggt á skýrslu Dragans Nachevski. Það veit ég. Ég held að sú umræða sem fer í gang núna verði þess valdandi að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af dómgæsl- unni þegar upp er staðið.“ henry@frettabladid.is ÞAÐ VAR LYKT AF SPILLINGU Kjartan Steinbach, fyrrverandi formaður dómaranefndar Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, segir að dómgæslan í leikjum Katar á heimsmeistaramótinu hafi verið heimamönnum í hag í útsláttarkeppninni. Kjartan segir ýmislegt annað hafa verið undarlegt. SVEKKTIR Pólverjar voru brjálaðir eftir að hafa tapað fyrir Katar í undanúrslitum HM. Kjartan er á innfelldu myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI „Ég veit ekki hvort fólk þorir ekki að fara á móti honum, en ég er með margar hugmyndir sem ég vil koma fram og tel mig alveg tilbúinn í þetta.“ Þetta segir Jónas Ýmir Jónas- son, 38 ára starfsmaður Suður- bæjarlaugar og knattspyrnuáhuga- maður, við Fréttablaðið, en Jónas Ýmir hefur boðið sig fram til for- manns KSÍ. Hann fer því upp á móti Geir Þorsteinssyni, sitjandi formanni, sem hefur sinnt starfinu síðan 2007. „Hann er búinn að vera formað- ur í átta ár og unnið frábært starf, en nú er kominn tími á breyting- ar. Það hefur enginn gott af því að vera of lengi í starfi. Mér finnst að kjörtímabilið ætti að vera fjögur ár í senn og menn mættu mest sitja tvö kjörtímabil,“ segir Jónas. Síðar í vikunni ætlar að Jónas Ýmir að koma á framfæri hug- myndum sínum um framtíðar- stefnu KSÍ, en það er þó eitt sem brennur hvað helst á honum. „Þetta virðist vera svolítið lokuð klíka. Ég vil opna þetta meira og t.a.m. opna bókhaldið og leyfa fólki að sjá í hvað peningarnir fara. Geir hefur gert margt gott, en samt eru hlutir sem þarf að laga og bæta. Framboð mitt opnar allavega á umræðu um þessa hluti og það er gott fyrir alla að breyta hugsunarhætti sínum. Ekkert varir að eilífu,“ segir Jónas Ýmir. Hann segist hafa fengið stuðn- ing eftir að framboðið var kynnt í gær og býst við meiri stuðningi síðar í vikunni þegar hann kynn- ir sínar hugmyndir. Jónas hefur íhugað lengi að fara í framboð. „Ég hugsaði þetta fyrir síðustu formannskosningar en augljós- lega gerði ég ekkert í því þá. Ég hef pælt í þessu síðustu tvö ár og lét verða af þessu núna. Það hafa allir gott af smá samkeppni og það á líka við um formann KSÍ,“ segir Jónas Ýmir, skellir svo upp úr og bætir við í gamni: „Ekki meir, Geir.“ Jónas hefur verið knattspyrnu- áhugamaður frá blautu barns- beini og mætt á nær alla leiki liðs- ins í þrjá áratugi. „Ég var þarna líka í gegnum erfiðu tímana. Við pabbi eru miklir FH-ingar þó ég sé líka í mikilli Haukafjölskyldu. Þó við séum FH-ingar þá eru engin vandamál í fjölskyldunni,“ segir hann léttur í bragði. Jónas er í sambúð með Hjör- dísi Pétursdóttur, geislafræðingi á Landspítalanum, en þau hafa verið í sambandi í 19 ár. Þau eiga tvö börn: Stúlku sem er sex ára og dreng sem er þrettán ára. „Strákurinn hefur ekki mikinn áhuga á fótbolta en sú litla æfir bæði handbolta og fótbolta með FH. Það er mikil íþróttaástríða í henni eins og pabba sínum,“ segir Jónas Ýmir Jónasson. tomas@365.is Gott að opna umræðuna Jónas Ýmir Jónasson býður sig fram á móti Geir Þorsteinssyni sem formaður Knattspyrnusambands Íslands. Vill leyfa fólki að vita hvað gerist hjá KSÍ. FRAMBOÐ Jónas Ýmir Jónasson ætlar í framboð gegn sitjandi formanni KSÍ. Kosið verður á ársþingi sambandsins 14. febrúar næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 9 C -D B E 0 1 3 9 C -D A A 4 1 3 9 C -D 9 6 8 1 3 9 C -D 8 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.