Fréttablaðið - 03.02.2015, Síða 46

Fréttablaðið - 03.02.2015, Síða 46
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26 MORGUNMATURINN „Ég fæ mér undantekningarlaust grænan djús á morgnana. Aðra hverja helgi, þegar ég er að opna á Kaffihúsi Vesturbæjar, fæ ég mér þó nýbakað pain au chocolate.“ Fríða Dís Guðmundsdóttir söngkona Íslenska kvikmyndin Nei er ekk- ert svar verður sýnd á skemmti- staðnum Húrra í kvöld. Mynd- in, sem kom út í lok árs 1995, var mjög umdeild á sínum tíma. Hún var ekki gefin út á myndbandi eftir sýningar í bíó og hefur verið nánast ófáanleg. „Við þekktum bara aðila sem tengist fram- leiðslu myndar- innar og hann gat út vegað okkur „master“ af myndinni, sem er ekki gömul léleg VHS-útgáfa heldur „orginal“ af filmunni,“ segir Jóhann Ævar Grímsson, sem ásamt Hugleiki Dagssyni stendur fyrir sýningunni. Þeir eru með þáttinn Hefnend- urnir á Alvarpinu og standa fyrir bíókvöldum fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði, þar sem þeir að eigin sögn sýna „óhreinu börnin“ í kvikmyndasögunni. „Þessi mynd hlaut þann vafasama heiður að vera fyrsta leikna íslenska myndin sem var bönnuð börnum yngri en sextán ára. Það mætti nú mögulega mótmæla því þar sem margar verri myndir voru öllum leyfðar á undan þessari,“ segir hann. Með aðalhlutverk í myndinni fóru þær Heiðrún Anna Björns- dóttir, sem lék sveitastelpuna Siggu, og Ingibjörg Stefánsdótt- ir fór með hlutverk Dídíar syst- ur hennar. Myndin verður sýnd á Húrra klukkan 20 í kvöld og eru allir velkomnir, frítt inn og popp í boði hússins. - asi Grófu upp Nei er ekkert svar Hefnendurnir sýna „óhreinu börnin“ í kvikmyndasögunni á bíókvöldum. JÓHANN ÆVAR GRÍMSSON BAKARÍSATRIÐIÐ Hér má sjá Ingibjörgu Stefánsdóttur í hlutverki sínu ásamt Helgu Brögu Jónsdóttur. „Þetta byrjaði þegar við lásum grein á netinu, ég og maðurinn minn, þá var einhver kona í Bandaríkjunum sem áttaði sig á því að þau hjón- in ættu ekkert félagslíf, þau voru nýbúin að eignast barn og höfðu ekki mikinn tíma til þess að fara út og svona og ákváðu því að bjóða fólki bara heim til sín,“ segir Ásdís Eir Símonardóttir og skellihlær. Hún hefur ásamt manni sínum, Sigurði Páli Guðbjartssyni, hald- ið matarboð með óvenjulegu sniði. Hjónin ákváðu í kjölfar lesturs- ins að halda slík matarboð einn föstudag í mánuði með galopnum gestalista. Matarboðin auglýsa þau á Facebook og gestir skrá sig í Google Docs-skjali en hámarks- fjöldi er sjö manns. Þau sjá því ekki um að bjóða gestunum, held- ur bjóða þeir sér sjálfir. Í matarboðunum er megin- áhersla lögð á góðan félagsskap og hversdagslega stemningu. „Pæl- ingin með þessu var líka að þetta ætti að vera svona „low mainten- ance“, ekki flókið „gourmet“ mat- arboð. Við erum bara með einfalda, góða rétti og gestir geta komið með eitthvað með sér; salat, drykki eða eftirrétt.“ Fram til þessa hafa þau boðið upp á lasanja og spaghettí með kjötbollum en Ásdís segir helstu áskorun matarboðanna fyrir sig fólgna í því að bjóða gestum heim án þess að hafa þrifið heimilið hátt og lágt. Matarboðunum hefur að sögn Ásdísar verið vel tekið og iðulega þétt setið við matarborðið og von- ast Ásdís og Sigurður eftir því að gestalistinn verði enn fjölbreytt- Halda matarboð með galopnum gestalista Ásdís Eir Símonardóttir og Sigurður Páll Guðbjartsson halda matarboð með gal- opnum gestalista þar sem áherslan er lögð á góðan félagsskap og stemmingu. BJÓÐA Í MAT Á sdís og Sigurður halda matarboð með opnum gestalista og mæla með að fleiri prófi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRIMARINÓ ari þegar fram líða stundir og ein- staklingar þeim ótengdir skrái sig og setjist niður til snæðings með þeim. „Í fyrsta skipti sem við héld- um þetta urðu forföll á síðustu stundu. Þá vorum við búin að sjá hverjir voru búnir að læka upphaflega statusinn okkar á Facebook og sáum fólk sem var tilvonandi nágrannar okkar. Þannig vildi til að þetta var fyrr- verandi kærasti systur hans frá unglingsárunum þannig að við buðum þeim bara,“ segir Ásdís og bætir við glöð í bragði: „Svo núna eru þau nágrannar okkar og við heilsumst og spjöllum saman af því að við erum búin að bjóða þeim í matarboð.“ Ásdís segir samræðurnar í matarboðunum lítið vandamál og engar óþægilegar þagnir, því mæli þau hjónin heilshugar með því að fleiri fylgi þeirra fordæmi. gydaloa@frettabladid.is Leikkonurnar Guðrún Bjarnadóttir, Halldóra Rut Baldursdóttir og Hildur Magnúsdóttir vinna nú að leiksýningu sem segja mun sögu einstaklinga sem þekkja til heimilisofbeldis. „Við erum að safna sögum sem hugrakkt fólk er tilbúið að deila með okkur; fólk sem er þolendur, gerendur og aðstandend- ur,“ segja þær, en verkið verður unnið með aðferðum eins konar heimildaleikhúss sem nefnist Verbatim. „Það er ekki spurning að umræðan hefur opnast og það hefur orðið vitundarvakning í samfélaginu,“ segja þær og vilja leggja sitt af mörkum til þess að opna umræðuna um heimilisofbeldi enn frekar. „Við erum að stefna á að setja upp sýn- inguna einhvern tímann í haust. Þetta er bara fyrsta skrefið, að safna þessum sögum og finna fólk sem er tilbúið til þess að deila þeim með okkur.“ Í síðustu viku settu þær inn auglýsingu á Facebook og hafa fengið góð viðbrögð við henni. Þær stefna á að safna fleiri sögum og hvetja bæði konur og karla til þess að hafa samband. Allir þeir sem vilja deila sinni reynslu geta haft samband í gegnum netfangið okkarsog- ur@gmail.com en fyllsta trúnaðar verður gætt við alla vinnslu verksins. - gló Safna saman sögum um heimilisofb eldi Þrjár leikkonur vinna að leiksýningu sem segja mun sögu einstaklinga sem þekkja til heimilisofb eldis. SAFNA SÖGUM Halldóra, Hildur og Guðrún stefna á að setja sýninguna upp næsta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fatnaður kynnanna í Eurovision á laugardagskvöld vakti mikla athygli, þó einkum það að þær Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Guðrún Dís Emilsdóttir voru allar klæddar í svart. Búningahönnuðurinn Filippía Einarsdóttir sá um að fötin á þær. „Ragnhildur var í æðislegum kjól frá Ýri Þrastardóttur og með hálsmen frá 1930. Gunna Dís var í Armani-pallíettujakka og Salka var í skemmtilegu pilsi úr Zara,“ segir Filippía. Hún segir stelpurnar allar vera ólíkar og því sé gaman að kynn- ast þeim og fá að klæða þær. „Við völdum að vinna með litleysu síð- asta laugardag. Smá „tabúla-rasa“ og „gothic“ fíling, en svo verður meira hjarta í þessu næst. Svo má búast við stigvaxandi glam- úr næstu kvöld,“ segir Filippía. Hún segir það skipta höfuðmáli að stelpunum líði vel í fötunum og að orkan sé góð á sviðinu. „Maður er eiginlega kominn með þjóðina beint inn á rúmgafl og það er svo gaman að valda smá fjaðrafoki og heyra skoðanir fólks,“ bætir hún við. - asi Stigvaxandi glamúr Fatnaður Eurovision-kynnanna vakti mikla athygli. GLÆSILEGAR Kynnar keppninnar voru stórglæsilegir og spennandi verður að sjá í hverju þeir verða næst. MYND/RÚV Pælingin með þessu var líka að þetta ætti að vera svona „low mainten- ance“, ekki flókið „gour- met“ matarboð. forsala hefst á morgun 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 9 C -C 3 3 0 1 3 9 C -C 1 F 4 1 3 9 C -C 0 B 8 1 3 9 C -B F 7 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.