Fréttablaðið - 20.02.2015, Side 26
4 • LÍFIÐ 20. FEBRÚAR 2015
Í viku hverri flakka ég á milli grunnskóla og félagsmiðstöðva
og svara nafnlausum spurning-
um nemenda um kynlíf og líkam-
ann. Ég er gjarnan spurð hvort
ég greini mun á spurningum ung-
linga frá því að ég byrjaði með
kynfræðsluna árið 2010 og núna.
Ég er alltaf að hitta nýja unglinga
og spurningarnar eru því gjarnan
þær sömu. Hér eru nýlegar nafn-
lausar spurningar úr kynfræðslu
grunnskólanemenda á aldrinum
13 ára til 16 ára.
Spurning: Er hægt að fá kyn-
sjúkdóm í munninn?
Svar: Það er svo sannarlega
hægt. Kynsjúkdómar smitast með
snertingu slímhúðar og/eða með
blóði. Ef munnmök eru stunduð,
munnur á kynfæri, og kynfærið
er sýkt af kynsjúkdómi þá getur
viðkomandi smitast. Einnig geta
frunsur af munni smitast á kyn-
færi. Það er mælt með því að nota
verjur við munnmök. Ef um ræðir
typpi þá er notaður smokkur. Það
er ein af ástæðum þess að fram-
leiddir eru smokkar með bragði.
Ef um píku ræðir eða rass þá er
mælt með að nota plastfilmu líkt
og tannlæknar nota. Slíkt hefur
ekki verið fáan legt hér á landi og
því er mælt með að klippa smokk
langsum og strengja yfir stað-
inn sem á að sleikja. Ef viðkom-
andi hefur bara stundað óvar-
in munnmök þá yrði það greint
með stroku í hálsi. Ef viðkomandi
stundaði einnig óvarðar samfar-
ir þá ætti að vera nóg að greina
með þvagprufu. Þú getur feng-
ið kynsjúkdóma í hálsinn, rass-
inn og kynfærin og þú getur verið
með nokkra kynsjúkdóma í einu.
Þess vegna skiptir máli að þekkja
kynsjúkdómastöðu viðkomandi
áður en óvarið kynlíf er stundað,
nú eða bara nota smokkinn. Þetta
er kjörið til að ræða frekar með
skólahjúkrunarfræðingnum sem
er sérfræðingur í öllu sem tengist
kynsjúkdómum og verjum.
Spurning: Hvernig veit maður
hvort maður sér tilbúin/n til að
stunda kynlíf?
Svar: Það getur verið vanda-
samt að vita það en ég bjó til gát-
lista fyrir unglinga og gott er að
muna að kynlíf er meira en bara
samfarir. Allt kynlíf byrjar í heil-
anum, hvað segir hann þér? Segir
hann já eða er hann stressaður
og kvíðinn? Heili stýrir kynfær-
um og því þarf hann að vera með
ef þú ert að velta þessu fyrir þér.
Annað, áfengi deyfir kynfæri og
heila og því er mikilvægt að vera
edrú. Ef þú treystir þér ekki til
þess, þá ertu ekki tilbúin/n. Hefur
þú stundað sjálfsfróun? Allt kyn-
líf byrjar á okkur sjálfum og því
þurfum við að þekkja eigin líkama
áður en við stundum kynlíf með
annarri manneskju. Þá vil ég líka
að þú getir talað við bólfélagann
þinn. Spurt hvað viðkomandi þyki
gott og sagt hvað þér þyki gott.
Horfst í augu og spurt hvort ekki
sé allt í lagi og hvort megi halda
áfram. Kynlíf er ákveðinn tján-
ingarmáti fólks og því mikilvægt
að geta talað við bólfélagann.
Getur þú keypt smokka og kanntu
að nota þá? Veistu hvað það er að
fara í tékk? Getur þú leitað til ein-
hvers fullorðins sem þú treyst-
ir til að gefa svar og ráð við kyn-
ferðislegum málefnum? Það getur
margt komið upp á í kynlífi og því
er gott að geta leitað til einhvers
sem svarar spurningum manns á
hreinskilinn og heiðarlegan hátt.
HVENÆR ER RÉTTI
TÍMINN FYRIR KYNLÍF?
Þar sem ég sat og horfði á
undan keppni Eurovision síð-
astliðinn laugardag og dáð-
ist að kraftinum og hæfileik-
unum í dönsurunum sem komu
þar fram, skaut upp í kollinn á
mér gömlum draumi, draumi
um að dansa á stóra sviðinu í
sjálfri Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva. Ég hugsa að
allir dansarar eigi sér þennan
draum, eða allavega þeir dans-
arar sem elska Eurovision eins
og ég og því get ég lítið annað
en samglaðst þeim dönsurum
sem fara út núna með sigurlag-
inu og óskað þeim innilega til
hamingju.
Að mínu mati er dans gull-
falleg og stórkostleg list sem
getur gætt tónlist svo miklu lífi
með því að túlka hana eða texta
hennar. Dansinn getur vakið
miklar tilfinningar innra með
manni, hvort sem þær eru já-
kvæðar eða neikvæðar. En er
hægt að segja að dans sé ein-
ungis listgrein en ekki íþrótt?
Skoðum þetta frá sjónarhorni
dansandi íþróttafræðingsins!
● Dansarar þurfa að búa yfir
gríðar lega miklum líkam-
legum styrk til þess að geta
framkvæmt allar þær hreyf-
ingar sem danshöfundar
leggja fyrir þá.
● Dansarar þurfa að þekkja lík-
ama sinn inn og út og þeir
þurfa að geta spennt og ein-
angrað ákveðna vöðva lík-
amans á meðan þeir slaka á
öðrum.
● Dansarar þurfa að vera katt-
liðugir og hafa mikið og gott
jafnvægi sem og samhæfingu.
● Dansarar þurfa að hafa mjög
mikinn sprengikraft til þess
að geta framkvæmt kraftmik-
il stökk og hopp.
● Dansarar þurfa að búa yfir
mjög mikilli tækni.
● Dansarar þurfa að læra heilu
rútínurnar og dansverkin á
meðan þeir æfa líkamann sem
er gríðarlega mikil heilaleik-
fimi.
● Dansarar þurfa svo síðast en
ekki síst að hafa gott þol, bæði
loftháð þol sem er þol sem
við notum þegar við hreyfum
okkur í lengri tíma og loftfirrt
þol sem er þol sem við notum
þegar við tökum vel á því í
styttri tíma eins og í sprett-
um. Eitt lag, eins og t.d. sigur-
lagið í Eurovision, er yfirleitt
um þrjár mínútur. Ef dansar-
arnir dansa allan tímann, af
fullum krafti, er það nokkurn
veginn eins og að taka þriggja
mínútna sprett á hlaupabrett-
inu. Ég hef allavega aldrei
komið öðruvísi út af sviði en
bullandi sveitt og lafmóð!
Allt þetta þurfa góðir dansar-
ar að geta gert á sama tíma og
þeir dansa í takt, sem er nú ekki
eitthvað sem allir geta, þurfa að
vera tignarlegir, brosa og ekki
láta sjá á sér að þetta sé á nokk-
urn hátt líkamlega erfitt. Nið-
urstaða mín er því sú að góðir
dansarar séu ekki síður topp-
íþróttamenn en listamenn.
Ég hvet alla til að standa upp
úr stólnum í dag eftir að þeir
lesa þetta og taka sporið við
uppáhaldslagið sitt, það bæði
léttir lund og kemur blóðflæð-
inu af stað.
ER DANS ÍÞRÓTT
EÐA LISTGREIN?
Betra blóðflæði
betri heilsa
Fæst í Apótekum
og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf
Vegna stóraukinnar sölu hefur Neogenis lab
lækkað verðið svo um munar
lækka
ð verð
Rauðrófu kristall
100% náttúrulegt ofurfæði
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
Augnkrem ættu að vera í
snyrtivörubúri hverrar konu
og auðvitað karla ef því er
að skipta. Þau eru ekki ein-
ungis til varnar fínum línum,
þreytu og bólgum heldur halda
fyrst og fremst raka á svæð-
inu í kringum viðkvæmt svæði
augnanna. Kremin eru þykk-
ari en venjuleg andlitskrem
og innihalda oft meiri olíu,
húðin á þessu svæði er þynnri
en annars staðar á andlitinu
og þarf því á frekari krafti að
halda. Ótal augnkrem eru til
fyrir alla aldurshópa og húð-
týpur. Fyrir þá sem eru að
byrja að nota augnkrem þá
er algjör óþarfi að nota of
virk krem, þetta snýst fyrst
og fremst um að halda raka á
augnsvæðinu.
Það er örlítil kúnst að setja
á sig augnkrem því ekki er
mælt með því að setja of mikið
því það gerir einungis illt
verra. Settu þunnt lag af krem-
inu á húðina sem liggur á augn-
tóftunum og notaðu baugfing-
urinn til þess. Ástæðan fyrir
því að sá fingur er notaður
er sú að hann er veikastur og
húðin verður ekki fyrir eins
miklu álagi og ef vísifingur
væri notaður. Allra best er svo
að geyma augnkremin í kæli
en kalt kremið getur dregið úr
þrota og baugum.
GLEYMIR ÞÚ AUGUNUM?
Augnkrem eru góð viðbót við daglega húðumhirðu og geta
dregið úr þrota og fínum línum með réttri og reglulegri notkun.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Heilsuvísir
1
9
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
D
-0
2
0
0
1
3
D
D
-0
0
C
4
1
3
D
C
-F
F
8
8
1
3
D
C
-F
E
4
C
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K