Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Qupperneq 7
PRÉTTIR - Pimmtudaginn 16. maí 1991
gerð nemenda birtum við hér tvö
ljóð sem flutt voru í Hamarsskóla og
eru þau langt frá því versta sem
skrifari þessa pistils hefur lesið:
Mamma fer í leikfimi,
á meðan stappar pabbi slubb.
Systir mín hún Eyrún
leitar að nýjum kubb,
en ég held áfram að sauma.
Kartöflurnar eru að verða til.
Tíminn hefur aldrei áður
verið svo lengi að líða.
Hrefna Haraldsdóttir orti þetta
kvæði.
Haust
Á haustin lækkar sólin,
þá detta líka laufin af trjánum
og fuglarnir fljúga til útlanda.
Þá fer systir mín í skóla
og ég líka.
Undir þetta skrifar Daníel.
Ekki var síður fjör í Barnaskólan-
um á sunnudaginn og aðsókn ekki
síðri en í Hamarsskóla. Á skólalóð-
inni var boðið upp á grillaðar pylsur
og innan dyra var margt að gerast.
Hópur nemenda bauð þeim sem það
vildu andlitsmálningu og voru margir
ansi skrautlegir.
Boðið var upp á vöfflur með rjóma
og heitt kakó, sem gestir gæddu sér á
eftir að hafa skoðað handavinnu
nemenda, teikningar og fleira sem
þeir hafa gert í vetur.
Skóladagar eins og grunnskólarnir
hér bjóða upp á eru gott framtak
bæði fyrir nemendur, kennara og þá
sem leggja leið sína í skólana til að
kynna sér hvað þar fer fram.
• Fylgst með skemmtiatriðum í Hamarsskóla.
Um helgina var slegið upp skóla-
dögunt í Hamarsskóla og Barna-
skólanum og kom fjöldi fólks til að
kynna sér afrakstur af vinnu nem-
enda í vetur. Nemendur brugðu á
leik og skemmtu bæði sjálfum sér og
þeim fjölmörgu gestum sem komu.
Hamarsskóli reið á vaðið og var
með sinn skóladag á laugardaginn.
Halldóra Magnúsdóttir skólastjóri
sagði að milli 500 og 600 gestir hefðu
komið að kynna sér það sem fram fer
í skólanum, vinnu nemenda og fleira
á þeirn þremur tímum sem opið var.
„Það var stanslaus straumur frá
klukkan tvö til fimm og það sem
okkur fannst einna mest gaman að
var að það voru ekki eingöngu for-
eldrar nemenda sem komu, ömmur
og afar, frændur og frænkur mættu
líka í stórum hópum,“ sagði Hall-
dóra. Nemendur buðu upp á leiksýn-
ingu, ljóðalestur, söng, látbragðs-
leik, einleik á píanó og ýmsar léttar
uppákomur s.s. spákonu. „Þetta var
mjög vel heppnað og ég held að allir
hafi haft bæði gagn og gaman að
þessu.“ sagði Halldóra að lokum.
Til að gefa smá sýnishorn af Ijóða-
Skólqcfqgar i Hamarsskóla og Barnaskóla:
Míkið líf og ffjör
0 Leikrit í Hamarsskóla.
0 Mikið fjölmenni var á skóladeginum í Barnaskólanum.
0 Þessir krakkar úr Hamarsskóla sýndu látbragðsleik.
0 Þessar stelpur buðu upp á vöfflur og rjóma í Barnaskólanum.
Orðspor
Dís Sigurgeirsdóttir í Las
Vegas. Eyjadísin, Dís Sigur-
geirsdóttir, sem tók þátt í keppn-
inni um titilinn ungfrú ísland á
síðasta ári keppir í nótt um titilinn
miss Universe í Las Vegas. Hún
er verðugur fulltrúi okkar Eyja-
manna, var kjörin Sumarstúlka
Vestmannaeyja fyrir tveimur
árum og var kjörin ungfrú Suður-
land í kjölfar þess.
Hersir í landsliðið. Hersir Sig-
urgeirsson var nýlega valinn. í
landsliðið í eðlisfræði. Keppnin
fer fram í Svíþjóð, seinni hluta
sumars og dvelst Hersir við
æfingar í Reykjavík í sumar.
Sigrún Elsa i 5. sæti. Sigrún
Elsa Smáradóttir, okkar maður í
fegurðarsamkeppni Islands varð
í 5. sæti. í allt tóku 18 stúlkur þátt
í keppninni og mega Eyjamenn
vel una þessum úrslitum.
Kaupa Gott fólk. Ástþór Jó-
hannsson og Hlynur Ólafsson
keyptu nýlega auglýsirjastofuna
Gott fólk sem er ein af stærri
auglýsingastofum landsins.
Guðbrandur hættur. Guð-
brandur Þorkelsson læknir sem
hér hefur starfað síðustu fjögur
ár er hættur. Síðasti starfsdagur
hans var í gær. Aðspurður um
framtíðina sagðist hann reikna
með að fara til Stykkishólms til
að byrja með.
Arnar aðstoðarráðherra? Allar
líkur eru á að Arnar Sigurmunds-
son, framkvæmdastjóri
Samfrosts, verði aðstoðarráð-
herra Þorsteins Pálssonar í sjá-
varútvegsráðuneytinu. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins
hefur Þorsteinn rætt þetta við
Arnar og er boltinn því hjá
honum.
Bæjarsjóður tapaði. Fyrir
bæjarráði á mánudaginn lá niður-
staða úr gerðardómi vegna Sól-
hlíðar 19. Ágreingur kom upp
milli verktaka og bæjarins sem
settur var í gerðardóm og var
hann bænum í óhag.
Bæjarráð óskaði eftir skýring-
um og greinargerð frá tæknideild
um málið.
Lengri opnunartími veitinga-
staða. Áfengisvarnarnefnd mæl-
ir með því fyrir sitt leyti að opnun-
artími Skútans, Höfðans, Hallar-
lundar og Okkar félaganna verði
til klukkan kl. 2:30. Áður hafði
nefndin mælt með því að sami
opnunartími verði um helgar.
Þetta hefur lengi verið baráttumál
veitingastaðanna og bíða þeir
nú ákvörðunar bæjarfógeta.
ÞÓRSMÖRK
Efnt verður til Þórsmerkurferðar dagana 15.-16. júní nk. Gist verður í
skála - varðeldur - grill.
Upplýsingar S 12159.
eyverjar
Erum byrjuö að seljafrábæra ísinn
úr vélinni okkar á ný
Langbesti ísinn í bænum, segja
allir sem smakkað hafa
Veitingaskálinn Friðarhöfn