Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.01.1992, Blaðsíða 3

Fréttir - Eyjafréttir - 23.01.1992, Blaðsíða 3
FRÉTTIR - Fimmtudaginn 23. janúar 1992 J Kaupfélagið Coðahrauni v. TILBOÐSVÖRUR Vorum einnig að fá mikið úrval af BUTONI PASTAVÖRUM 8 WC rúllur á kr. 208,- 12. WC rúllurákr. 265,- Verðum með hið sívinsæla hrossakjöt 2 Eldhúsrúllur á kr. 109,- Hrossa snitsel á 703,- kr. kg. 2 lítra Uppþvottalögur á kr. 109,- Hrossa gullas á 703,- kr. kg. 1 kg. Kornflex á kr. 269,- Munið grilluðu kjúklingana á föstudag ATH! Verðum með opið kl. 10:00 -13:00 á laugardag Alvarlegt bífhjólaslys Mjög alvarlegt umferðarslys varö á sunnudagskvöldið þegar bifhjól lenti í árekstri við bifreið á mótum Heiðarvegar og Bessastígs. Tvennt var á hjólinu og voru bæði flutt á sjúkrahús. Ökumaður var síðar um kvöldið fluttur til Reykjavíkur þar sem gert var að sárum hans. Að sögn lögreglu var henni til- kynnt um slysið rétt fyrir klukkan 7 á sunnudagskvöldið. Tildrög þess voru að bifreiðinni var ekið austur Bessa- stíg áleiðis yfir Heiðarveginn en hjól- inu var ekið suður Heiðarveg og skall á bifreiðinni miðri. Tvennt var á hjólinu og slasaðist ökumaðurinn mjög alvarlega. Var hann fluttur til Reykjavíkur klukkan 9 um kvöldið. Stúlka sem var farþegi meiddist minna. Bifhjólið skemmdist töluvert en bifreiðin er nánast ónýt. Rannsókn slyssins er ekki lokið og lýsir lögreglan eftir vitnum að að- draganda þess og eða slysinu sjálfu. lOOOtonnafsíld Fjórír sfldarbátar lönduðu hér í síðustu viku 1022 tonnum eftir sjö veiðiferðir. Þá lönduðu tveir troll- bátar afla sínum í stöðvarnar og Sighvatur Bjarnason kom með slatta af loðnu. Af síldarbátum landaði Guð- mundur VE mestu 498 tonnum , í tveim löndunum. Guðrún landaði tvisvar, samtals, 255 tonnum og Styrmir landaði einnig tvisvar, sam- tals 179 tonnum, og Kap landaði einu sinni 90 tonnum. 54 tonnum af þorski og ufsa var landað í ísfélagið. Bjarnarey landaði 11 tonnum og Heimaey 43 tonnum. Pá landaði Sighvatur Bjarnason 300 tonnum af Ioðnu hjá FIVE í síðustu viku. VÉLSTJÓRAR Fundur verður haldinn í Básum á morgun. föstudaginn 24. janúar, kl. 20:00. Fundarefni: Öflun heimildar til handa stjórn og trúnaðarmanna- ráði til verkfallsboðunar. Stjórnin • Grútarmengunin út af Eiðinu, sem vart varð við í byrjun vikunnar var greinilega í renjun í gær. Ekki hefur enn tekist að finna hvaðan grúturínn kemur, nema að hann kom úr skolplögninni. Handknattleikur: Nœstu leikir ÍBV Meistaraflokkur karla ÍBV hefur aðeins leikið tvo leiki það sem af er þessu ári en leik ÍBV og Víkings sem átti að fara fram sl. föstudag var frestað vegna veðurs en veðurguð- imir ætla ekki að vera Eyjamönnum hliðhollir í vetur og hefur það komið niður á leikjaprógrammi strákanna. Leikurinn gegn Víking hefur verið settur á 1. feb. n.k. og fer sá leikur fram hér í Eyjum, en næsti leikur ÍBV verður gegn FH í Hafnarfirði n.k. miðvikudag. Það verðurþví um tvo erfiða leiki að ræða, en IBV er nú í 6. sæti og má lítið bera útaf þar sem ekki er langt í næstu lið. Keppn- in á eflaust eftir að vera hörð um sæti í úrslitakeppninni en átta efstu liðin að lokinni deildarkeppninni ná að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Stúlkurnar í ÍBV eiga hins vegar á brattan að sækja og eru þær nú staddar í neðri hluta 1. deildarinnar. N.k. þriðjudag fá stúlkurnar í heim- sókn lið Fram sem skipar nú eitt af efstu sætum deildarinnar og verður þetta mikilvægur leikur fyrir ÍBV því sigur er nauðsynlegur í þessum leik. Það veitir því ekki af stuðningi Eyjamanna nú þegar keppnin er sem allra hörðust svo Eyjamenn nái að halda nafni ÍBV sem hæst á lofti bæði í karla og kvenna flokki. Viðskiptavinir athugið NORÐURHÖFN, VESTMANNAEYJUM Sími: 98-12411, Farsími: 985-28504 Fax: 98-11687 Höfum allt tll línuveiða. Línur, ábót, belgi, baujustangir og krökur. Getum boðið gúmmí- vettlinga á mjög góðu verði. Höfum allar stærðir og gerðirafkeðjum, lásum og annarri járnvöru til togveiða. Einnig blakkir og gilskróka. Getumnú loksins boðið aftur Viking flotvinnu- gallana, fyrstu þrjár sendingarnar seldust uppáeinni viku. REYNIÐ VIÐSKIPTIN auglýsingar íbúð óskast 3ja eða 4ra herbergja íbúð ósk- ast á leigu nú þegar. Upplýsingar © 12849. Barnapössun Getum bætt við okkur börnum hálfan eða allan daginn á reyk- lausum vinnustað. Séríbúð fyrir börnin. Lokaður garður. Lóa og Guðný Boðaslóð 20. Upplýsingar® 12903. Til leigu Tvö herbergi með sérinngangi og sér baði. Leigjast saman eða í sitt hvoru lagi. Upplýsingar © 12281, eftir kl. 19:00. Bíll til sölu Mazda 626 1600, árgerð 1986, ekinn 65.000 km. Fallegur og góður bíll. Verð kr. 550.000,- stgr. Upplýsingar S 12217. Bíll til sölu Toyota Tercel árgerð 1987,4X4, station, lítið ekinn. Upplýsingar S 12695. fbúðtil leigu 70 fm. íbúðtil leigu. Upplýsingar S 92-27208. Þrekhjól óskast Óska eftir að kaupa þrekhjól á sanngjörnu verði. Upplýsingar S 12832. Bíll til sölu Galant árgerð 1986 til sölu. Skipti á ódýrari koma til greina. Upplýsingar S 13007 og ©985-20169. Bíll til sölu Til sölu Chrysler Voyager, árgerð 1991. Upplýsingar S 13141 eða 12666, Birgir Sveinsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.