Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1993, Side 16
Vantar þig pípara
eða plötusmið?
Hafóu þá samband!
Þórarinn Þórhallsson
pípulagninga- og plötusmiður,
Bröttugötu 16, sími 12628.
ÁRSÆLL ÁRNASON ÖKUKENNSLA
húsasmíðameistari Bessahrauni 12, sínú 12169 ÆFINGATÍMAR
MVB Stefán Helgason Brimhólabraut 38
ALHLIÐA TRÉSMÍÐI Sími11522
Jóna IijöryvinsdóUir íekk skot í eyrað ór lot'triHli á Hciöarveginum:
Mildi að ekki varð stórslys
„Ég fékk allt í einu högg á eyrað og
datt mér fyrst að ég hefði fengið
stein í mig. Ég leit í kringum mig og
sá enga krakka og þá hélt fyrst að
ég væri orðin eitthvað rugluð. Þá
sagði Guðný litla, sem var með
mér, -það blæðir úr eyranu á þér.
Ég greip strax um eyrað og fann að
eitthvað var í eyrnasneplinum,“
sagði Jóna Benediktsdóttir sem
fékk kúlu úr loftriffli í sig þar sem
hún var á gangi á Heiðarveginum
ásamt þremur börnum á
þriðjudaginn.
Lögreglan lítur málið mjög
alvarlegum augum og telur að litlu
hafa mátt muna að verra hlytist af.
Málið er enn óupplýst en í gær var
lögreglan komin á slóð sem verið
var að rannsaka.
Jóna fór á Sjúkrahúsið, þar sem
kúlan var fjarlægö úr eyma-
sneplinum. „Mig var farið að gruna
að skotið hefði verið á mig með
teygjubyssu og tilkynnti atburðinn til
lögreglu áður en ég fór upp á Sjúkra-
hús þar sem var tekin röntgenmynd.
Um leið og Einar Jónsson, læknir, sá
hvers kyns var sagði hann að þetta
væri lögreglumál. Vel gekk að ná
kúlunni en læknamir sögðu að mikið
högg hefði þurft til að komast í
gegnum húðina."
Þannig lýsti Jóna atburóinum á
þriðjudaginn í samtali við FRÉTTIR.
Hún var á leið heim til sín og með
henni vom þrjú systkini, Guðný 6 ára,
Ólafur Rúnar .sem verður 4 ára á
mánudaginn og Guðmundur Óskar
sem er á 2. ári. Jóna sagðist þakklát
fyrir það að kúlan skildi ekki hafa
lent í einhverju bamanna og ömgg-
lega hefðu afleiðingamar orðið mun
alvarlegri ef kúlan hefði farið inn í
eyrað eða í auga.
„Ég þakka Guði fyrir að þetta lenti
í mér en ekki krökkunum og það er
mikil Guðsblessun að ekki fór ver,“
sagði Jóna.
Tryggvi Kr. Ólafsson, rannsóknar-
lögreglumaður, sagði að þetta atvik
mjög alvarlegt og er álitið að þama
hafi unglingar verið að verki. „Við
emm komnir á ákveðið spor en það á
eftir að koma í ljós hvort það er það
rétta. Við höfum fengið nokkrar á-
bendingar og emm að vinna úr þeim.
Vil ég hvetja fólk sem getu r ein-
hverjar upplýsingar gefið að hafa
samband við okkur. Loftrifflarafþes-
sari gerð geta verið stórhættulegir
þegar skotið er af stuttu færi og þeir
em skráningarskildir eins og hver
önnur skotvopn,“ sagði Tryggvi.
Snyrtimennskuverðlaun
Á fundi HÚN-nefndarinnar í síðustu
viku var tilkynnt hvaða gata, fyrir-
tæki og hús væru snyrtilegust í
Vestmannaeyjum þetta árið. Farin
var skoðunarferð um bæinn og
skoðaðir þeir möguleikar sem voru
inn í myndinni og komst nefndin að
þeirri niðurstöðu að Bessahraunið
væri snyrtilegasta gatan.
Nefndin mælti með að Samkomu-
húsi Vestmannaeyja, sem er í eigu
Betelsafnaðarins, og Sparisjóði Vest-
mannaeyjum sem snyrtilegustu stofn-
unum.
Snyrtilegustu húseignimar 1993 em
Hilmisgata 1, eign Grétars Jónatans-
sonar og Áslaugar Bjarnhéðinsdóttur
og Kirkjuvegur 20, eign Brynjars
Stefánssonar og Esterar Öskarsdóttur.
Ennfremur ákvaö nefndin að veita
eigendum Kirkjulands við Birkihlíð,
Öldu Ingólfsdóttur og Óskari Ólafssyni
viðurkenningu fyrir endurbyggingu
hússins.
Á vettvangi
Jóna ásamt, Guðnýju, Ólafi Rúnari og Guðmundi Óskari
Sigurmundsbörnum á þeim stað á Heiðarveginum þar sem atvikið átti sér
stað. Skotið kom handan götunnar og er ekki vitað hver þar var að verki.
I)eilt um kostnaö á byggingu nýs íþróttasalar:
Bygginganefnd segir af sér
Bygginganefnd nýs íþróttasalar hefur
sagt af sér þar sem búið er að seinka
framkvæmdum á nýjum íþróttasal
a.m.k. til ársins 1995. Að sögn
Amgríms Magnússonar sem átti sæti
t bygginganefndinni er þetta eðlilegt
framhald því samkvæmt nýjum
rammasamningi er búið að seinka
byggingu salarins. Það sé allsendis
óvíst hvort nefndarmenn séu tiibúnir
aftur í slaginn eftir tvö ár, slíkt eigi
einfaldlega eftir að koma í Ijós.
Amgrímur skrifaði grein í Fréttir í
síðustu viku ásamt Vigni Guðnasyni,
forstöðumanns Iþróttamiðstöðvarin-
nar þar sem þeir birtu úrklippu þar
sem sagt er frá að í Vogum má
Vatnsleysuströnd sé verið að ljúka
byggingu íþróttahúss og sundlaugar.
„Ér þetta ekki síst athyglisvert því í
Vogum búa innan við 700 íbúar en
hér stendur í mönnum að byggja
nýjan íþróttasal, þó hér búi tæplega
5000 íbúar,“ sagði m.a. í greininni.
Heildarkostnaður við alla framkvæm-
dina er 110 milljónir samkvæmt
upplýsingum DV.
Grein þeirra félaga hefur vakið
töluverða athygli. Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri segir að
samkvæmt upplýsingum sem hann
fékk hjá sveitarstjóranum í Vogunum
sé fermetraveró á öllum framkvæmd-
unum 80.158 kr og íþróttasalur hér í
Eyjum á sama einingarverði myndi
kosta rúmar 120 milljónir. I-
þróttasalurinn í Vogum er hinsvegar
tæpir 600 fermetrar, fyrir utan áhorf-
endastæði. „Iþróttasalur, sundlaug,
líkamsræktarsalur, 70 ferm. fund-
arsalur og öll önnur aðstaða í
Vogunum er samalagt 240 ferm.
minni en einungis íþróttasalurinn sem
á að byggja í Eyjum. Byggingastjóm
í Eyjum var að tala um 58.100 kr. fer-
meterinn. Þama er munurinn 22.058
á fermeter sem gerir það aó verkum
að enn munar 33.087.000 á dæminu,"
sagöi Guðjón.
Amgrímur sagði við Fréttir að
alltaf væri hægt að leika sér með tölur
og samanburður Guðjóns sé ekki
réttur. Þegar þetta væri reiknað út á
svipuðum forsendum og bygging-
anefndin hafði áætlað með byggingu
nýs salar hér í Eyjum, þá hefði verið
hægt að byggja nýjan sal fyrir sam-
bærilega upphæð og nefndin áætlaði,
eða um 60 þúsund krónur fermetrinn.
„Ég held að menn ættu að kanna
málin vel áður en þeir fara að gefa út
einhverjar kostnaðartölur," sagði
Amgrímur.
Bifreiðaverkstæði Vestmannaeyja h/f.
Alhliða bifreióaviógeróir - réttingar og sprautun.
Þjónustu- og söluumboð fyrir: Jöftir h/f - Ingvar Helgason h/
NISSAN ■ SUBARU ■ CRYSLER - PEUGE0T - SK0DA
Bílaverkstæði s-12782. - Réttingar og sprautun s: 12958.
BIFREIÐAVERKSTÆÐIVESTMANNAEYJA HF. FLÖTUM 27
Nýsmíði ■ breytingar ■ viðgerðir
Teikna og smíða:
Sólstofur og við-
byggingar, úti-
hurðir, glugga. Þak-
yiðgeröir og girðingar.
Ágúst Hreggviðsson, s: 12170 (verk
stæði) S!ll684(heima).
Húseigendur!
Tökum að okkur nýsmíði og
viðgerðavinnu t.d. þök, glugga,
glerjun og sólhýsi. Hönnum og
gerum tilboð þér að kostnaðarlausi
Ragnar og Björgvins sf.
Sími 13153 og 12953.
Húsasmíðameistarar
Gröfuþjónusta
Einars og Guðjóns
Gröfuþjónusta
og múrbrot.
S: 002-2100
& 002-2129
Heimasími: 4
12022 & 11833.
ÖU almenn heimilistækja
og raflagnaþjónusta.
EINAR HALLGRÍMSSON
Verkstæói aó Skildingavegi 13
S: 13070 & heimas: 12470
Farsími 985-34506.
ÚRVAL-ÚTSÝN
UMBOÐ í EYJUM:
Friófinnur Finnbogason,
símar 11166 og 11450.
VANTAR ÞIG
PÍPARA?
NIPPILL s/f sími 12101
Svavar heimasími 11749
Þorleifur heimasími 11609
A.1 - Anon
Mánudaga:
Byrjendafundir kl. 20:00
Almennir fundir ld. 20:30
Að Heimagötu 24.
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér segir í hús
félagsins að Heimagötu 24: Sunnudaga kí
11:00, mánudaga kl. 20:30, miðvikudaga k!
20:30, fimmtu-daga kl. 20:30, föstudaga kl
23:30 og laugardaga, fjölskyldufundir k!
20:30. Athugið símau'ma okkar sem eru hver
fundardag og hefjast 30 mín. fyrir ákveóin:
fundartíma og er í 2 klst. í senn.
FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR
Umboðsmaður í Eyjum: GÍSLI MAGNÚSSON
Brekastíg 11 sími 98-11909
Nýr sölulisti vikulega
Skrifstofa í Vestmannaeyjum að Heimagöt
22, götuhæð. Viðtalstími kl. 15:30 - I9:0(
þriðjudaga til föstudaga. Skrifstofa í Rvl
Garðastræti 13. Viðtalslími kl. 15:30
19:00, mánudaga. Sími 13945.
Jón Hjaltason, hrl.
Löggiltur fasteignasali