Skessuhorn - 26.09.2007, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 1400 krónur með vsk á mánuði en krónur 1300 sé greitt
með greiðslukorti. Elli og örorkulíf.þ. greiða kr. 1050. Verð í lausasölu er
400 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn:
Alfons Finnsson, Snæfellsnesi 893 4239
Birna G Konráðsdóttir 8645404 birna@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó. Proppé 6590860 kolbeinn@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Augl. og dreifing:
Hekla Gunnarsd. 821 5669 hekla@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson augl@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Leiðarinn
Meðal þeirra mála sem kynnt voru á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga
í síðustu viku var hugmynd um stofnun Markaðsstofu Vesturlands.
Tillagan hlaut ekki eiginlega afgreiðslu, enda hugsuð sem fyrsta kynning,
en liggur nú á borði nýrrar stjórnar SSV sem vafalaust færir hana nær
framkvæmdastigi. Hér í Skessuhorni var hugmynd um Markaðsstofu
kynnt fyrr á þessu ári. Síðan hafa menn verið að velta málinu fyrir sér á
vettvangi ferðaþjónustuaðila, sveitarfélaga og nú síðast Vaxtarsamnings
Vesturlands sem stöðugt vex ásmegin enda úr talsverðu fjármagni að moða.
Nú hillir þannig undir að brýnu hagsmunamáli fyrir Vesturland verði hrint
í framkvæmd.
Hugmyndin er að starfsemi Upplýsinga og kynningarmiðstöðvar
Vesturlands verði breytt í Markaðsstofu Vesturlands og hlutverkið
jafnframt fært út. Innan Markaðsstofunnar rúmist þannig allt markaðs og
kynningarstarf fyrir Vesturland sem landssvæðis, bæði fyrir sveitarfélögin
tíu, hagsmunasamtök og atvinnulíf allt. UKV hefur fram til þessa
einvörðungu sinnt kynningu á ferðaþjónustu á Vesturlandi en stefnt er
að því að Markaðsstofan taki að sér markaðssetningu landshlutans í mun
víðara samhengi. UKV hefur frá stofnun verið rekin sem hlutafélag í 70%
eigu sveitarfélaga og með afar lítilli beinni þátttöku hagsmunaaðila, þ.e.
ferðaþjónustufyrirtækjanna sem þó er unnið fyrir. Slagkraftur í þeirri
starfsemi hefur því verið lítill, þrátt fyrir að þar starfi ágætt fólk. Því er
eðlilegasti hlutur að UKV verði breytt með þessum hætti og fyrirtæki í
ferðaþjónustu sem og öðrum atvinnugreinum komi með myndarlegri hætti
að markaðssetningu Vesturlands. Það eru hagsmunir íbúa á Vesturlandi
að kynning landshlutans verði eins mikil og markviss og kostur er. Því
yrði hlutverk Markaðsstofu mjög fjölþætt og krefjandi og fyrirséð að
rekstur slíkrar kynningarmiðstöðvar mun kosta mikið. Ávinningurinn er
hinsvegar enn meiri ef vel lukkast. Ég sé fyrir mér að Markaðsstofan hafi
aldrei færra starfsmenn en 45 og nái þannig að afkasta miklu í útgáfu og
kynningarstarfi. Verkefnin munu snúast um rekstur gagnagrunna, útgáfu,
miðlun, þátttöku á sýningum og kaupstefnum og vel mætti ímynda sér að
fyrsta stóra verkefnið væri framkvæmd atvinnuvegasýningar vestlenskra
fyrirtækja í Reykjavík, svo dæmi sé tekið. Stofnun og rekstur Markaðsstofu
krefst þess að þau fyrirtæki sem vilja að fyrir þau verði unnið, komi að
stofnun þess með hlutafjárframlagi. Þannig verði dregið úr eignaraðild
þeirra sem ekki hafa beina hagsmuni, eins og sveitarfélaga, og um leið
aukið vægi þeirra sem hafa allt sitt undir að landshlutinn sé vel kynntur.
Reynsla mín segir mér að þá muni ýmsum bregða í brún sem fram til þessa
hafa haldið að sér höndum í eigin kynningarstarfi en nýtt sér óspart vinnu
og dugnað annarra sem kynnt hafa landshlutann.
Í dag fer markaðssetning á Vesturlandi fram með ýmsum hætti og af
ýmsum aðilum. Vafalítið er hún viðamest á vegum Skessuhorns með
vikulegu víðlesnu fréttablaði, fjölsóttum fréttavef og með árlegri útgáfu
ferðablaðs fyrir Vesturland. Tvímælalaust á síðastnefnda útgáfan heima sem
eitt verkefni nýrrar Markaðsstofu, nái hugmyndin á framkvæmdastig. Þá má
nefna markaðsstarf sem í dag er unnið af All Senses ferðaþjónustuklasanum,
á vegum lítilla svæðisbundinna ferðamálafélaga, einstakra sveitarfélaga og
af ótalmörgum öðrum. Öll eiga þau verkefni heima á Markaðsstofu.
Ég fagna því að umræða um stofnun Markaðsstofu Vesturlands er
loks komin af stað. Til að vel takist til þarf hinsvegar að vanda vel til
stefnumörkunar fyrir nýtt félag og ákvarða í upphafi hvaða verkefnum stofan
eigi að sinna og hverjum ekki. Mín skoðun er sú að Markaðsstofan eigi frá
upphafi að líta á Vesturland sem starfssvæði sitt og þannig verði litið framhjá
landfræðilegri skiptingu í Dali, Snæfellsnes, Borgarfjörð og Akranes. Það
er heildarávinningur að þessi fjögur svæði hafi fleira sameiginlegt en SSV
og Skessuhorn, eins og staðan er í dag. Eins og ég hef oft nefnt áður þá
á enginn landshluti fleiri sóknarfæri en einmitt Vesturland. Markaðsstofa
Vesturlands mun styðja við að þau sóknarfæri verði nýtt.
Magnús Magnússon.
Markaðsstofa Vesturlands
Gísli S Ein ars son bæj ar stjóri í fylgd barn
anna.
For stöðu mað ur fram
kvæmda sviðs Borg ar
byggð ar, Sig urð ur Páll
Harð ar son hef ur sagt starfi
sínu lausu og hætt ir 1. nóv
em ber næst kom andi. Páll
S. Brynjars son sveit ar stjóri
sagði í sam tali við Skessu
horn að Sig urð ur Páll væri
bú inn að ráða sig til ann arra starfa
þar sem hann byrj ar 1. nóv
em ber. Aug lýst verð ur eft ir
nýj um for stöðu manni mjög
fljót lega. „Þá hef ur Jón Frið
rik Jóns son sem hef ur ver ið
um sjón ar mað ur fast eigna,
einnig á kveð ið að láta af
störf um hjá sveit ar fé lag inu.
Á kveð ið var á síð asta fundi
byggða ráðs að ráða ekki í hans stað
að svo stöddu, held ur mun Ás geir
Rafns son yf ir taka hluta af verk efn
um hans. Einnig á að út búa starfs
að stöðu fyr ir um sjón ar mann fast
eigna í Safna hús inu í Borg ar nesi
svo það eru mikl ar breyt ing ar í
gangi hjá fram kvæmda sviði sveit ar
fé lags ins,“ sagði Páll sveit ar stjóri.
bgk
Vik urn ar 2. 5. og 8. 12. októ
ber munu nem end ur 10. bekkja
Grunda skóla og Brekku bæj ar skóla
á Akra nesi sinna gang brauta vörslu
í kring um skól ana á morgn ana frá
klukk an 7:40 8:05. Lög regl an
mun halda úti virku um ferð ar eft ir
liti þann tíma sem gang brauta varsl
an stend ur yfir og að stoða nem
end ur. Sam hliða þessu verða unn in
marg vís leg verk efni tengd um ferð
og um ferð ar menn ingu í skól un um.
Öll um nem end um verða t.a.m.
gef in end ur skins merki og mun lög
regl an heim sækja alla ár ganga. Þór
dís Þór is dótt ir, verk efn is stjóri um
ferð ar fræðslu við Grunda skóla
hvet ur nem end ur til að nýta virk
an sam göngu máta, s.s. göngu, til að
ferð ast til og frá skóla og er brýnt
fyr ir for eldra og for ráða menn að
kynna fyr ir þeim ör ugg ar göngu
leið ir og ganga með þeim í skól ann.
Þá eru öku menn beðn ir um að sýna
sér staka var kárni nú þeg ar skyggja
tek ur og minnt á að há marks hraði í
ná grenni skóla er 30 km/klst.
mm
Síð asta föstu dag tóku börn í leik
skól an um Vina bæ í Dala byggð
fyrstu skóflustung una að nýj um
leik skóla í Búð ar dal. Eins og fram
hef ur kom ið í frétt um Skessu horns
hef ur nýr leik skóli ver ið í burð ar
liðn um um nokkurn tíma og eru
nú fram kvæmd ir að hefj ast. Sveit
ar stjórn Dala byggð ar hef ur samið
við Gil bert El ís son um jarð vinn una
og eru þær fram kvæmd ir nú að fara
í gang. Eins og greint hef ur ver ið
frá í Skessu horni bár ust tvö til boð í
vinn una und ir hús ið. Þeim var báð
um hafn að þar sem þau voru langt
yfir kostn að ar á ætl un. Dala menn
brugðu því á það ráð að semja við
verk taka um ein staka verk þætti,
eins og jarð vinnu. Til boð Gil berts
hljóð aði upp á 1.112.000 en fyrri
til boð fyr ir sam an verk þátt hljóð
uðu upp á 3.816.800 og 3.134.100.
Greini legt er því að um mik inn
mun er að ræða.
bgk
Mok að fyr ir nýj um leik skóla
á Akra nesi
Krakk arn ir sem nú eru í leik
skól an um Skáta seli á Akra nesi, en
eiga eft ir að að dvelja í nýj um leik
skóla við Ket ils flöt, mættu gal vask
ir á svæð ið sl. föstu dags morg un til
að taka fyrstu skóflustung urn ar að
leik skól an um. Börn in voru búin
for láta skófl um og áttu ekki í vand
ræð um með verk ið. Ein beit ing in
skein úr svip allra við staddra og þó
að vissu lega mætti sjá á krökk un um
að þeir skemmtu sér vel þá var ekki
nokk ur vafi á að all ir vönd uðu sig
við verk ið. Sum ir vildu klífa hærra
en aðr ir í mold ar haug inn sem mok
að var úr, eins og geng ur og ger ist í
líf inu. Þá voru ekki all ir á eitt sátt
ir um hvert ætti að henda því sem
mok að var; ein hverj ir reyndu að
hækka haug inn, aðr ir mok uðu aft ur
fyr ir sig og einn og einn taldi sjálf
sagt mál að henda mold inni í blaða
mann. Hann gerði sér þó grein fyr
ir al vöru máls ins og kippti sér ekk
ert upp við það.
Eft ir að krakk arn ir höfðu lok
ið sér af tók verk tak inn við starf
inu, bú inn öfl ugri am boð um. Það
er fyr ir tæk ið Betri bær sem sér um
verk ið og á skól inn að verða fok
held ur 31. jan ú ar næst kom andi.
Helm ing ur hús næð is ins, eða þrjár
deild ir, verð ur tek inn í notk un 1.
á gúst á næsta ári.
kóp
Marg ar hend ur vinna létt verk.
Fyrsta skóflustung an að nýj um
leik skóla í Búð ar dal
Gunn ólf ur Lár us son sveit ar stjóri Dala byggð ar í hópi leik skóla barna sem tóku fyrstu
skóflustung una að nýj um leik skóla í Búð ar dal.
Gang brauta varsla tí undu
bekk inga á Akra nesi
Sig urð ur Páll hætt ir hjá Borg ar byggð