Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2008, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 23.01.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23 . JANÚAR Með al þekktra íbúa á Akra nesi um ára bil er Hörð ur Páls son bak­ ara meist ari. Hörð ur var mjög á ber­ andi í bæj ar líf inu um langt skeið, við rið inn bæj arpóli tík ina í tvo ára­ tugi, hafði af skipti af í þrótta mál­ um, skóla mál um og var drif fjöð ur í hin um ýmsu mál um í bæn um. Það var því ekki að ósekju sem Ó laf ur Ragn ar Gríms son for seti Ís lands veitti hon um fálka orð una þann 17. júní fyr ir tæp um fimm árum. Blaða mað ur Skessu horns brá sér í heim sókn til Harð ar og konu hans Ingu Sig urð ar dótt ur á Kirkju­ braut ina á dög un um, en þang að fluttu þau fyr ir skömmu í bjarta og rúm góða íbúð. Þeg ar Hörð ur seg­ ir frá upp vaxt ar ár um sín um á Sauð­ ár króki, þar sem hann ólst upp í svoköll uðu Höfners húsi ­ sem hýsti marg ar fjöl skyld ur, þar af um 30 börn ­ kem ur upp í hug ann að ó líku sé sam an að jafna hjá Herði þá og nú. En svona hafa tím arn ir breyst á rúmri hálfri öld á Ís landi. „Ég fædd ist 27. mars 1933 á Skaga strönd. For eldr ar mín­ ir fluttu svo til Sauð ár króks, þeg ar ég var nokk urra vikna gam all. Við bjugg um þar í hálf gerðu fjöl býl is­ húsi í mikl um þrengsl um. Þetta var á kreppu ár un um og fá tækt in var nátt úr lega mik il á Krókn um eins og víða. Al menn ing ur hafði naum lega í sig og á og sum ir þurftu að þiggja af sveit. Það var ekki alltaf mik ið að borða, þó man ég aldrei eft ir að við vær um sér stak lega svöng. Þetta var skemmti legt sam fé lag og sam­ komu lag ið gott. Yf ir leitt var heima á haustin keypt ur hálf ur skrokk­ ur af hrossa kjöti og hann salt að ur. Síð an var tek ið slát ur og það nýtt eins og kost ur var. Það má segja að þetta hafi ver ið meg in uppi stað an í fæð inu yfir vet ur inn,“ seg ir Hörð­ ur þeg ar hann rifj ar upp bernsku ár­ in á Krókn um. Bernskuminn ing arn ar eru skær­ ar hjá Herði og á Krókn um eins og víða voru það leik ir og í þrótt ir sem voru að al á huga mál in hjá börn um. Fé lags mála árátt an var far in að gera vart við sig hjá Herði strax á þess­ um fyrstu árum og hún beind ist að í þrótt un um. „Það er mér sér stak lega minn is­ stætt þeg ar við ytri bæ ing ar vor um stadd ir út við í þrótta völl inn á Eyr­ inni á fögru haust kvöldi 1946. Þá á kváð um við að stof na í þrótta fé lag. Við geng um upp í brekk una, sett­ umst þar og rædd um mál in. Drang­ eyj an blasti við okk ur þar sem við sát um og við á kváð um að skíra fé­ lag ið Drang ey. Það var geysi leg ur kraft ur í þessu fé lagi. Fund ir haldn­ ir einu sinni og jafn vel tvisvar í viku,“ seg ir Hörð ur, en seinna rann þetta fé lag svo inn í Tinda stól. Söng fyr ir her menn ina Þeir eru sjálf sagt marg ir sem muna eft ir Herði þeg ar hann söng með þeim geysi vin sæla kvar­ tett Skaga kvar tett in um. Söng ur­ inn hef ur alltaf haft mik il ítök í Herði og enn þá syng ur hann með kirkjukórn um hér á Skag an um. „Ég hef alltaf haft af skap lega gam an af því að syngja. Ég þótti sem dreng ur hafa skæra rödd og á stríðs ár un um fengu Bret arn ir mig til að syngja. Þeir náðu í mig til að syngja úti í brögg un um og mér var stillt upp á svið. Það var eitt lag sem var í sér stöku upp á haldi hjá mér, Denny boy, írska þjóð lag ið. Upp frá þessu var ég alltaf kall að ur Denni boy, út frá þessu söng at riði mínu í brögg un um. Á Krókn um er ég enn í dag, af flest um sem ég þekki, kall­ að ur Denni. Ég man eft ir að þeg ar Króks ar ar komu í heim sókn í bak­ arí ið eft ir að ég flutti á Skag ann og spurðu eft ir Denna kann að ist eng­ inn við hann.“ Harð ar kringl ur og boll ur Á Sauð ár króki var brauð gerð með al þeirra iðn greina sem fest­ ist í sessi í bæn um, enda Krók ur­ inn þjón ustu stað ur fyr ir stórt land­ bún að ar hér að. Hörð ur dreif sig ung ur í bak ara nám ið og út skrif að­ ist frá Guð jóni Sig urðs syni bak ara­ meist ara í kring um tví tugs af mæl­ ið 1953. Þá lá leið in til Nor egs þar sem hann átti í fram hald inu náms­ dvöl í eitt ár. Á ár inu 1958 var far ið að blunda í Herði að breyta að eins til, hleypa heim drag ann frá Krókn um. „Ég var á ferða lagi í sum ar frí inu og kom í heim sókn hérna á Skag­ ann. Hafði frétt af því að í Al þýðu­ brauð gerð ina, sem var hér gam al­ gró ið bak arí, vant aði bak ara til að standa fyr ir rekstr in um. Sveinn Kr. Guð munds son var þá kaup fé lags­ stjóri í Kaup fé lagi Suð ur­Borg firð­ inga eins og það hét og átti í þess­ um rekstri á samt fleir um. Ég hitti Svein og hann spurði mig hvort ég vildi koma og taka við bak arí inu. Ég flutti síð an hing að í sept em ber­ mán uði þetta ár. Ég keypti Al þýðu brauð gerð ina eft ir að hafa unn ið þar í fimm ár og breytti nafn inu í Harð ar bak arí. Gár ung arn ir voru reynd ar að gant­ ast með nafn ið og töldu að ég væri að aug lýsa harð ar kringl ur, harð ar boll ur og þar fram eft ir göt un um. En ég hafði bara gam an af þessu og tel að þetta hafi ver ið á gæt is aug lýs­ ing fyr ir mig. Svo þeg ar ég á kvað að setj ast í helg an stein um síð ustu alda mót seldi ég bak arí ið. Þeir sem keyptu fannst nafn ið svo gott að þeir á kváðu að halda því og bak arí­ ið er því kennt við Hörð á fram.“ Mikl ar kemp ur í bæj ar stjórn inni Hörð ur seg ir að sér hafi geng ið mjög vel að festa ræt ur á Skag an­ um. „Ég var mik ið hjá þeim Sveini kaup fé lags stjóra og Guð rúnu Örn­ ólfs dótt ur konu hans fyrstu árin, enda bjó ég á neðri hæð inni hjá þeim. Þau voru bæði templ ar ar eins og ég og drifu mig í stúk una hérna sem hét Ak ur blóm nr. 3. Þar kynnt­ ist ég mörgu á gæt is fólki. Sveinn vildi líka endi lega að ég gengi í Odd fell ow­regl una. Ég gekk í hana 1960 og starf aði mjög mik ið þar. Ég hafði alltaf ver ið póli tísk ur. Eft ir að ég kom hing að á Skag ann fór ég að sækja fundi hjá Sjálf stæð­ is flokkn um. Það leiddi til þess að ég var feng inn til að vera of ar lega á lista flokks ins fyr ir bæj ar stjórn ar­ kosn ing arn ar 1970. Ég var vara bæj­ ar full trúi kjör tíma bil ið 1970­’74 og sat þá marga fundi í bæj ar stjórn. Síð an var ég í bæj ar stjórn inni sam­ fellt næstu 12 árin. Það reynd ist mér mik ill og góð ur skóli enda marg­ ar kemp ur sem sátu í bæj ar stjórn­ inni á þess um tíma. Með mér í bæj­ ar stjórn ar liði Sjálf stæð is flokks ins á þess um árum voru þeir Valdi mar Ind riða son, Jós ep H. Þor geirs son og Guð jón Guð munds son. Fyr­ ir Al þýðu flokk inn voru Guð mund­ ur Vé steins son og Rík harð ur Jóns­ son í bæj ar stjórn. Fyr ir Fram sókn­ ar flokk inn sátu á þess um tíma Dan­ í el Á gústín us son og Ó laf ur Guð­ brands son og fyr ir Al þýðu banda­ lag ið Jó hann Ár sæls son. Þetta voru allt á gæt is menn.“ Fór ná lægt kosn inga úr slit un um „Sá mað ur sem lífg aði ekki síst upp á bæj ar mál in var Dan í­ el Á gústín us son, mik ill ræðu skör­ ung ur og ó væg inn, þannig að mað­ ur varð að hafa sig all an við til að lenda ekki und ir í um ræð un um. Mér er sér stak lega minnistætt þeg­ ar ég á kjör degi 1974 hitti Dan í el á götu. Hann spurði mig hvern ig gengi og ég svar aði því til að þetta gengi á gæt lega. „Hvað fáið þið nú mörg at kvæði?“ spurði hann. Ég var snögg ur til og sagði að við feng um 834 at kvæði, sem var nokk­ uð bí ræf ið svar hjá mér því þetta var um 40% af at kvæða magn inu. Ég heyrði það seinna um kvöld ið að Dan í el hefði fund ist þetta kynd ugt og sagt frá því að hann hefði hitt Hörð bak ara sem var svona fá rán­ lega bjart sýnn. Nið ur stað an varð hins veg ar sú þeg ar búið var að telja upp úr köss un um að við feng um 836 at kvæði, eða tveim ur fleiri en ég skaut þarna á í fljót heit um.“ Skag firð ing ur inn sem festi fljótt ræt ur á Skag an um Ég þótti sem dreng ur hafa skæra rödd Hörð ur Páls son á svöl um í búð ar sinn ar að Kirkju braut 12. Hörð ur veit ir fálka orð unni við töku á Bessa stöð um 17. júní 2003. Frá vinstri: Stef án Lár us Stef áns son mað ur Guð rún ar dótt ur Harð ar og nú ver­ andi sendi herra í Stras bo urg í Frakk landi. Inga Sig urð ar dótt ir eig in kona Harð ar. Hörð ur Páls son. Guð rún Bryn dís og Sig ríð ur Anna dæt ur Harð­ ar og Ingu. Þá eiga þau hjón in einnig syn ina Sig urð Pál og Hörð. Skaga kvar tett inn að syngja í veislu fagn aði á Hót el Sögu í apr íl mán uði 1969 á 150 ára af mæli Odd fell ow regl unn ar í heim in um. Frá vinstri: Hörð ur Páls son, Sig urð ur Ó lafs son fyrrv. fram­ kvæmda stjóri Sjúkra húss Akra ness, Sig urð ur R. Guð munds son fyrrv. skóla stjóri Heið ar skóla og Helgi Júl í us son úr smið ur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.