Skessuhorn


Skessuhorn - 02.04.2008, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 02.04.2008, Blaðsíða 13
13 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL Starfs um hverfi bænda hef ur lík­ lega aldrei breyst eins mik ið og á síð ustu árum. Búum hef ur fækk að og þau stækk að. Nú eru til dæm is ein ung is eft ir um 700 kúa bú í land­ inu og því er spáð að þeim fækki enn meira á næstu árum. Hag ræð­ ing in sem felst í fækk un bú anna er ef til vill ekki sárs auka laus, því ný og tækni vædd bú kosta sitt og þeg­ ar fjár magn er dýrt get ur það reynst erfitt að reka skuld sett bú. Hluti af vanda bænda í dag er einmitt þessi hraða fækk un búa sem kall að hef ur á meiri skuld setn ingu þeirra sam­ hliða nýj um fjós bygg ing um og inn­ leið ingu tækni, meiri skuld setn ing en tekj urn ar í raun leyfa. Í augna­ blik inu eru því ýms ar blik ur á lofti hjá ís lensk um kúa bænd um, ekki ein vörð ungu að verð á helstu að­ föng um eins og á burði, kjarn fóðri, olíu og ýmsu fleiru hef ur hækk að gríð ar lega. Kúa bænd ur náðu þó í gegn meiri hækk un á mjólk í síð­ ustu viku en lengi hef ur orð ið þeg­ ar verð lags nefnd bú vara sam þykkti 14 króna hækk un til bænda á lítra mjólk ur frá ný liðn um mán aða­ mót um. En dug ar þessi verð hækk­ un til fyr ir kúa bænd ur? Til að leita svara við þessu var tek ið hús á Har­ aldi bónda Bene dikts syni á Vestra Reyni, for manni Bænda sam taka Ís­ lands. Þar sem í nægu er að snú­ ast við bæði fé lags störf og hags­ muna gæslu bænda, til við bót ar bú­ stör f un um, var far ið með Har aldi í fjós, enda gefst oft betri tími þar til spjalls en víða ann ars stað ar, með­ an kýrn ar eru mjólk að ar hver af annarri, á hyggju laus ar yfir mjólk­ ur verði, vísi töl um, vöxt um og öðru sem mann fólk ið ræð ir þess meira. Jaðr ar við ham far ir Har ald ur er fyrst spurð ur út í hvern ig hon um lít ist á þró un ina hjá ís lensk um bænd um, eink um kúa­ bænd um í ljósi nýj ustu fregna af að­ fanga hækk un um. „Mjólk ur verðs­ hækk un in nú er mik il væg ur á fangi til að fást við hið breytta um hverfi sem all ur land bún að ur, ekki bara hér á landi held ur alls stað ar í heim­ in um, glím ir við í dag. Verð á að­ föng um til bú vöru fram leiðsl unn­ ar hef ur hækk að svo mik ið á stutt­ um tíma að það jaðr ar við ham far ir. Bænda sam tök in héldu op inn fund í haust með Mart in Haworth, starfs­ manni bresku bænda sam tak anna. Þar upp lýsti hann hvern ig mat ar­ verð og fram boð mat ar hef ur gjör­ breyst á stutt um tíma og hann spáði því, sem nú er orð in raun in, að að­ fanga hækk an ir yrðu mikl ar. Mat­ ar verð er alls stað ar í heim in um að hækka. Bænd ur þurfa að fá hærra verð fyr ir af urð ir sín ar og hafa feng ið slík ar leið rétt ing ar í flest­ um bú grein um í ná granna lönd um okk ar.“ Har ald ur seg ir það al vöru mál að þurfa að hækka mat vöru mik ið og tals menn bænda eru hreint ekki á nægð ir með að þurfa að standa í slíku nú um stund ir. „En við vit um að neyt end ur skilja hvers vegna. Það er fyrst og fremst vegna breyt­ inga á al þjóða mörk uð um. Auð vit að er hætta á að sam drátt ur verði í sölu á ís lensk um vör um. En ís lensk ar land bún að ar vör ur nema um 45% af mat ar kaup um heim il anna. Ann­ að er inn lend iðn að ar fram leiðsla og inn flutt mat væli og þær vör ur hafa fram und ir þetta hækk að meira en ís lenska bú var an. Þrýst ing ur á inn­ flutn ing er því stöð ug ur. En ódýr mat ur er ekk ert til í enda lausu magni. Við leggj um á herslu á að um bú vöru fram leiðsl una sé stað ið vörð. Við bænd ur finn um líka fyr­ ir því að veru lega hef ur ver ið slak að á í inn flutn ingi á kjöti til lands ins. Lækk un tolla hef ur átt sér stað og rýmk un á magni er veru leg. Þannig að það er ekki eins og ekk ert hafi gerst.“ Sum ir þurfa að meta stöðu sína En dug ar þessi 14 króna hækk­ un á mjólk ur lítra til að kúa bænd­ ur kom ist yfir erf ið asta hjall ann? „ Þessi hækk un á að duga flest um. Nú eiga bænd ur að nota tæki fær­ ið og koma sér út úr erf ið ustu mál­ un um, en sum ir þurfa vissu lega að meta stöðu sína. Það er ekki hægt að reka kúa bú fyr ir láns fé, sér stak lega ekki þeg ar vext ir eru þetta háir eins og þeir eru í dag. Bænd ur eins og all ir aðr ir sem standa í rekstri þurfa að hafa borð fyr ir báru í rekstri sín­ um. Sum ir munu þannig neyð ast til að breyta ein hverju; skuld breyta, selja hluta kvót ans eða í versta falli hætta. Þeim sem geng ur hvað best núna eru þeir sem eiga bú sín skuld lít­ il svo ég tali nú ekki um skuld laus. Oft hef ur ver ið sagt að skuld ir megi ekki fara upp fyr ir þre falda veltu við kom andi bús. Ég held að það eigi vel við enn. Ef meira er skuld að er hætt við að illa fari. Til eru dæmi um bænd ur hér á landi sem greiða svip að mik inn fjár magns kostn­ að mið að við lítra af mjólk og af­ urða verð er til bænda í Dan mörku. Það sjá all ir að slíkt geng ur ekki til lengd ar. Ég er hins veg ar bjart sýnn fyr ir hönd þeirra bænda sem rek­ ið hafa bú sín af skyn semi og far ið hafa var lega í fjár fest ing ar.“ Til vilj un að þetta ger ist á sama tíma Har ald ur seg ir það vissu lega afar ó heppi legt að á sama tíma og verð á að föng um til bú rekstr ar hækki þetta mik ið á stutt um tíma þá skuli hitta þannig á að mik il verð bólgu­ spenna sé hér á landi. „Það er til­ vilj un að þess ar breyt ing ar verða á sama tíma. Hér hell ast yfir hækk­ an ir á mat vöru, fjár magni og elds­ neyti á sama tíma og þá byrj ar sem oft áður þrýst ing ur á að aflétta toll­ um af inn flutt um mat væl um.“ Har ald ur seg ir jafn framt að á öll­ um tím um hætti ein hverj ir bænd ur og aðr ir byrji, það sé mjög ein stak­ lings bund ið, en ó vissa í ytri að stæð­ um ýti oft þeim af stað sem hafa ver ið að í huga að hætta bú rekstri. „Nú eru, sem bet ur fer, fleiri tæki­ færi fyr ir þá sem þurfa að hætta. Það er eðli legt að bænd ur velti öllu upp þeg ar árar eins og nú.“ Kost ir gras nytja bú skap ar Að spurð ur um hvort staða sauð­ fjár bænda sé nokk uð skárri en kúa­ bænda svar ar Har ald ur því bæði ját andi og neit andi. „Sauð fjár­ rækt in hef ur það vissu lega fram yf­ ir aðr ar bú grein ar að hún er fyrst og fremst gras nytja­ og beit ar bú­ skap ur. Þannig styrk ist sam keppn­ is hæfni í þeirri fram leiðslu gagn­ vart annarri kjöt fram leiðslu þeg ar kjarn fóð ur­ og á burð ar verð er hátt. Hins veg ar mun ó vissa ríkja um af­ komu í sauð fjár bú skap fram á haust og þar kem ur margt til. Vissu lega hef ur það t.d. á hrif fyr ir dilka kjöts­ fram leiðsl una sú ó vissa sem rík ir um hvort vernd ar toll ar af kjöti verði lækk að ir og kjöt inn flutn ing ur auk­ ist. Það er ekki ein ung is fram leiðsl­ an á hvíta kjöt inu sem mun gjalda þess ef inn flutn ing ur verð ur gef inn meira frjáls en orð ið er. Þá er af nám út flutn ings skyld unn ar árið 2009. Á svip uð um tíma opn ast hér vænt an­ lega fyr ir inn flutn ing á fersku kjöti frá ESB. Í þess ari fram leiðslu verð­ ur því vænt an lega þröng staða til hækk un ar á af urða verði til að mæta ýms um kostn að ar hækk un um sem dynja á sauð fjár bænd um eins og öðr um bú grein um. Hins veg ar má segja að hátt gengi á evru gæti þýtt að tæki færi sköp uð ust fyr ir arð sam­ an út flutn ing á kjöti. Bænd um er það vel ljóst að mik ill þrýst ing ur er á auk inn inn flutn ing mat væla og sá þrýst ing ur eykst jafn an þeg ar vær­ ing ar eru í verð lagn ingu mat væla eins og nú. Toll ar á inn fluttri kjöt­ vöru hafa ver ið að lækka og nú er unn ið í sam hengi við samn inga við­ ræð ur við ESB um að gang fyr ir ís­ lenska fram leiðslu á sömu for send­ um inn á Evr ópu mark að.“ Þannig vill Har ald ur meina að tæki færi felist þrátt fyr ir allt í þeim ógn un­ um sem steðja að ís lensk um bænd­ um. Land bún að ur skipt ir máli Al mennt vill Har ald ur halda því fram að við horf al menn ings til bænda sé mjög gott og ís lensk ar land bún að ar vör ur séu hátt skrif að­ ar í hug um fólks. Hins veg ar finn­ ist mörg um að þeir sem séu and­ snún ir bænd um fái mik ið pláss í fjöl miðj um og rödd bænda heyr ist minna. „Vissu lega hafa at vinnuga­ „Hag ræð ing ar er þörf hjá skuld sett um kúa bú um“ Sérsaumum lok á allar tegundir potta hringdu núna og fá!u tilbo! sími: 864 4188 fjardarbolstrun@gmail!com leit ! is"servefir"fjardarbolstrun seg ir Har ald ur Bene dikts son for mað ur Bænda sam taka Ís lands Har ald ur í mjalta básn um í fjós inu á Vestra Reyni. spar ar oft tal að nið ur til bænda. Við verð um samt að virða all ar skoð­ an ir. Per sónu lega finnst mér land­ bún að ur njóta meira sann mæl is nú en áður og menn vita að við erum sann ar lega mik il væg at vinnu grein. Land bún að ur er burða rás í mörg­ um byggð um. Þjóð ir hugsa nú um matar ör yggi og ís lensk ir bænd ur og þeirra starf er þannig einn af þeim þátt um sem ger ir okk ur að þjóð á með al þjóða,“ seg ir Har ald ur að lok um. mm/bgk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.