Skessuhorn - 01.12.2010, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER
Helstu markmið þessa samráðsfundar eru að fá fram upplýsingar sem nýtast vegna fjárhagsáætlunargerðar ársins
2011 en jafnframt sem hluti af langtímasýn bæjarstjórnar. Á fundinum geta íbúar á Akranesi komið sjónarmiðum
sínum á framfæri til að styrkja starf og áherslur bæjarstjórnar. Fundurinn er í samræmi við þá sýn og áherslur sem
endurspeglast í stefnu allra stjórnmálaflokka á Akranesi að auka samráð bæjarstjórnar við íbúana í bænum.
Á fundinum verður leitast við að fá fram sýn íbúa á mikilvægustu lífsgæðin og forgangsverkefni í samfélaginu á
Akranesi. Auk þess verður kallað eftir afmarkaðri skilaboðum og sjónum beint að einstökum viðfangsefnum
sveitarstjórnar og íbúanna sjálfra, til skemmri tíma. Þar er t.d. um að ræða viðfangsefni sem snúa að fjölskyldu- og
samfélagsmálum, umhverfis- og skipulagsmálum og atvinnumálum og nýsköpun.
Með fundinum er skapaður vettvangur þar sem íbúar hafa tækifæri til að koma sínum hugmyndum og ábendingum
á framfæri. Fundinum er markvisst hagað þannig að allir geti tekið þátt með auðveldum hætti og að sjónarmið allra
komi fram. Hér þarf enginn að halda ræður! Fundarformið ýtir undir umræðu og skoðanaskipti þátttakenda. Boðið
verður upp á barnagæslu á staðnum, kaffiveitingar og léttan hádegisverð.
Umsjón með íbúafundinum og úrvinnsla úr niðurstöðum hans er í höndum ráðgjafarfyrirtækisins Alta. Skilaboð
fundarins munu birtast á sérstökum vef, akranes.alta.is , sem er opinn öllum. Bæjarstjórn mun síðan nýta upp-
lýsingarnar sem safnast um hugmyndir og viðhorf bæjarbúa við áætlanagerð. Á íbúafund eiga allir erindi og
fundurinn er opinn öllum. Mikilvægt er að sem flest sjónarmið heyrist og eru íbúar á Akranesi hvattir til að mæta
og taka þátt í umræðu um lífsgæði og sameiginleg hagsmunamál bæjarbúa.
Áætlað er að fundurinn taki í heildina um 3 klst. og honum ljúki kl. 13.30. Allar nánari upplýsingar veitir Tómas
Guðmundsson, verkefnastjóri Akranesstofu, tomas.gudmundsson@akranes.is, sími 433 1000.
Fylgist með frekari upplýsingum á vefnum www.akranes.is.
Íbúasamráð
Bæjarstjórn Akraness efnir til íbúasamráðs og býður til fundar í
Grundaskóla laugardaginn 4. desember n.k. kl. 10.30-13.30.
Opið virka daga 10-18. Laugardaga 11-13.
Skólabraut 25 • Akranesi • Sími 431 1619 • sjonglerid@simnet.is
Í tilefni 20 ára afmælis okkar verður 20% afsláttur
af öllum glerjum og umgjörðum fram til jóla.
1990 2010
Afslátturinn gildir líka í eftirfarandi ferðum sem
við förum samhliða heimsóknum augnlæknis á
neðangreinda staði:
Grundarfjörður: Fimmtudaginn 2. desember,
Ólafsvík: Föstudaginn 3. desember,
Búðardalur: Fimmtudaginn 9. desember
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Í bú ar í rað hús inu á horni Faxa
braut ar og Jað ars braut ar á Akra nesi
fagna því vænt an lega að þessa dag
ana er unnið að úr bót um við þessi
gatna mót. Þær eru gerð ar í þeim
til gangi að beina akst urs stefnu bif
reiða bet ur á fram upp Faxa braut
ina og þannig draga úr um ferð ar vá
vegna hraða akst urs á Faxa braut. Í
að minnsta kosti þrí gang hef ur ver
ið ekið á hús ið eða bíla sem stað ið
hafa á bíla stæð inu við horn rað hús
ið við Jað ars braut ina og jafn vel á
skjól veggi við hús ið eða ljósa staur,
með til heyr andi tjóni. Eins og sjá
má á mynd inni verð ur gang stétt in
færð til vest urs og kem ur til færsla
henn ar til með að breyta akst urs
stefn unni neð an frá Faxa braut.
þá
Segja má að hann hafi hent
að mjög vel tak mark aðri fram
kvæmda getu rík is sjóðs, báru járns
klæddi skúr inn sem byggð ur var
við hús næði Fjöliðj unn ar við Dal
braut á Akra nesi í sum ar. Skúr
inn, sem byggð ur var utan um vél
ina sem brýt ur gler flösk ur sem til
iðj unn ar ber ast, er að eins 11,2 fer
metr ar að stærð. Hann var meira að
segja ekki byggð ur al far ið fyr ir op
in bert fé, held ur var hluti hans fjár
magn að ur með gjafa fé.
þá
Lít il op in ber fram kvæmd
Unn ið að lag fær ing um við gatna mót
Faxa braut ar og Jað ars braut ar.
Um ferð ar vá bægt frá
húsi á Akra nesi