Skessuhorn - 02.02.2011, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
•
•
•
•
•
•
•
.
Álagningarseðlar fasteignagjalda á Akranesi árið 2011 hafa verið sendir til eigenda
fasteigna á Akranesi. Akraneskaupstaður annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu
og sorphirðugjaldi en Landsbanki Íslands hefur umsjón með innheimtu sömu gjalda
fyrir hönd Akraneskaupstaðar samkvæmt samningi þar um.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2011 ef
þeir uppfylla skilyrði reglna um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli-
og örorkulífeyrisþega. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og
örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2009. Þegar álagning
vegna tekna ársins 2010 liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega
ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega. Akraneskaupstaður
framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að
sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Skilyrði lækkunar eru
að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi
fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr.
90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til
eigin nota.
Bæjarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna
niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2011 verði eftirfarandi:
Hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 2.181.000 er 100% niðurfelling á fasteigna-
skatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef
tekjur fara yfir kr. 3.020.000.
Hjá hjónum/sambýlingum með tekjur allt að kr. 3.055.000 er 100% niðurfelling á
fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur
niður ef tekjur fara yfir kr. 4.228.000.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, Reykjavík annast álagningu og innheimtu vatns-
gjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita
upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, veitir upplýsingar varðandi
álagningu fasteignaskatts, lóðarleigu og sorphirðugjalds og breytingar á þeim í síma
433 1000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is.
Gjaldddagar fasteignagjalda umfram kr. 10.000 fyrir árið 2011 eru:
15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst,
15. september, 15. október. Gjalddagi fasteignagjalda undir kr. 10.000 er 15. apríl.
Auglýsing vegna álagningar
fasteignagjalda á Akranesi árið 2011
Innnesvegi 1 • Akranesi • Sími 431 1985 • bilver@internet.is
Bílver ehf.
Bifvélavirki óskast
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða
mann vanan bílaviðgerðum.
Upplýsingar á staðnum eða
í síma 431-1985.
Reynir Sigurbjörnsson.
Laust er til umsóknar starf gæludýraeftirlitsmanns Borgarbyggðar
norðan Hvítár. Um lítið hlutastarf er að ræða. Hlutverk hans er að
sjá til þess að reglum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald sé
framfylgt í samvinnu við umhver s- og landbúnaðarfulltrúa. Annar
gæludýraeftirlitsmaður starfar á svæðinu sunnan Hvítár. Mikilvægt
er að gæludýraeftirlitsmaðurinn sé vanur dýrum og ha sjálfur y r að
ráða nægu húsnæði til að geyma fönguð dýr. Viðkomandi þarf að búa í
Borgarnesi eða allra næsta nágrenni þess.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur Björg Gunnarsdóttir
umhver s- og landbúnaðarfulltrúi í síma 433-7100
eða í gegnum netfangið bjorg@borgarbyggd.is
Gæludýraeftirlitsmaður Borgarbyggðar norðan Hvítár
- laus staða -
Ó venju mik ið var um bók an ir í
liðin ni viku hjá lög regl unni í Borg
ar firði og Döl um þar sem dýr komu
við sögu. Þannig var naut pen ing ur
á vegi í Hálsa sveit, ekið var á hund
í Borg ar nesi, til kynnt um hross
á vegi við Hvann eyri og hund ur
glefs aði í blað burð ar dreng í Borg
ar nesi. Síð ast en ekki síst má geta
þess að fimm fíkni efna leit ar hund
ar voru á samæf ingu með þjálf ur
um sín um víðs veg ar í Borg ar nesi,
að sögn Theo dórs Þórð ar son ar yf
ir lög reglu þjóns.
Öku mað ur á suð ur leið sl. föstu
dag missti stjórn á jeppa bif reið
sinni í fram úr akstri við Skarðs læk í
Staf holtstung um og fór bíll inn útaf
veg in um og valt ofan í skurð. Bíl
stjór inn, sem var einn á ferð, var í
bíl belti og slapp hann með skrám
ur og eymsli eft ir belt ið. Mið að við
skemmd ir á bíln um verð ur mað
ur inn að telj ast hepp inn að sleppa
svo vel, að sögn lög reglu. Fólks
bíll og jeppi rák ust sam an í í búð
ar götu á Hvann eyri um liðna helgi.
Fljúg andi hálka var og varla stætt á
göt unni þeg ar ó happ ið varð. Öku
menn og far þeg ar sluppu án telj andi
meiðsla. Báð ar bif reið arn ar urðu
ó öku fær ar við á rekst ur inn. Sjö um
ferð ar ó höpp urðu í um dæmi LBD
í vik unni viku, flest minni hátt ar og
öll án telj andi meiðsla. Flest ó happ
anna urðu í hálku og snjó.
þá
Dýr in stór og smá í
verk efn um vik unn ar
Með fylgj andi mynd var tek in á æf ingu þar sem verð andi fíkni efna leit ar hund ar
fengu þjálf un. Þarna er lög reglu fólk og fanga verð ir. F.v. Lauf ey Gísla dótt ir lög
reglu þjónn í Borg ar nesi, Stein ar Gunn ars son yf ir hunda þjálf ari á Norð firði, Elín
Ósk Höllu dótt ir fanga vörð ur á Litla Hrauni og Guð jón Smári Guð jóns son lög
reglu þjónn á Sel fossi. Ljósm. TÞ.