Skessuhorn


Skessuhorn - 16.01.2013, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 16.01.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2013 sem bygg ist á sjálf boða vinnu, verði að vera pen inga leg ur hagn að ur á verk efn inu. Kannski er ekki rétt að tala um hagn að ef af gang ur verð ur held ur eðli lega greiðslu fyr ir unn ið verk. Aðal hagn að ur inn af í þrótta­ starfi er samt ekki mæld ur í pen ing­ um held ur í því upp byggi lega starfi sem hreyf ing in sinn ir en pen ing­ ar skipta hreyf ing una samt miklu máli." Á hersl ur voru rang ar hjá Engja ási Í árs lok 1997 réð ist Krist mar til starfa hjá fram leiðslu fyr ir tæk inu Engja ási ehf., fyr ir tæki sem stofn að hafði ver­ ið í kjöl far úr eld ing ar Mjólk ur sam­ lags Borg firð inga í árs lok 1995. Þar gegndi hann stöðu mark aðs stjóra fyrstu mán uð ina en tók síð ar við stöðu fram kvæmda stjóra. Eig end­ ur fyr ir tæk is ins voru í fyrstu Kaup­ fé lag Borg firð inga, Mjólk ur bú Flóa­ manna, Sam vinnu líf eyr is sjóð ur­ inn og Osta­ og smjör sal an og kom hluta fé að stór um hluta til vegna samn inga um úr eld ingu MSB. Fyr­ ir tæk ið starf aði ekki lengi og var lagt nið ur í árs lok 2000. Krist mar seg ir að því mið ur hafi hug mynda fræð­ in á bak við stofn un Engja áss ver ið röng en meg in mark mið ið hafi ver­ ið að halda fólki í vinnu en ekki að þróa við skipta hug mynd sem gæti geng ið. „Mér fannst að ferða fræð­ in sem not uð var eng an veg inn ganga upp. Þeg ar fyr ir tæki fara af stað þá snýst allt um að koma ein­ hverri hug mynd í fram kvæmd. Það get ur ver ið stór eða lít il hug mynd, allt frá því að stofna ál ver og nið­ ur í bíla verk stæði. Síð an er leit að að pen ing til að fram kvæma hug mynd­ ina og koma henni af stað. Þú byrj ar smám sam an að byggja það upp og síð an kem ur fljót lega í ljós hvort að hug mynd in geng ur eða geng ur ekki. Fullt af stór um fyr ir tækj um hafa orð ið til eft ir svona byrj un. Í Engja­ ási var far ið á stað með fullt af pen­ ing um, fullt af mann skap en nán ast enga hug mynd. Þetta varð því mið­ ur fé lag inu að falli," seg ir Krist mar en á starfs tíma sín um fram leiddi Engja ás ýms ar vör ur svo sem pizz­ ur, morg un korn og sult ur en sinnti einnig á feng is töpp un. Tók við á töpp un til bráða birgða Að end ingu varð úr, eft ir að hluta féð var nán ast uppurið, að leggja Engja­ ás nið ur. „Spari sjóð ur inn og KB tóku sinn skell hvort fé lag þeg ar á kveð ið var að leggja fyr ir tæk ið nið ur. Í raun var þetta hand stýrt gjald þrot. Mér var þó falið sem fram kvæmda stjóra að selja eign ir út úr hús inu sem voru hluti af þrota búi fyr ir tæk is ins. Engja ás hafði um skamma hríð sinnt á feng is tá töpp un fyr ir dótt ur fyr ir­ tæki Öl gerð ar inn ar, Catco, og vildi Öl gerð in halda á fram að á töpp un í nokkra mán uði í Borg ar nesi. Þar sem tek in hafði ver ið á kvörð un um að loka Engja ási á kvað ég að stofna eig ið fyr ir tæki utan um fram leiðsl­ una fyrst til þriggja mán aða. Öl­ gerð in vildi síð an halda þessu fyr ir­ komu lagi á fram og úr varð að fyr ir­ tæk ið okk ar, Vín gerð in, gerði samn­ ing um fram leiðslu á nokkrum teg­ und um og hann hélt í raun í 12 ár eða þang að til í sum ar. Þannig lenti ég í á feng inu," seg ir Krist mar. Ekki sjálf gef ið að á töpp- un sé í Borg ar nesi Krist mar seg ir tím ann í Vín gerð inni hafa ver ið um margt á huga verð an og fræð andi. „Ég ætl aði í raun inni ekki út í þetta, en eins og ég sagði, þá kom þetta til á þess um tíma punkti. Á töpp un in hafði upp haf lega kom­ ið í Borg ar nes árið 1995 og byggði á fram leiðslu sem ÁTVR hafði ver­ ið með frá 1935 til 1992. Þar var tapp að Brenni víni, Eld ur Ís, Tinda­ vodka, Dillon gini og fleiri teg und­ um. Öl gerð in kaup ir sig inn í fyr­ ir tæk ið árið 1999 og held ur Engja­ ás utan um þetta þang að til fyr ir­ tæk ið er stopp að. Fyr ir komu lag ið var kannski dá lít ið flók ið en þetta var þannig að Öl gerð in hélt utan um þetta í gegn um dótt ur fyr ir tæk­ ið Catco sem síð ar hét Catco­Vín. Þeir áttu tæki og tól til að fram leiða og sáu um að gera samn ing við þau fyr ir tæki sem vildu láta fram leiða fyr ir sig. Ég sá um allt sem snéri að fram leiðslu, manna haldi og fram­ leiðslu skipu lagi og vann Vín gerð­ in sam kvæmt á ætl un um frá þeim," seg ir Krist mar. Fyrst um sinn var Vín gerð in til húsa í gamla hús næði MSB að Engja ási en eft ir að hús­ ið var selt und ir kjúklinga slát ur hús flutti það í nýtt hús næði sem Öl­ gerð in lét byggja að Vallar ási fyr­ ir ofan Borg ar nes. „Það kost aði nokkr ar for töl ur að sann færa Öl­ gerð ar menn að halda á töpp un inni í Borg ar nesi. Þeir ætl uðu að flytja starf sem ina suð ur. Ég náði hins veg ar að sann færa þá og réði held ég miklu að eng in reynsla var til stað ar í fram leiðslu á þess um drykkj um á Krók hálsi. Þar að auki var gott fyr ir í mynd fram leiðsl unn ar að hafa hana fy r ir utan borg ina," bæt ir hann við. Krist mar kveðst fara sátt ur frá á feng is fram leiðsl unni í kjöl far eig­ enda skipt anna á síð asta ári og þakk­ ar fyr ir þann tíma sem hann átti í þeirri starf semi. Skipu lags mál eru mik il væg Sam tal inu vík ur að sveit ar stjórn ar­ mál um en Krist mar sat kjör tíma bil­ ið 1998­2002 sem sveit ar stjórn ar­ full trúi í Borg ar byggð fyr ir Borg­ ar byggð ar list ann, sam eig in legs fram boðs Sam fylk ing ar, Vinstri­ Grænna og ó háðra. Störf in í sveit­ ar stjórn hafi ver ið góð reynsla og seg ir Krist mar að það hafi kom­ ið sér á ó vart hversu mörg verk efni eru í raun á for ræði sveit ar stjórn­ ar. „Sveit ar stjórn ar störf in kenndu mér að það er ekki hægt að hugsa um póli tík ina út frá einu af mörk­ uðu verk efni eða skoð un. Póli tík­ in kenndi mér líka að bera virð ingu fyr ir skoð un um ann arra og að vinna með fólki sem hef ur aðr ar skoð an ir á hlutn um. Krist mar seg ist hafa lát­ ið sig skipu lags mál hvað mest varða enda sé það eitt helsta vopn sveit ar­ fé lag anna til að skapa um gjörð utan um sam fé lag ið, stuðla að réttri þró­ un þess og um leið vinna að fram­ gangi at vinnu lífs ins á svæð inu. „Skipu lags mál er stóra mynd in sem þarf að vera í lagi. Ég náði kannski ekki al veg að fylgja þeim nægj an­ lega eft ir enda var ég bara í fjög ur ár í sveit ar stjórn. Ljóst er að menn verða að hafa um gjörð ina hreina og klára þeg ar næsta upp sveifla í þjóð­ fé lag inu kem ur ef t.d. ein hver hef ur á huga á að koma með starf semi sína í bæ inn. Fyr ir tæki koma ein fald lega af sjálfs dáð um í dag og þurfa á góðri um gjörð að halda. Það er lið in tíð að sveit ar fé lög lokki fyr ir tæki til sín með gylli boð um." Þjóð veg ur inn liggi ekki í gegn um byggð ina Lega veg ar ins í gegn um Borg ar­ nes er dæmi um eitt af á herslu mál­ um Krist mars í skipu lags mál um. „Eitt verk efni sem ég hafði mik­ inn á huga fyr ir og hef sterk ar skoð­ an ir á er lega þjóð veg ar ins í gegn­ um Borg ar nes. Ég hef alltaf ver­ ið mjög á móti því að hafa veg inn í gegn um bæ inn en við vor um tveir sem héldu þeim sjón ar mið um helst á lofti í sveit ar stjórn á þess um tíma, ég og Örn heit inn í Mið garði. Ég tel að lega veg ar ins hefti á kveðna þró un í sveit ar fé lag inu til lengri tíma. Það er að mín um dómi röng á kvörð un að þvæla þjóð veg um í gegn um þétt­ býli að þjón ustu stofn un um. Það á að færa þjón ustu stofn an ir að veg­ um. Ég kalla svona hugs un pylsu­ sölu hag fræði og finnst lít ið til henn­ ar koma," seg ir Krist mar sem seg­ ir mik il vægt að sveit ar stjórn ar menn taki þessi mál upp sem fyrst og komi færslu veg ar ins á vega á ætl un enda tek ur það lang an tíma. Slíkt sé mik­ il vægt t.d. fyr ir þá sem gætu hugs að sér að fjár festa í of an verðu Borg ar­ nesi. Að eyða ó vissu í þess um mál­ um og öðr um, hjálp ar sveit ar fé lag­ inu að móta um gjörð til fram tíð ar og ýtir und ir upp bygg ingu. All ir eiga val í erf ið leik um Krist mar leyn ir því ekki að ein á stæða þess að hann hafi sterk ar skoð an ir á legu þjóð veg ar ins í gegn­ um Borg ar nes sé sú að í á gúst 1995 lést Auð unn elsti son ur hans og Írisar í um ferð ar slysi á þjóð veg in um í gegn um Borg ar nes. Sam tal inu vík­ ur því að Auð unni og frá falli hans. „Það að missa barn ið sitt er eitt hvað sem eng inn ætti að þurfa að ganga í gegn um. Ég hafði upp lif að það 17 ára gam all að missa pabba minn sem þá var ein ung is 52 ára sem tók veru lega á, ekki síst þar sem ég og yngri bræð ur mín ir fjór ir vor um á ung lings aldri. Það reyndi mik ið á fjöl skyld una þá og má heita mik ið krafta verk að mamma náði að koma okk ur öll um til manns. Til finn ing in er sú að þeg ar mað ur miss ir for eldri þá deyr hluti af for tíð inni hjá manni, en þeg ar mað ur miss ir barn ið sitt þá deyr hluti af fram tíð inni. Auð­ unn var 14 ára þeg ar hann deyr og var á kaf lega lífs glað ur og efni leg ur dreng ur. Þetta var þungt á fall fyr ir okk ur öll, ekki síst Bjarna og meira að segja líka síð ar meir fyr ir Sæv ar, sem fædd ist tveim ur árum eft ir frá­ fall Auð uns. Það er alltaf þannig að í öll um erf ið leik um og mót læti sem upp kem ur í líf inu eiga menn val um það hvern ig þeir vinna sig út úr þeim. Það er kannski erfitt að koma auga á ein hverja val kosti á sorg ar­ stundu en þeir eru samt til stað ar þó að mik ið reyni á," bæt ir hann við. Krist mar hef ur síð an á und an förn­ um árum miðl að af reynslu sinni í þess um efn um og hef ur m.a. rætt um frá fall Auð uns á sam kom um hjá að stand end um þeirra sem lent hafa í um ferð ar slys um. Minn ing Auð uns lif ir góðu lífi Krist mar og fjöl skylda fundu fyr ir mikl um stuðn ingi eft ir frá fall Auð­ uns, stuðn ingi sem þau geta seint þakk að fyr ir. „Þeg ar svona á fall ber að garði skipt ir nán asta fjöl skyld an og vin ir ó trú lega miklu máli. Einnig átt ar mað ur sig á því hversu sterkt net býr að baki manni í litlu sam fé lagi eins og í Borg ar nesi og við fund um sterk lega fyr ir því. Þetta voru mjög yf ir þyrm andi dag ar þenn an á gúst­ mán uð en fólk vildi með ein hverju móti sína sam úð sína í verki og sendi okk ur blóm vendi og sam úð ar skeyti. Við brögð in voru slík að hús ið okk­ ar fyllt ist fljót lega af blóm vönd um. Mitt í allri sorg inni á kváð um við hins veg ar að stofna minn ing ar sjóð í nafni Auð uns þó hlut verk hans hafi ver ið ó ljóst á þeim tíma. Það voru ó trú lega marg ir sem létu fé af hendi rakna í sjóð inn og gerðu hann að því sem hann er í dag. Sjóð ur inn hef ur ver ið síð an ver ið not að ur til styrkt­ ar efni legu í þrótta fólki en sjálf ur var Auð unn efni leg ur í þrótta mað ur. Minn ing Auð uns lif ir því góðu lífi í þess um far vegi og það hef ur hjálp­ að okk ur mik ið að geta hald ið henni á lofti með þess um upp byggi lega hætti," seg ir Krist mar sem lít ur á sjóð inn sem eign allra í Borg ar nesi. Minn ing ar sjóð ur inn er enn þá starf­ andi og er veitt úr hon um ár lega við sama til efni og út nefn ing í þrótta­ manns Borg ar byggð ar fer fram. Ferða lög og í þrótta ferð ir Eig in kona Krist mars er Íris Hlíð­ kvist Bjarna dótt ir starfs manna­ stjóri hjá Lím tré Vír neti. „Íris bjó á Kveld úlfs göt unni og því höf um við þekkst frá því við vor um krakk ar og við vor um til tölu lega ung þeg ar við fór um að skjóta okk ur sam an. Auð­ unn frum burð ur inn er fædd ur 1981, Bjarni 1986 og Sæv ar 1997. Þeg­ ar við eign uð umst Auð unn þá vor­ um við eig in lega hálf gerð börn sjálf, sitt hvoru meg in við tví tugs ald ur­ inn. Þetta þótti reynd ar ekk ert til­ töku mál þá og þrátt fyr ir ung an ald­ ur held ég að við höf um alið upp mikla efn ispilta. Bjarni út skrif að­ ist sem lög fræð ing ur í vor og er nú í masters námi í HÍ og Sæv ar að klára grunn skóla í vet ur. Þeir hafa báð ir ver ið á kafi í í þrótt um frá unga aldri. Bjarni stund aði frjáls ar, körfu og fót bolta og á einn Ís lands meist arati­ til í knatt spyrnu með 2. flokki ÍA en hef ur leik ið með Skalla grími und an­ far in ár og ver ið þar fyr ir liði. Sæv­ ar hef ur stund að fót bolta og frjáls ar og á einn Ís land meist ara tit il í hvorri grein. Hann ein beit ir sér að frjáls­ um núna og æfir með ÍR í Reykja­ vík. Við keyr um hann tvisvar í viku suð ur til Reykja vík ur á æf ing ar enda að staða til að stunda frjáls ar lít il sem eng in yfir vetr ar mán uð ina hér í Borg ar nesi. Í þrótt ir hafa alltaf leik­ ið stórt hlut verk hjá fjöl skyld unni. Flest sum ar frí frá 1986 hafa meira og minna snú ist í kring um í þrótt ir drengj anna okk ar og gera það enn. Við höf um samt fund ið tíma til að sinna ýmsu öðru. Ferða lög eru þar núm er eitt, við reyn um að ferð ast eins mik ið og hægt er, bæði inn an­ lands og utan. Við höf um und an far­ in ár átt felli­ og hjól hýsi og það er al gengt að við gist um yfir 30 næt ur í því yfir sum ar ið. Við stund um þá göngu ferð ir og fjall göngu og reyn­ um að skoða land ið svona á milli greina og leikja hjá strák un um." Leggja á rækt við yngri flokka starf Eins og vik ið hef ur ver ið að hef ur Krist mar tek ið þátt í skipu lagn ingu í þrótta starfs í mörg ár, þó að al lega í starfi knatt spyrnu deild ar Skalla gríms þar sem hann hef ur ver ið í stjórn í alls 13 ár á 30 ára tíma bili. „Ég tel að stóri lær dóm ur inn af því að vasast í í þrótta starfi á und an förn um árum sé sá að það er yngri flokka starf sem skipt ir mestu máli. Þar á að leggja mesta rækt. Mér finnst kannski að menn hafi unn ið á öf ug um enda und an far in tutt ugu ár og lagt á herslu of mik ið á meist ara flokka hér í bæ. Lyk il at rið ið í öll um grein um er að fá til leiks öfl uga þjálf ara með góða mennt un, reynslu og þekk ingu. Við höf um á und an förn um ára tug um séð frá bæra þjálf ara hér sem skapa stemn ingu og flotta um gjörð á æf­ ing um. Iðk enda fjöld inn hef ur sveifl­ ast upp og nið ur í gegn um árin, allt eft ir því hvern ig þjálf ar ar velj ast til verka. Ég get stutt það gild um rök um að þetta at riði ræð ur mun meiru um fjölda iðk enda en ár ang ur meistar­ flokk anna. Meg in verk efn ið er því að skapa meiri festu í þess um mál um og tryggja að hæf ustu þjálf ar ar séu í starfi, þá næst betri ár ang ur og góð ir í þrótta menn al ast upp í hverri grein. Þá verð ur líka auð veld ara að halda meist ara flokk un um úti," seg ir Krist­ mar sem von ast til að stofn un þjón­ ustu mið stöðv ar UMSB komi til með að styrkja þetta starf í þrótta fé laga og ein stakra deilda þeirra í Borg ar byggð á næstu miss er um. Finn mér fljótt eitt hvað að gera „Núna er ég í þeim spor um að ég er í fyrsta skipt ið á æv inni á milli starfa," seg ir Krist mar um hvað hann hygg­ ist nú fara að gera. „ Þetta er í fyrsta skipti sem ég hætti í vinnu án þess að fara beint í þá næstu. Ég er meira að segja bú inn að skrá mig at vinnu­ laus an sem er pínu skrýt ið en síð ustu ár hafa ein kennst af ó trú lega mik illi vinnu. Það eru þó ýmis verk efni sem ég er að skoða og ýms ar hug mynd ir í gangi sem ég er op inn fyr ir. Ég verð því ör ugg lega fljót ur að finna mér ný verk efni að fást við," seg ir Krist mar Ó lafs son að lok um. hlh Í fjall göngu á Hafn ar fjalli með Borg ar nes í bak sýn. Á samt Sæv ari og Bjarna á Liver pool leik á An fi eld.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.