Skessuhorn - 16.01.2013, Blaðsíða 27
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Launamiðar og
verktakamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt
hafa af hendi launagreiðslur,
hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki,
happdrættis- og talnavinninga
(skattskylda sem óskatt skylda),
greiðslur til verktaka fyrir þjón-
ustu (efni og vinnu) eða aðrar
greiðslur sem framtalsskyldar eru
og/eða skattskyldar.
Bifreiðahlunnindamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem
í rekstri sínum eða annarri
starfsemi hafa haft kostnað af
kaupum, leigu eða rekstri fólks-
bifreiðar.
Hlutafjármiðar
Skilaskyld eru öll hlutafélög,
einkahlutafélög, samlagshluta-
félög, samvinnuhlutafélög og
sparisjóðir.
Viðskipti með hlutabréf
og önnur verðbréf
Skilaskyldir eru bankar, verðbréfa-
fyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem
annast kaup og sölu, umboðs-
viðskipti og aðra umsýslu með
hlutabréf og önnur verðbréf.
Bankainnstæður
Skilaskyldar eru allar fjármála-
stofnanir og aðrir aðilar sem taka
við fjármunum til ávöxtunar.
Lánaupp lýsingar
Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán
og önnur lán. Skilaskyldar eru
allar fjármálastofnanir (bankar,
sparisjóðir, lífeyrissjóðir, trygg-
ingafélög, fjármögnunarleigur
o.s.frv.) sem hafa lánað fé til
einstakl inga.
Stofnsjóðsmiðar
Skilaskyld eru öll samvinnufélög,
þ.m.t. kaupfélög.
Takmörkuð skattskylda
- greiðsluyfirlit
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa
af hendi hvers konar greiðslur til
erlendra aðila og annarra, sem
bera takmarkaða skattskyldu hér
á landi.
Greiðslumiðar
– leiga eða afnot
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa
af hendi hvers konar greiðslur
fyrir leigu eða afnot af lausafé,
fasteignum og fasteignarétt-
indum eða öðrum réttindum.
Hlutabréfakaup
skv. kaupréttarsamningi
Skilaskyld eru öll hlutafélög sem
gert hafa kaupréttarsamninga við
starfsmenn sína samkvæmt stað-
festri kaupréttaráætlun. Sama á
við um söluréttarsamninga.
Fjármagnstekjumiði
Þeir aðilar sem innheimt hafa
vexti skulu skila þessum miða
og tilgreina þar sundurliðun á
móttakendum og þá staðgreiðslu
fjármagnstekjuskatts sem haldið
hefur verið eftir. Hér er einkum
um að ræða smærri innheimtu-
aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum
miða er eingöngu hægt að skila
rafrænt.
Skilafrestur á eftirtöldum gögnum
vegna framtalsgerðar 2013 er til 30. janúar en þeir sem skila
á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2013
Skil á upplýsingum
vegna skattframtals 2013
Vakin er athygli á nýjum launamiðareit, nr. 405, þar sem færa skal íþrótta- og líkamsræktarstyrki.
Einnig er vakin athygli á nýjum launamiðareit, nr. 410, þar sem færa skal samgöngustyrki.
Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt
að 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2011, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða
með óeðlilega lágu endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2012.