Skessuhorn


Skessuhorn - 13.02.2013, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 13.02.2013, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Þeg ar hjón in Krist leif ur Þor steins­ son og Sig rún Berg þórs dótt ir tóku upp á því um 1960 að gera til raun með ferða þjón ustu á Húsa felli, hef­ ur þeim ef laust ekki grun að hvað sú litla þúfa átti eft ir að velta þungu hlassi, svo not að sé þetta gamla orða til tæki. Síð ustu ára tugi hef­ ur ver ið rek in á Húsa felli ein um­ fangs mesta ferða þjón usta á land­ inu og þessi kosta jörð er ekki ein­ ung is frá bær til mót töku á ferða­ fólki, held ur er hún sjálf bær á svo marg an hátt. Ekki síst að því leyti að und ir Húsa fells skóg in um og í næsta ná grenni eru næg ir orku­ gjaf ar, bæði hvað jarð varma og raf­ orku öfl un snert ir. Snemma var far­ ið að hita upp bæj ar hús á Húsa­ felli með jarð hita og þeg ar ferða­ þjón usta byggð ist þar upp var bor­ að eft ir heitu vatni sem hef ur dug­ að til allr ar vatns notk un ar á staðn­ um, kynd ing ar húsa, í heitu pott ana og sund laug ina. Fyrst virkj að 1948 Húsa fell komst ekki inn á dreifi­ kerfi Rarik fyrr en árið 1974. Krist­ leif ur á Húsa felli hafði þörf fyr ir raf ork una miklu fyrr og það kom hon um til góða að fað ir hans Þor­ steinn Þor steins son byggði þar virkj un 1948. Þrátt fyr ir teng ingu við Rarik dugði það ekki til þeg­ ar sum ar hús in hrönn uð ust upp í Húsa fells skógi. Því var önn ur virkj­ un byggð 1978 og nýtti sú virkj un af fall ið frá gömlu virkj un inni auk fleiri vatns linda und an hraun inu. Eft ir að Berg þór son ur Krist leifs og Hrefna Sig mars dótt ir kona hans tóku við rekstri á Húsa felli árið 2000, var þriðja virkj un in byggð og tek in í notk un 2004. Í þá virkj un var nýtt af fall ið frá hin um virkjununum tveim ur að við bætt um lind um sem renna í svo kall aða Stuttá, sem þriðja virkj un in dreg ur nafn sitt af. Og enn á að virkja á Húsa felli. Nú á að nýta mun minna vatns magn, en miklu meiri fall þunga úr Út fjall­ inu gegnt Húsa fells skóg in um. Í því fjalli er gnægð vatns bæði til neyslu, raf magns fram leiðslu og ekki síst fyr ir hita veit una, en tengd henni í dag eru öll 170 hús in á Húsa felli. Ár lega bæt ast við nokk ur hús og á teikni borð inu eru tvö svæði fyr ir alls um 270 bygg ing ar. Nægt vatn und an hraun inu Blaða mað ur Skessu horns brá sér í heim sókn í Húsa fell í síð ustu viku. Ekki síst í þeim til gangi að for vitn­ ast um virkj ana mál in á Húsa felli. Berg þór út skýrði fyr ir blaða manni kosti Húsa fells til að virkja þar til raf orku fram leiðslu. Húsa fells skóg­ ur inn stend ur sem kunn ugt er á hrauni, út jaðr arn ir eru hraun kant­ ur. Und an hraun inu streym ir vatn úr lind um og þeg ar sam an kem ur er um mik ið vatns magn að ræða. Þetta var Þor steinn Þor steins son afi Berg þórs bú inn að sjá þeg ar hann virkj aði fyrst árið 1948, 15 kílóvatta virkj un. Það krútt lega stöðv ar hús stend ur enn og er skammt frá flöt­ inni á ní undu braut golf vall ar ins, þannig að kylfing arn ir virða það gjarn an fyr ir sér þeg ar þeir ljúka leik. Krist leif ur byggði síð an öllu stærri virkj un 1978, þeg ar Rarik gat ekki út veg að raf orku né dreifi kerfi í takt við þá upp bygg ingu sem þá var á Húsa felli. Sú virkj un var 150 kíló vött. Húsa fells bænd ur voru á þess um tíma komn ir með næga raf­ orku fyr ir stað inn og mun meira til, enda hef ur allt frá 2004 ver ið selt raf magn inn á dreifi kerfi Rarik frá Húsa fellsveit unni. Berg þór tel ur að Húsa fells virkj un in hafi ver ið sú fyrsta í eigu ein stak linga sem tengd var inn á net ið. Að spurð ur seg ist Berg þór hafa alist upp við að stúss ast í kring­ um ferða þjón ust una á Húsa felli og þekkti í raun lít ið ann að, fyr ir utan að hafa sótt sér iðn mennt un í bif véla virkj un og tek ið einka flug­ manns próf. Við ný legt hús þeirra í Húsa felli er stór bíl skúr, eða kannski öllu held ur lít ið flug skýli. Það rúm ar tvær litl ar flug vél ar, en önn ur þeirra var reynd ar í skoð un í Reykja vík þeg ar blaða mað ur var á ferð inni. Vatns lind irn ar fang að ar í Stutt ána „Ég hafði eink ar gam an af því að snigl ast í kring um virkj an irn ar með föð ur mín um. Eft ir að við keypt um rekst ur inn af systk in um mín um og tók um við 2000 var ég á kveð inn í að bæta þriðju virkj un inni við. Um þetta leyti vor um við að selja þjón­ ustu mið stöð ina til þeirra Sig ríð­ ar Snorra dótt ur og Þor steins Sig­ urðs son ar sem komu úr Kefla vík og hafa búið hérna sein ustu árin. Ég sá líka hag kvæmni í því sam­ hliða því að ráð ast í nýja virkj un að selja Rarik dreifi kerf ið sem við átt­ um. Þetta létti veru lega und ir við fjár mögn un virkj un ar inn ar," seg ir Berg þór um þriðju virkj un ina sem tek in var í notk un 2004 og fram­ leið ir 450 kíló vött. Þótt það virkj­ un ar hús sé sýnu stærra en hin tvö er það ekki á ber andi í land inu. Stuttá­ in sem virkj un in dreg ur nafn sitt af er mann gerð. Færa þurfti til tals­ vert af efni, til að fanga vatns lind­ irn ar und an hraun inu og eins til að skapa fall frá virkj un inni nið ur að Hvítá sem renn ur þarna skammt und an. „ Þetta var tals verð ur gröft­ ur, en efn ið nýtt ist vel í leng ingu og breikk un flug braut ar inn ar þarna við hlið ina, sem og í vegi og grunna fyr ir hús, en þeim fjölg aði mik­ ið á þess um tíma. Þrátt fyr ir það eru þetta aft ur kræf ar fram kvæmd ir, það væri þess vegna hægt að breyta þessu aft ur í nán ast fyrra horf," seg­ ir Berg þór þeg ar hann vek ur at­ hygli blaða manns á því hvað sjón­ rænu á hrif in eru lít il vegna þess ara fram kvæmda. Urð ar fells virkj un Orð ið orku bóndi er að verða þekkt í móð ur mál inu og Berg þór seg ist nátt úr lega ekki vera neitt ann að. Hrefna skýt ur því inn að þau skipti starf sem inni gjarn an í þrennt. Það er ferða þjón ust an, land eig and inn og orku fram leiðsl an, þá bæði virkj­ an irn ar og hita veit an, en til henn­ ar kem ur vatn ið úr tveim ur bor­ hol um. „Ég lít á mig sem orku­ bónda og það hef ur alltaf ver ið draum ur okk ar hérna að virkja fall­ ið á vatn inu úr Út fjall inu. Þá virkj­ un köll um við Urð ar fells virkj un. Hún er frá brugð in hin um þrem­ ur virkjununum að því leyti að aflið bygg ist á miklu falli vatns ins en ekki vatns magn inu. Til sam an burð ar er vatn ið sem tek ið er inn í Stutt ár­ virkj un sjö og hálf ur rúmmetri á sek úndu og fall hæð in sjö metr ar. Í Urð ar fells virkj un er vatns magn­ ið hálf ur rúmmetri á sek úndu og fall hæð in 260 metr ar," seg ir Berg­ þór, en þetta mikla fall býður upp á fram leiðslu getu upp á 900 kíló vött að með al tali. Til kynn ing um mat­ skyldu er ný kom in til Skipu lags­ stofn un ar rík is ins og Berg þór von­ ast til að öll til skil in leyfi verði kom­ in næsta haust þannig að unnt verði að hefja und ir bún ing næsta sum­ ar. Fram kvæmda tími við virkj un­ ina er á ætl að ur ár, en með stokkn­ um fyr ir vatn ið í virkj un ina verð a um leið virkj að ar kald ar vatns lind ir í Út fjall inu og vatn ið frá þeim leitt í vatns lögn með fram stokkn um. Þar með verð ur kom ið gnægð renn­ andi neyslu vatns fyr ir allt Húsa­ fells svæð ið. Stöðug orku fram leiðsla Eins og áður seg ir er öll raf orku­ fram leiðsla virkj ana á Húsa felli seld til Rarik og þeg ar Urð ar fells virkj­ un verð ur orð in að veru leika, nem­ ur fram leiðsl an um einu og hálfu mega vatti. Berg þór kaup ir að eins brota brot af þeirri orku til baka. Þeg ar hann er spurð ur hvað þessi orka dugi til dæm is fyr ir ná grenni hans í Reyk holts daln um, verð ur Berg þór hugsi, en seg ir síð an eft ir nokkra í hug un. „Ætli það dugi ekki nið ur und ir Reyk holt." Berg þór seg ir að góð ur grund­ völl ur fyr ir rekstri virkj an anna á Húsa felli sé þetta jafn rennsli allt árið und an hraun inu. Þannig að fram leiðsl an er sú sama sum ar og vet ur, sem er mjög hag kvæmt fyr­ ir bæði orku kaup and ann og fram­ leið and ann. Berg þór seg ir eng in rekstr ar vanda mál við virkj un ina, svo sem varð andi ís ingu. Rennsl­ ið er svo stutt úr kalda vermsl lind­ um, það komi ekki einu sinni ís við bakka að vetr in um. Stýri bún að ur er all ur tengd ur tölv um og við halds­ og rekstr ar kostn að ur lít ill. Berg­ þór sýn ir blaða manni hvern ig hann sendi SMS skeyti á stjórn stöð ina, sem síð an svar ar að bragði með öll um tölu leg um upp lýs ing um um fram leiðsl una. Sjálf virkn in er al­ gjör, þannig að nán ast aldrei kem­ ur til stöðv un ar raf orku fram leiðslu. Í þeim und an tekn ing ar til fell um vari það skamma stund. Urð ar fells­ virkj un in, fall virkj un in í Út fjall inu, verð ur ör lít ið frá brugð in, Stutt­ ár virkj un, og gömlu virkjununum Kiðá I og II, að því leyti að hluti vatns ins kem ur und an jökl in um og því gæt ir þar vor leys inga. Á ætl uð raf orku fram leiðsla þar fari úr 800 kW upp í rétt tæp lega þús und." Hjálp ast að við margt Þau Berg þór og Hrefna telja að það hafi ver ið hár rétt skref á sín um tíma að selja þjón ustu mið stöð ina. Með því hafi þau enn bet ur get að ein­ beitt sér að öðr um þátt um ferða­ þjón ust unn ar, svo sem þjón ustu við sum ar húsa eig end ur á svæð inu, Afl vél elstu virkj un ar inn ar frá 1948 mall ar enn. Fjórða kyn slóð virkj ana í und ir bún ingi á Húsa felli Hrefna Sig mars dótt ir og Berg þór Krist leifs son á Húsa felli. Berg þór við skáp inn með stjórn kerfi virkj an anna, sem er mjög sjálf virkt. Afl vél virkj un ar inn ar frá 2004. Elsta virkj un in er frá 1948. Lít ið stöðv ar­ hús ið statt við loka teig golf vall ar ins. Berg þór við gömlu bor hol una í Út fjall inu sem gef ur 20 sek­ úndulítra af sjálfrenn andi heitu vatni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.