Skessuhorn - 10.07.2013, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Byrjað var að frysta makríl í frysti-
húsi HB Granda á Akranesi á mánu-
daginn. Það var snemma um morg-
uninn sem fyrsti aflinn barst á land
og var það ísfisktogarinn Ottó N.
Þorláksson RE 203, sem sigldi inn í
Akraneshöfn með 35 til 40 tonn af
makríl. Stuttu síðar hófst svo fryst-
ing á aflanum og þar með var mak-
rílvertíðin á Akranesi hafin. Verður
vertíðin í tvær vikur að þessu sinni
og er makríll eini fiskurinn sem
verður unninn í húsinu á meðan, að
sögn Lilju Þórðardóttur, verkstjóra
í landvinnslunni á Akranesi.
jsb Safnadagurinn var í Landbúnaðar-
safni Íslands á Hvanneyri á sunnu-
daginn, eins og í þorra annarra
safna landsins. Ýmislegt var í boði
enda um 250 manns sem komu við
og nutu dagskrárinnar. Farin var
kaupafólksganga á Hvanneyrarfit.
Meðferðis voru sláttutæki tveggja
tíma: Orf og aldraðar dráttarvélar
safnsins með tilheyrandi sláttuvél-
um. Haldið var örnámskeið í orf-
slætti, þar sem Bjarni Guðmunds-
son safnstjóri og Sveinn Hallgríms-
son bóndi á Vatnshömrum önnuð-
ust jafningjafræðsluna. Landbún-
aðarsafnið var opið og var aðgang-
ur ókeypis. Kvenfélagið 19. júní
var með vöfflukaffi í Skemmunni,
Hvanneyrarkirkja var til sýnis og
einnig Halldórsfjós, en í hlöðu þess
fór fram lokaatriði dagskrárinnar -
brekkusöngur undir stjórn Bjarna
Guðmundssonar og Snorra Hjálm-
arssonar bónda á Syðstu Fossum.
Reyndist hljómburður hlöðunn-
ar vera hinn ágætasti, en prófun
hans var einn helsti tilgangur söng-
stundarinnar.
mm/bg/ Ljósm. Ásdís Helga
Bjarnadóttir.
Þessa dagana er allt á fullu í og við
verksmiðjuhús Norðursalts á Reyk-
hólum. Allur búnaður til fram-
leiðslunnar er kominn í húsið. Þar
er nú unnið að lokafrágangi við
húsið um leið og niðursetning bún-
aðarins fer fram. Áætlað er að til-
raunavinnsla á flögusalti hefjist um
næstu mánaðamót og fyrsta fram-
leiðslan fari á markað í ágúst. Saltið
verður unnið úr sjónum af sölturum
sem nostra við það á stórri pönnu,
ekkert ósvipað því sem gert var á
Reykhólum fyrir nokkrum hundr-
uðum árum þegar þar var starfrækt
saltverksmiðja á vegum Innrétt-
inga, fyrirtækis Skúla Magnússon-
ar landfógeta.
Í vetur reis á nýja hafnargarðinum
á Reykhólum 540 fermetra verk-
smiðjuhús Norðursalts. Þessa dag-
ana er unnið að niðurlögn sjólagna
við garðinn og uppsetningu tanks
þar sem sjótakan fer fram. Garð-
ar Stefánsson saltari, annar eigandi
fyrirtækisins, segir að við tank-
inn sé eimingarbúnaður sem eim-
ar saltið og náttúruleg næringarefni
úr sjónum niður í að þau verði 25%
og sjórinn þá enn í vökvaformi.
Þegar vökvinn síðar kemur inn yfir
pönnuna eykst efnainnihaldið strax
í 26% og fellur þá sem fast efni,
saltflögur, á pönnuna. Saltarinn
nostrar síðan við saltið á pönnunni.
„Þetta er handverk og við ætlum að
framleiða virkilega góða og fallega
afurð sem verður eftirsótt til mat-
argerðar,“ segir Garðar. Hann seg-
ir að búast megi við að nokkurn
tíma taki að fullkomna vinnsluna
og vinnsluferlið og varan verði ekki
sett á markað fyrr en gæðin standist
ýtrustu kröfur.
Kúnst í handverkinu
Eins og Skessuhorn hefur áður vik-
ið að er Norðursalt, saltverksmiðj-
an á Reykhólum, dönsk/íslensk
samvinna, en meðeigandi Garðars
í fyrirtækinu er Sören Rosenkilde.
Fyrirtæki þeirra félaga er skemmti-
leg skírskotun í söguna þar sem að
þeir eru í raun að endurvekja tilraun
sem Skúli Magnússon landfógeti
gerði í dansk-íslenska félaginu Inn-
réttingum um miðja átjándu öld.
Þá ætluðu Danir að nútímavæða Ís-
land í samvinnu við Skúla m.a. með
því að hefja saltvinnslu á Reykhól-
um og Reykjanesi. Að grunni til
verður sömu tækni beitt við salt-
vinnsluna nú og þá, í opnu kerfi á
pönnu. „Þetta er ákveðin kúnst sem
þarf við framleiðsluna en við höf-
um m.a. fram yfir Skúla og félaga
nútíma tækni. Við vinnsluna þarf
mikla orku og þar kemur hvera-
vatnið til góða. Við framleiðum
saltið úr hráum sjó úr Breiðafirði,
sem að sjálfsögðu er marineraður
í öllum þaranum og þörungunum
sem þar er að finna áður en hann er
eimaður,“ segir Garðar saltari.
þá/ Ljósm. bae.
Meistaramót golfklúbbsins Leynis
hófst á Garðavelli á Akranesi sl.
mánudag. Þann dag og þriðju-
daginn spiluðu framtíðar kylfing-
ar Leynis fimm brautir hvorn dag
og aðstoðuðu foreldrar krakkana
við spilamennskuna. Krakkarnir
skemmtu sér vel á mótinu í mildu
og góðu veðri og allir fengu verð-
laun og veitingar að keppni lok-
inni. Í dag, miðvikudag, hófu eldri
kylfingar leik en meistaramót GL
stendur yfir fram á laugardag. Þessa
daga standa víða um land yfir meist-
aramót golfklúbba. sko
Makríllinn fór um svipað leyti að veiðast við strendur Vesturlands. Fjöldi manns
lagði leið sína niður að bryggju í Grundarfirði síðastliðið mánudagskvöld og bók-
staflega mokaði upp makrílnum við höfnina. Það var líf og fjör við höfnina enda
margar aflaklær að störfum. Ljósm. tfk.
Landvinnsla á makríl hafin
í HB Granda á Akranesi
Stelpurnar raða makrílnum þétt í lausfrystinn. Ljósm. jsb.
Mannmargt á Safnadegi á Hvanneyri
Þessir ungu kylfingar Leynis stóðu sig vel og voru að vonum ánægðir með verðlaunapeningana. Ljósm. gó.
Ungir kylfingar kepptu á meistaramóti
Gert klárt fyrir framleiðslu gæðasalts á Reykhólum
Starfsmenn sem vinna við mannvirkin. F.v. Ágúst, Bjarni og loks Garðar Stefánsson. Vörumerkið fyrir flögusaltið frá
Reykhólum í merkinu á bílhurðinni. Í því er höfðað til þjóðsagna, svo sem um hafmeyjuna, og skírskotað um leið til gamalla
tíma eins og línurnar í merkinu bera með sér.
Garðar með málningarrúlluna og
Ágúst.
Mynd tekin í hafnarminninu á Reykhólum. F.v. bryggjan, Þörungaverksmiðjan og
til hægri er hús Norðursalts.