Skessuhorn - 10.07.2013, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Pennagrein
Hestamannafélagið Faxi var
stofnað 23. mars 1933 í Borgar-
nesi og voru stofnendur 15 ein-
staklingar úr Borgarfirði. Fyrstu
stjórnina skipuðu Ari Guðmunds-
son í Borgarnesi, sem var formað-
ur, Ásgeir Jónsson á Haugum og
Helgi Ásgeirsson í Borgarnesi. Í
lögum félagsins segir meðal ann-
ars svo: „Markmið félagsins er að
vernda og efla hestamennskuna
í landinu, stuðla að bættri með-
ferð hrossa, efla hestaíþróttir og
kynbætur reiðhrossa.“ Starfsemi
Faxa var fræðslustarfsemi, árleg-
ar kappreiðar, gæðingakeppni, af-
kvæmasýningar, tamninganám-
skeið og að eiga góðhesta til kyn-
bóta.
Árið 1946 voru félagar í Faxa
85 auk 29 ævifélaga, eða sam-
tals 114. Á tíu ára afmæli félags-
ins 1943, var haldið hóf í Hvítár-
vallaskála með borðhaldi, ræðu-
höldum, söng og skemmtiefni
og mættu þar um níutíu manns.
Sömuleiðis var haldið hóf í Borg-
arnesi á tuttugu og fimm ára af-
mæli félagsins með borðhaldi og
skemmtiatriðum og var þar mikill
fjöldi manna.
Stóðhesturinn Skuggi
Varðandi kynbætur, var keyptur
í nóvember árið 1946 stóðhest-
urinn Skuggi frá Bjarnarnesi, nr.
201, þá níu vetra. Var hann keypt-
ur af Hrossaræktarfélagi Gnúp-
verja á 6.500 kr. og þótti mjög
dýr. Hestamannafélagið Faxi átti
Skugga í nítján ár, eða þar til hann
var felldur 8. september 1956 og
heygður með öllum reiðtygjum við
félagsheimili Faxa að Faxaborg.
Var hann þá þrotinn að heilsu og
kröftum.
Skuggi var afburða viljahest-
ur, gangviss og ganggóður svo að
af bar. Vissulega var Skuggi um-
deildur, eins og gengur, menn ým-
ist dáðu hann, eða menn sáu hon-
um allt til foráttu. Skuggi var mik-
ið notaður til undaneldis og varð
afkomendahópur hans mjög stór.
Á Landsmóti Landssambands
hestamanna (LH) við Skógarhóla
á Þingvöllum 1958 áttu um sextíu
sýningar og keppnishross ættir sín-
ar að rekja til stóðhestsins Skugga.
Skuggi var sýndur á Landbúnað-
arsýningunni í Reykjavík 1947. Á
þeirri sýningu var hann talinn af-
burðagæðingur í reiðhestaflokki,
fremstur í sínum flokki og hlaut
Sleipnisbikarinn, sem þá var keppt
um í fyrsta sinni. Sennilega hefur
Skuggi þar staðið á hátindi frægð-
ar sinnar.
Landssamband
hestamanna
LH var stofnað árið 1949. Í undir-
búningsnefnd voru valdir tveir full-
trúar Borgfirðinga, þeir Gunnar
Bjarnason og Ari Guðmundsson frá
Faxa. Aðrir í nefndinni voru Björn
Gunnlaugsson Reykjavík, Bogi
Eggertsson Reykjavík og Hjalti
Gestsson. Stofnfundurinn var svo
haldinn 18. og 19. desember 1949,
í „Baðstofu iðnaðarmanna“ (nærri
Iðnó í Reykjavík), og voru þar full-
trúar tólf hestamannafélaga og var
þar fyrsta stjórnin kjörin. Formaður
var kjörinn, H.J. Hólmjárn fulltrúi
Fáks, með 11 atkvæðum, Ari Guð-
mundsson fulltrúi Borgfirðinga var
kjörinn ritari, einnig með 11 at-
kvæðum og Pálmi Jónsson Reykja-
vík kjörinn gjaldkeri, einnig með 11
atkvæðum. Meðstjórnendur voru
Hermann Þórarinsson Blönduósi
og Steinþór Gestsson Hæli.
2. júlí 1950 hélt Landssamband
hestamanna kvöldvöku í útvarpinu.
Þar var stefna og starfsemi sam-
bandsins kynnt og flutti þar fulltrúi
Borgfirðinga, Ari Guðmundsson
formaður Faxa, ávarp fyrir hönd
LH.
Faxaborg
Í upphafi fékk félagið afnot af
mannvirkjum Ungmennasambands
Borgarfjarðar (UMSB) á Ferju-
kotsbökkum til mótshalds og kapp-
reiða í góðri samvinnu við land-
eigendur. Þegar UMSB hætti að
sinna viðhaldi á mannvirkjum sín-
um, sem voru úr sér gengin, enda
32 ára gömul, var ákveðið að reisa
félagsheimili fyrir starfsemi Faxa.
UMSB hafði ekki áhuga á að taka
þátt í nýrri byggingu, en lagði til
fjármagn, sem var nálægt húsaleigu
UMSB til tíu ára í hinu nýja hús-
næði. Fjármögnun húsnæðisins var
erfið fyrir svo lítið félag. Eftir neit-
un frá helstu lánastofnunum svo
sem Sparisjóði héraðsins, Félags-
heimilasjóði og Fjárfestingaráði,
var ákveðið að afla fjármagns innan
félagsins. Fjármögnunin var með-
al annars þannig, að stofnað var
þrisvar til happadrættis, tekjur voru
af mótahaldi, félagsgjöldum, lítils-
háttar gjafir fengust, og mikil sjálf-
boðavinna var lögð fram. Einnig
lánuðu þrír einstaklingar verulega
fjármuni.
Faxaborg var reist á sex vikum
vorið 1952. Húsið var tæplega fjög-
ur hundruð fermetrar að flatarmáli.
Samningur var gerður við landeig-
endur um leiguréttindi til ársloka
2000.
Kostnaður við byggingu hússins
var um 170 þúsund krónur og einn-
ig hafði verið útbúinn skeiðvöll-
ur, sem vígður var árið 1949. Var
kostnaður við hann um 30 þúsund
kr. Samtals kostuðu þessar fram-
kvæmdir um 200 þúsund krónur,
þar með talinn kostnaður við girð-
ingar og fleira. Árið 1958 var skuld
félagsins 20 þúsund krónur og þótti
það undraverður árangur. Hesta-
mannafélagið Faxi var fyrsta hesta-
mannafélagið á Íslandi til að eign-
ast sitt eigið félagsheimili.
Í stjórn Faxa fyrstu árin,
frá 1933 til 1959, voru:
Ari Guðmundsson Borgarnesi,
tuttugu og tvö ár formaður.
Símon Teitsson Borgarnesi, tvö ár
formaður og níu ár ritari.
Sigursteinn Þórðarson Borgarnesi,
átta ár gjaldkeri.
Kristján Fjeldsted Ferjukoti, gjald-
keri fimm ár og þrjú ár ritari.
Björn Guðmundsson Borgarnesi,
sjö ár gjaldkeri.
Helgi Ásgeirsson Borgarnesi, fjög-
ur ár gjaldkeri.
Þorgeir Þorsteinsson, Mið-Fossum
fjögur ár ritari.
Ágúst Jónsson Þverholtum
(Sveinsstöðum), fjögur ár ritari.
Eyvindur Ásmundsson Borgarnesi,
fjögur ár meðstjórnandi.
Daníel Teitsson Grímarsstöðum,
þrjú ár ritari.
Guðmundur Pétursson Hesti, þrjú
ár meðstjórnandi.
Ásgeir Jónsson Haugum, tvö ár
ritari.
Gunnar Bjarnason Hvanneyri, tvö
ár formaður.
Þórður Eggertsson Borgarnesi, eitt
ár gjaldkeri.
Einar Gíslason Hesti, eitt ár með-
stjórnandi.
Hrossaræktardeild Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar var stofnað
1954 og fyrsti formaður var Ing-
ólfur Guðbrandsson Hrafnkels-
stöðum, Páll Sigurðsson og svo
Ari Guðmundsson formaður til
dauðadags 21. maí 1959.
Hér hefur verið, í stuttu máli,
farið yfir sögu Faxa á árunum 1933
til 1959 og byggt á gögnum Ara
Guðmundssonar. Síðari ár þessa
tímabils eru mér mjög minnisstæð.
Á þeim árum voru orðin Hesta-
mannafélagið Faxi og Skuggi nán-
ast sem órjúfanleg heild, svo ná-
tengur var Skuggi Faxa og Faxi
Skugga. Því miður var nafnið
Skuggi tekið til nota á öðru hesta-
mannafélagi og er það von mín að
náist að sameina þessi nöfn aftur í
nýju félagi með sína nýju Faxaborg
í Borgarnesi.
Í síðasta tölublaði Skessuhorns,
var umfjöllum um Faxa og LH,
sem mér fannst ekki að öllu leyti
rétt. Þess vegna er þessi samantekt
meðal annars send Skessuhorni
til birtingar. Vona ég að lesendur
hafi gaman að rifja upp gamla tíð
og sennilega munu einhverjir aðr-
ir minnast áranna eftir 1959, núna
á afmælisárinu. Ég tel að Hesta-
mannafélagið Faxi hafi verið eitt af
öflugustu félagasamtökum í Borg-
arfirði á þessum árum.
Að lokum sendi ég Hestamanna-
félaginu Faxa árnaðaróskir í tilefni
afmælisins.
Reykjavík í júlí 2013,
Hreinn Ómar Arason.
Ljósmyndir Ólöf Sigvaldadóttir.
Hestamannafélagið Faxi 80 ára - upphafsárin 1933 til 1959
Ari Guðmundsson og Skuggi á Landbúnaðarsýningunni í Reykjavík árið 1947.
Ari Guðmundsson og Skuggi. Myndin er tekin í Borgarnesi 1953.
Félagsheimili Faxa á Faxaborg byggt árið 1952.