Skessuhorn - 09.10.2013, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Jón Benediktsson starfsmaður
Vegagerðarinnar í Búðardal hef-
ur haft meðal starfa að undanförnu
að líma ný endurskinsmerki á veg-
stikur á starfssvæði Vegagerðarinn-
ar í Búðardal. Jón segir að það sé
ekki sökum veðra og vinda að líma
þurfi ný endurskinsmerki á vegstik-
urnar heldur vegna bíræfinna þjófa
sem kroppa endurskinið af og stela
því. Vefurinn budardalur.is segir
frá þessu, en í frétt á vefnum seg-
ir að ekki sé hér um lögreglumál
að ræða, þar sem starfsmenn Vega-
gerðarinnar í Búðardal hafa komist
að því að hrafnar setjast á vegstik-
urnar, kroppi svo endurskinið af og
fljúga með þau í burtu. Jón Bene-
diktsson segir krumma hafa ver-
ið afar iðinn við þessa iðju að und-
anförnu, kroppað endurskin af 150
vegstikum á tæpri viku. Í heildina
hafi þurft að skipta um endurskin á
um það bil 500 vegstikum á þessu
ári vegna þessa uppátækis krumma.
Af þessu hlýst töluverður kostnað-
ur, bæði í kaupum á glitborðum,
en ekki síður vinnu og akstri við að
endurnýja borðana.
þá
SAFT, samfélag fjölskyldna og
tækni, hefur í samstarfi við aðstand-
endur stuttmyndarinnar „Fáðu já!“
gefið út gagnvirt námsefni fyr-
ir netið í formi þriggja sjálfsprófa.
Þeim er ætlað að höfða til unglinga
á efsta stigi grunnskóla en efnið
gæti einnig nýst til lífsleiknikennslu
í framhaldsskólum. Sjálfsprófin eru
aðgengileg á heimasíðu Fáðu já!;
http://faduja.is/ Eitt prófið fjallar
um internetið og mikilvægi þess að
horfa gagnrýnum augum á birting-
armyndir kynjanna á netinu. Netið
gefur ekki alltaf rétta mynd af raun-
veruleikanum, það ber að umgang-
ast það af ábyrgð og varúð og er not-
endum prófsins bent á það. Annað
prófið fjallar um klám og mikilvægi
þess að skilja að klám endurspegl-
ar ekki kynlíf eins og það er í raun-
veruleikanum. Einnig kemur fram í
prófinu að sumt klám er í raun of-
beldisefni og hverjum smelli fylgir
ábyrgð. Þriðja prófið fjallar um
kynlíf og mikilvægi þess að fá já, því
samþykki er grundvallaratriði þeg-
ar kemur að kynlífi, óháð kyni og
kynhneigð þátttakenda. Einnig er
fjallað um getnaðarvarnir og til-
finningatengsl í prófinu.
Höfundur sjálfsprófanna er Þór-
dís Elva Þorvaldsdóttir, sem skrifaði
handritið að „Fáðu já!“ en mynd-
inni er meðal annars ætlað að skýra
mörkin á milli kynlífs og ofbeld-
is, vega upp á móti áhrifum klám-
væðingar og innræta sjálfsvirð-
ingu í nánum samskiptum. SAFT
er vakningarátak um örugga tækni-
notkun barna og unglinga á Íslandi.
Verkefninu er ætlað að efla vitund
um hvernig hægt er að njóta netsins
og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan
og fræðandi hátt. grþ
Ný sjálfspróf fyrir unglinga
aðgengileg á netinu
Glysgjarn krummi stelur
endurskinsborðum
Björn Bjarki (t.v.) er annar af frumkvöðlum Sauðamessu. Hér er hann ásamt Árna
vini sínum Jónssyni.
Tvíburar Árnasynir Guðjónssonar átta mánaða voru mættir vel klæddir.
Bollakökur að hætti dagsins. Nemendur í 9. bekk Grunnskólans í Borgarnesi seldu kökur til styrktar útskriftar-
sjóði.
Kristján og Margrét frá Uppheimum kynntu og seldu bókina um Sauðfjárrækt. Geiri frá Kvíum og Haukur frá Snorrastöðum í góðum gír.
Jóhanna Sigmundsdóttir formaður
Ungra bænda flutti stutt ávarp.
Bárður Jökull Bjarkarson sigraði í
lærakappátinu. Sporðrenndi 540
grömmum á þremur mínútum. Kepp-
endur að þessu sinni voru langt frá
gildandi Íslandsmeti sem Baldur Jóns-
son á, en met hans stendur óhaggað,
vel á átta hundruð grömm.
Hún Gunna Dan stjórnaði tískusýningu
RKÍ verslunarinnar í Borgarnesi af
stakri prýði. Hér er hún uppáklædd.