Skessuhorn - 09.10.2013, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Í tilefni af alþjóðlegum degi barns-
missis standa Englamömmur á
Akranesi og nágrenni fyrir góð-
gerðartónleikum í Tónbergi, sal
Tónlistarskóla Akraness. Tónleik-
arnir verða þriðjudaginn 15. októ-
ber og hefjast kl. 20. Aðgangseyr-
ir er 2.000 krónur. Fram koma
hljómsveitirnar Ylja og Þýða, Tin-
datríóið, Arnheiður Hjörleifsdóttir,
Jónína B. Magnúsdóttir og Helga
Ingibjörg Guðjónsdóttir. Einnig
mun hljómsveitin Ókí dókí spila,
en hana skipa Samúel Þorsteins-
son, Heiðrún Hámundardóttir,
Elfa Margrét Ingvadóttir, Gunnar
Sturla Hervarsson og Gunnhildur
Vilhjálmsdóttir. Tilgangurinn með
söfnuninni er að afla fjár til að bæta
aðstöðu á sjúkrahúsinu og kapell-
unni á Akranesi fyrir þá sem missa
börn. Einnig verður hægt að panta
svokallaða kertaklemmu á staðnum
og mun allur ágóði sölunnar renna
beint til málefnisins. Allir listamenn
og aðrir sem koma að tónleikunum
gefa vinnu sína. Einnig er hægt að
styrkja málefnið með því að leggja
inn á eftirfarandi reikning í Íslands-
banka: 552-14-401811. Kennitala:
110371-3309.
grþ
Næstkomandi sunnudag, 13. októ-
ber, heldur Kalman – listafélag
sannkallaða fjölskyldutónleika í
Tónbergi og hefjast þeir kl. 18.
Þetta er klukkustundar löng dag-
skrá þar sem söngvararnir Þór
Breiðfjörð og Valgerður Guðna-
dóttir fara á kostum í túlkun sinni
á lögum úr söngleikjum og Disney-
myndum. Þarna finna allir aldurs-
hópar eitthvað við sitt hæfi. Full-
orðnir fá að heyra nokkrar söng-
leikjabombur og krakkarnir fá uppá-
haldslögin úr Disney-myndunum.
Þór Breiðfjörð var valinn söngv-
ari ársins 2012 fyrir hlutverk sitt
í Vesalingunum og þessa má geta
að hann syngur fyrir keisaramör-
gæsina í Happy Feet 2. Valgerður
Guðnadóttir er orðin ein þekktasta
söngkona landsins og hefur einmitt
ljáð Disney persónum eins Poca-
hontas, Mulan og Litlu Hafmeyj-
unni rödd sína. Meðleikari þeirra
á píanó er Vignir Þór Stefánsson.
Einnig kemur fram sérstakur söng-
hópur stúlkna sem settur var saman
fyrir þessa tónleika og nefnist hann
Disneyhópur Kalmans.
Aðgangseyrir á tónleikana er kr.
2.000 en frítt er fyrir börn 12. ára
og yngri. Kalmansvinir fá 20% af-
slátt.
Allir geta gerst Kalmansvinir.
Þeir greiða árgjald og mynda með
því nauðsynlegan fjárhagsgrunn
fyrir félagið. Í staðinn fá Kalman-
svinir 20% afslátt af miðaverði fyr-
ir tvo á alla viðburði sem Kalman
stendur fyrir . Allar upplýsingar
gefur Sveinn Arnar í síma 865-8974
en einnig er hægt að senda tölvu-
póst á netfangið kalmanlistafelag@
gmail.com -fréttatilkynning
Mánudaginn 30. september sl.
voru spil Briddsfélags Borgarfjarð-
ar loks stokkuð og gefin eftir sum-
arfrí. Spilað var í Logalandi að
vanda og mættu 8 pör til leiks, eitt-
hvað klikkaði blaðafulltrúi stjórn-
arinnar á auglýsingunum. Þorvald-
ur Pálmason og Þórður Þórðarson
komu að sunnan og rúlluðu heima-
mönnum upp, skoruðu rúmlega
60% og hurfu glaðbeittir á braut.
Guðmundur Arason og Elín Þóris-
dóttir urðu þeim næst með 55,8%,
þriðja sætið kom í hlut Jóns Eyjólf-
sonar og Baldurs Björnssonar en
unglingalandsliðsmennirnir okk-
ar, Heiðar Baldursson og Logi Sig-
urðsson, urðu í því fjórða. Þeir eru í
feikna formi enda nýkomnir af stór-
móti á Azoreyjum. Næst var spilað
7. október sl. og enn bar á auglýs-
ingaleysi og pörunum fækkaði um
eitt frá fyrsta kvöldi. Jón á mjólk-
urbílnum var í sérflokki og skoraði
rúmlega 60%, þrátt fyrir að vera
með Húskarlinn í taumi. Heiðar
og Logi urðu í öðru sæti með 54%
og Eyjólfur Örnólfsson og Magn-
ús B Jónsson í því þriðja með 52%.
Næsta mánudagskvöld verður á
boðstólnum léttur tvímenningur
og nóg er plássið! ii
Ég undirritaður, Stefán Skafti
Steinólfsson stjórnarmaður í UMFÍ
og gjaldkeri Umf. Skipaskaga Akra-
nesi, óska eftir stuðningi ykkar les-
endur góðir í kjöri til formanns
UMFÍ. Sambandsþing UMFÍ verð-
ur haldið í Stykkishólmi um næstu
helgi.
Kosningaloforðin eru eftirfar-
andi: Ég býð mig fram til þjónustu
en ekki valda. Mun leitast við af
fremsta megni að rækta tengsl við
grasrótina og veita opinni og gegn-
særri stjórnsýslu brautargengi. Fara
eftir lögum og markmiðum UMFÍ
um ræktun lýðs og lands og varð-
veita það sem rammíslenskt er með
skýrri framtíðarsýn og jákvæðni.
Íslandi allt!
Stefán Skafti Steinólfsson,
Akranesi.
„Þessar sómastúlkur, Rúna Björk
Guðmundsdóttir og Hafrún Tinna
Hafsteinsdóttir, komu nýverið fær-
andi hendi á skrifstofu Rauða kross-
ins á Akranesi með 7.518 krón-
ur. Þær söfnuðu með því að ganga
í hús og safna flöskum. Ósk þeirra
var sú að peningarnir myndu bæta
hag bágstaddra barna þar sem þörf-
in er mest. Það er ekki amalegt
að eiga svona bakhjarla og Rauði
krossinn sendir þeim stöllum hug-
heilar þakkir fyrir þeirra mikilvæga
framlag,“ segir í tilkynningu frá
RKÍ á Akranesi.
mm
Hinn árlegi hópleikur er farinn af stað
í Grundarfirði. Umsjónarmaður er
Guðmundur Gíslason eins og fyrri ár
og nokkuð ljóst að spennandi barátta
er framundan. Tippleikurinn skipar
fastan sess hjá mörgum í Grundarfirði
enda er oft kátt á hjalla þegar að hóp-
arnir hittast alla laugardagsmorgna
á RúBen og fara yfir málin og skila
inn vinningsseðlunum. Á myndinni er
Gummi Gísla að fara yfir málin með
áhugasömum tippurum.
tfk
Lista- og menningarnefnd Snæ-
fellsbæjar bauð á sunnudagskvöld-
ið upp á tónleika með þeim Helgu
Rós Indriðadóttir sópransöngkonu
og Guðrúnu Dalíu Salómónsdótt-
ir, píanista í Safnaðarheimili In-
gjaldshólskirkju á Hellissandi. Fjöl-
menni kom á tónleikana og undir-
tektir góðar, enda flutningur söngs
og undirleiks góður. Tíundi bekk-
ur Grunnskóla Snæfellsbæjar bauð
upp á vöfflukaffi í hléinu með mikl-
um myndarbrag. Tónleikarnir voru
haldnir í samvinnu við Félag ís-
lenskra tónlistarmanna með styrk
frá mennta- og menningarmála-
ráðuneyti.
mm
Hafin er vinna við gerð skólastefnu
Grundarfjarðarbæjar. Í gær var
haldinn umræðu- og hugarflugs-
fundur með foreldrum barna í leik-
skóla, grunnskóla og tónlistarskóla
Grundarfjarðarbæjar. Síðar verður
fundur með starfsfólki skólanna og
einnig mun öllum íbúum Grundar-
fjarðar gefast kostur á að leggja fram
sínar áherslur. Gert er ráð fyrir að
vinnu við gerð skólastefnu ljúki í vor.
Stýrihópur hefur verið stofnaður um
verkefnið og hefur honum verið fal-
ið að taka að sér yfirumsjón með
vinnunni. Í hópnum eru Aðalsteinn
Þorvaldsson sóknarprestur, Anna
Bergsdóttir skólastjóri grunnskólans,
Ásthildur E. Erlingsdóttir formaður
skólanefndar, sem jafnframt er for-
maður hópsins, Matthildur S. Guð-
mundsdóttir leikskólastjóri og Sig-
ríður G. Arnardóttir fulltrúi í skóla-
nefnd. Áður hafði Gunnar Kristjáns-
son verið ráðinn verkefnisstjóri.
Í frétt Grundarfjarðarbæjar vegna
gerðar nýrrar skólastefnu segir að í
stuttu máli sé skólastefna leiðarvís-
ir um skólastarf í sveitarfélaginu.
„Skólastefna er grundvöllur fyr-
ir ákvarðanatöku og skýrir hvaða
leiðir á að fara til að ná áætluðum
árangri. Jafnframt er leitast við að
skýra þau grunngildi sem aðilar
skólasamfélagsins vilja að skólarnir
standi fyrir og einkenni störf þeirra.
Skólarnir eru mikilvægustu stofn-
anir samfélagsins. Nauðsynlegt er
að skólarnir séu í stöðugri þróun í
takt við breytingar í samfélaginu,“
segir m.a. í greinargerð um skóla-
stefnuna.
þá
Fimmtudaginn 17. október nk.
ætla nemendur og starfsfólk GBF á
Kleppjárnsreykjum að hafa haust-
markað með ýmsum uppákomum.
Mun hann hefjast að loknum skóla-
degi klukkan 15:05 og standa til
klukkan 18 eða lengur ef stemningin
verður góð. Í tilkynningu frá skólan-
um segir að allir séu velkomnir.
„Nemendur skólans hafa unnið að
þessum markaði í áhugasviðsvali það
sem af er þessu hausti. Þeir hafa gert
ýmsa muni sem verða til sýnis og eða
sölu, jafnvel á uppboði. Mikið hef-
ur borist af fatnaði, leikföngum og
fleiru sem selt verður á vægu verði.
Einnig hafa þau undirbúið kynning-
ar um ýmis efni t.d. vélar og íþrótta-
menn. Nemendur hafa æft ýmis at-
riði og munu flytja þau auk þess sem
DJ-Árni mun leika fyrir gesti. Gest-
um verður boðið í íþróttahúsið eða á
völlinn til leiks. 9. bekkurinn hefur
verið að kynna sér aðstæður í flótta-
mannabúðum og mun koma á óvart
með frumlegri kynningu á þeim og
10. bekkurinn verður með kaffisölu
og rennur ágóði hennar í ferðasjóð
bekkjarins. Allur annar ágóði mun
renna til styrktar góðra málefna sem
nánar verður greint frá síðar,“ segir
Ingibjörg Adda Konráðsdóttir deild-
arstjóri.
mm
Söfnuðu flöskum og gáfu RKÍ
Tónleikar í
Ingjaldshólskirkju
Fjölskyldutónleikar í Tónbergi
Englamömmur með góð-
gerðartónleika í Tónbergi
Nemendur í Grundarfirði á góðri stundu.
Vinna hafin við skólastefnu
Grundarfjarðar
Frá Briddsfélagi Borgarfjarðar
Tippleikurinn í
Grundarfirði
Nemendur á Kleppjárnsreykjum fögnuðu snjónum sem fallið hafði sl. þriðjudagsmorgun.
Haustmarkaður Grunnskóla
Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum
Býð mig
fram til
forystu
UMFÍ
Pennagrein