Gaflari - 03.04.2014, Síða 2
2 - gaflari.is
FRÉTTIR Sjálfstæðismenn í bæjar-
stjórn eru ósáttir við afgreiðslu
meirihlutans á tillögu um að greiða
hratt niður skuldir bæjarins.
Sjálfstæðismenn lögðu fyrir bæjar-
stjórn í síðustu viku tillögu Valdi-
mars Svavarssonar, bæjarfulltrúa,
um að fara nýjar leiðir til að greiða
niður skuldir bæjarins. Vildu Sjálf-
stæðismenn að samþykkt yrði vilja-
yfirlýsing bæjarstjórnar um að for-
gangsraðað yrði með þeim hætti að
hluti af tekjum af sölu lóða bæjarins
yrði ráðstafað til að grynnka á lang-
tímaskuldum bæjarins. Kom fram í
tillögunni að 90% af andvirði sölu
atvinnulóða og 50% af andvirði sölu
íbúðalóða færi beint í niðurgreiðslur
á lánum.
Meirihluti VG og Samfylkingar
samþykkti að fjalla um tillöguna í
bæjarráði. Þar var tillagan felld af
meirihlutanum. Kemur fram í bókun
meirihlutans að tillagan sé óþörf, því
ekki er nauðsynlegt að bæjarstjórn
geri skuldbindandi samþykktir um-
fram það sem felst í þeim samning-
um og öðrum skuldbindingum sem
gerðar hafa verið.
Sjálfstæðismenn voru ósáttir við
afgreiðsluna og sögðu bæjarbúa
langþreytta á því að lengja í skuldaól
bæjarins, eins og segir í bókun minni-
hlutans. Með afstöðu sinni megi ráða
að meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar sé ekki tilbúinn til að setja sér
þau markmið að hverfa frá fyrri braut
skuldasöfnunar.
FRÉTTIR Á laugardaginn er langur
laugardagur í miðbæ Hafnarfjarðar.
Verslanir í miðbænum og Miðbæjar-
samtökin hafa tekið höndum saman
til að efla verslun og miðbæjarlífið í
Hafnarfirði. Menningar- og listafélag
Hafnarfjarðar leggur einnig sitt að
mörkum og stendur fyrir færeyskri
matar- og tónlistarveislu í Fjöru-
kránni.
„Hafnarfjörður er mjög fallegur bær
sem hefur upp á mikið að bjóða,“ segir
Auðunn G. Árnason, stjórnarmaður í
Miðbæjarsamtökunum. „Með löngum
laugardegi viljum við vekja athygli á
miðbæ Hafnarfjarðar sem skemmti-
legum viðkomustað bæði fyrir Hafn-
firðinga og utanbæjarfólk. Á svæði
sem er ekki meira en fimm mínútna
gangur má finna skemmtilegar versl-
anir, góða veitingastaði, eitt besta
listasafn landsins, andatjörn, Hellis-
gerði og svo mætti lengi telja, þannig
að allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.“
Á laugardaginn verður öllu tjaldað til
og leggur Menningar- og listafélag
Hafnarfjarðar sitt lóð á vogaskálarn-
ar til að gera daginn enn skemmtilegri.
„Við verðum með opið hús í Fjöru-
kránni frá 12.00 til 17.00. Hönnun í
Hafnarfirði, Norræna Ferðaskrifstof-
an og o.fl. verða þar með skemmti-
legar uppákomur. Síðan verður talið
í matarveislu að færeyskum og
íslenskum sið og upp úr kl. 21:30
hefjast svo tónleikar þar sem eitt best
geymda leyndarmál Færeyja, söng-
konan Laila Av Reyni og hljómsveitin
Sometime koma fram,“ segir Kristinn
Sæmundsson, einn af félögunum í
Menningar- og listafélaginu.
FRÉTTIR „Trefillinn er orðinn ansi
langur enda verkfall staðið yfir nú
vel á þriðju viku,“ segir Hildi gunn-
ur Guðlaugsdóttir, skrif stofu stjóri
Flens borgar skólans. Starf sfólk
skrif stofunnar í Flens borgar styttir
sér nú stundir í verkfalli framhalds-
skólakennara og heklar trefil. Strax
á fyrsta degi verkfalls var brugðið á
það ráð að grípa til heklunálarinnar.
Þá gafst reyndar lítill tími til að hekla
sökum anna, enda náðist rétt svo að
fitja upp á heklunálina. Með hverjum
deginum sem líður af kennaraverk-
fallinum gefst æ meiri tími til að
hekla og því lengist trefillinn og
lengist. Daglega er skipt um lit á garni
og jafnvel brugðið upp munstri og er
því trefillinn, nú á 14. degi verkfalls,
orðinn býsna skrautlegur.
Trefillinn hefur einnig farið í gegn-
um margar hendur því verkfalls-
verðir fengu t.a.m. að spreyta sig og
ljósmyndari gaflari.is sýndi einnig
snilldartakta í heklinu. Skólameistari
og húsvörður eru þeir einu innanhúss
sem hafa enn ekki gripið í verkfalls-
trefilinn góða, en hver veit hvort, ef
verkfall dregst enn frekar á langinn,
þeir taki sig til og læri listina að hekla.
Annars er tómlegt um að litast í
Flensborgarskólanum þessa dagana.
Fáir nemendur hafa nýtt sér aðstöð-
una í skólanum til að læra, en ein-
hverjir hafa þó litið inn og komið sér
fyrir í birtunni í Hamarssal.
Trefill sem lengist
bara og lengist
Vilja eyrnamerkja
tekjur bæjarins
Langur laugardagur og
færeyskir tónleikar
Björt framtíð
með í slagnum
FRÉTTIR Samkvæmt heimildum
Gaflarans er búið að ganga frá
framboðslista Bjartrar framtíðar
í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor. Listinn hefur
verið samþykktur á félagsfundi
og verður kynntur bæjarbúum nú
á næstu dögum. Mikill hugur er í
frambjóðendum Bjartrar framtíðar
og búið er að leggja mikla vinnu í
stefnumál hreyfingarinnar.
Það er því óhætt að segja að línur
séu farnar að skýrast í framboðs-
málum fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í Hafnarfirði. Samfylkingin
reið á vaðið og birti lista með öllum
frambjóðendum strax í byrjun mars-
mánaðar. Gunnar Axel Axelsson,
formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar,
er nýr oddviti flokksins í bænum.
Píratar hafa birt nöfn 10 efstu á
sínum lista sem og Framsóknarmenn.
Brynjar Guðnason, hönnuður, leiðir
lista Pírata og Ágúst Bjarni Garðars-
son, stjórnmálafræðingur, leiðir
lista Framsóknar. Framsóknarflokk-
urinn fundar á morgun, föstudaginn
4. apríl, þar sem endanlegur listi
verður lagður fram til samþykktar.
Heimildir Gaflarans herma að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé tilbúinn með
framboðslista sem lagður verð-
ur fyrir fulltrúaráðsfund í kvöld.
Vinstri hreyfingin Grænt framboð
er að ganga frá sínum lista og verður
fundað um hann og frambjóðendur
kynntir á félagsfundi nú um helgina.