Gaflari - 03.04.2014, Síða 4
4 - gaflari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Framkvæmdastjóri: Jökull Másson • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín
Gilsdóttir & Kári Freyr Þórðarson (ritstjorn@gaflari.is) • Umbrot og prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22 • Vefstjóri: Vilhjálmur Valgeirsson • Ljósmyndarar: Júlíus
Andri Þórðarson & Vilhjálmur Valgeirsson • Auglýsingar: Júlíus Andri Þórðarson, Jökull Másson & Tryggvi Rafnsson, sími: 544 2100, netfang: auglysingar@gaflari.is
Páll B.
Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
861 9300 - pallb@remax.is
Vönduð vinnubrögð og
framúrskarandi þjónusta
sem skilar þér árangri.
Lækjargata 34d - Hafnarfjörður - 519 5900
FJÖRÐUR
Þarftu að selja? - Frítt söluverðmat
U m h v e r f i s m á l
hafa verið í um-
ræðunni undan-
farna daga. Ekki
þá endilega í hinu
stóra samhengi, þar sem tekist er
á um virkjanir, orkubúskap þjóðar-
innar o.s.frv. heldur hefur nærum-
hverfið verið í brennidepli, eða
hið svokallaða umbúðaþjóðfélag.
Stofnuð hefur verið fésbókar-
síða óþarfa umbúðum til höfuðs
eftir að forsprakkinn hafði keypt
ostaslaufu plastaða í ræmur og
blöskraði, skiljanlega. Einnig hef-
ur verið stofnuð síða gegn rusli
í Reykjavík og þar eru menn að
benda á subbuskapinn í tengslum
við skemmtanahald og eru jafn-
vel í sjálfboðavinnu um helgar að
týna plastglös, sígarettustubba og
annan óþrifnað eftir gleði nætur-
innar.
Það besta við umræðuna er að hún
bar mig aftur í tímann, á vit minn-
inganna. Þegar við vinkonurnar
gerðumst sjálfskipaðir laganna
verðir í miðbænum og bönnuðum
bílstjórum að leggja bílunum upp
á gangstéttar eða þegar við skut-
umst inn í Vínberið eða Vísi með
tuðrurnar okkar fullar af ílátum til
þess að losa okkur við umbúðirn-
ar. Málið vandaðist þegar kom að
eggjunum, en þá lyfti maður örlítið
annari nösinni og hnussaði og tróð
eggjabakkanum í tuðruna. Eða
þegar ég fékk afganginn af pulsu
með öllu á framrúðuna á bílnum
þegar ég var í útréttingum á miðri
Suðurlandsbrautinni með mömmu
í framsætinu. Þá var nú gefið í!
Við vitum það öll að blaðaútgáfa er
e.t.v. ekki það umhverfisvænasta í
heiminum í dag – við vitum jú öll
hvernig blöð eru búin til - en ég get
fullvissað ykkur, lesendur góðir,
um að prentunin á blaðinu er eins
orkuvæn og hún getur orðið í dag,
enginn spilliefni eru notuð, papp-
írinn þunnur, léttur og umhverfi-
svænn, enda fyrir hvert tré sem
pappírsiðnaðurinn fellir er öðrum
fjórum plantað í staðinn. Að auki
er innihaldið vinalegt og mannbæt-
andi. Umhverfisvænastur er svo
sjálfur frétta– og mannlífsvefurinn
gaflari.is, en þar halda áfram að
birtast fréttir af Hafnfirðingum og
þeirra helstu hugðarefnum. Um-
hverfisvænna gerist þetta nú varla
og þess vegna er m.a. tilefni til að
fagna útgáfu fyrsta tölublaðs Gafl-
arans. Enn á ný bætist í flóru fjöl-
miðla Hafnfirðinga og er það von
okkar sem stöndum að útgáfunni
að blaðið eigi eftir að setja mark
sitt á söguna.
Erla Ragnarsdóttir
Hafnarfjarðarbréf
Leiðari ritstjórnar Gaflarans
639 án atvinnu
í Hafnarfirði
Atvinnulausum heldur áfram að
fækka í Hafnarfirði. Í febrúar i
fyrra voru að jafnaði 849 án at-
vinnu í Hafnarfirði, samkvæmt
tölum Vinnumálastofnunar. Í
febrúar á þessu ári voru 639
án atvinnu, 281 karlmenn og
358 konur. Í janúar á þessu ári
voru 649 án atvinnu, þannig að
staðan er mjög svipuð á milli
mánaða.
Atvinnuleysi hefur dregist mikið
saman á höfuðborgarsvæðinu
öllu. Hlutfallslegt atvinnuleysi á
höfuðborgarsvæðinu í síðasta
mánuði var 4,7% en á landinu
öllu var hlutfallið 4,5%. Fjöldi
þeirra sem hafa verið atvinnu-
lausir lengur en sex mánuði
samfellt er nú 3.416, fjölgar um
89 á milli mánaða og eru um
44% þeirra sem voru á atvinnu-
leysisskrá í febrúar.