Gaflari - 03.04.2014, Side 6
6 - gaflari.is
Ingvar Viktorsson
UNDIR GAFLINUM
Það er með ólíkindum hvað veður-
far getur haft mikil áhrif á mann-
skepnuna. Nú loksins þegar birtir
og klakinn er horfinn af götum og
úr görðum bæjarins, þar sem hann
hefur hrjáð okkur í þrjá mánuði, þá
er eins og það birti líka í hugum
okkar. Við fyllumst bjartsýni og
kannski blekkjum við okkur með-
vitað vegna þess að við viljum
trúa því að vorið sé komið. Loks-
ins er hægt að fara út að labba
án þess að eiga það á hættu að
stórslasa sig.
Börnin eru komin út í leiki um leið
og skólinn er búinn og það verður
erfiðara að halda þeim við námið,
sem ekki er skrýtið eftir langan
og frekar leiðinlegan vetur veður-
farslega. Þeim veitir svo sannar-
lega ekki af útiverunni. Fullorðna
fólkið er eins og börnin, ýmsir
fara að huga að görðunum sínum
þó flestir geri sér grein fyrir því
að hið svokallaða og illræmda
páskahret eigi örugglega eftir
að láta á sér kræla. Aðrir fara út
til að þvo bílana sína og jafnvel
bóna þá. Ég fer á hverjum degi
út á Hvaleyri til að líta yfir golf-
völlinn og læt mig dreyma um að
fara mjög bráðlega að spila golf í
frábærum félagsskap og fallegu
umhverfi. Farfuglarnir eru farnir
að láta sjá sig og það gleður líka
margan manninn og iðulega sér
maður fuglaljósmyndara leitandi
að nýjum gestum til að fanga á
filmu. Göngustígurinn meðfram
höfninni er fullur af gangandi og
hlaupandi bæjarbúum. Á læknum
er kominn vorhugur í fuglana og
karlfuglarnir er á fullu í því að gera
sig gilda fyrir kvenfuglinum alveg
eins og strákarnir haga sér í nær-
veru stúlknanna. Allir að leggja
sig fram við að ganga í augun á
hinu kyninu, hvort sem þú flýgur
eða bara gengur og það greinilegt
bæði hjá fuglunum og mannfólk-
inu.
Uppi í Höfðaskógi hjá Skóg-
ræktarfélagi Hafnarfjarðar eru
hinar ýmsu plöntur að lifna við eftir
veturinn og alltaf jafn gaman að
fá sér göngutúr við Hvaleyravatn-
ið, þar eru góðir göngustígar um
allt og búið að grisja skóginn víða
þannig að betra er að ferðast um
hann. Fyrir alla muni hristið af
ykkur vetrarslenið og drífið ykkur
út að ganga, fyllið lungun af
fersku lofti, njótið náttúrunnar,
sem er að vakna til lífsins eins og
við. Og svo er verið að gefa út nýtt
blað í bænum og vonandi er það
líka skemmtilegur vorboði, hver
veit. Sæl að sinni.
Er vorið komið?
TVEIR EINSTAKIR STAÐIR
Langur Færeyskur laugardagur á Fjörukránni 5. apríl 2014
Nánari upplýsingar: www.fjorukrain.is | 565 1213
Fjörukráin og Hotel Viking eru einstakir staðir
og þeir einu á landinu sem bjóða upp á víkinga-
þema. Fjörugarðurinn er opinn fyrir matar-
gesti frá kl. 18:00-22:00 alla daga. Valhöll/
Fjaran er lítill og kósý staður sem er einnig opin
frá kl. 18:00-22:00 alla daga vikunnar. Á Hótel
Víking eru 42 vel búin og glæsileg herbergi auk
þess sem nýlega voru byggð 14 víkinga hús sem
eru staðsett á móti hótelinu.
15 m
ínútna akstur
í m
iðbæ
inn
Á Hliði á Álftanesi erum við bæði með gistingu og
veitingastað. Þar eru átta hergbergi sem taka tvo
til 4 einstaklinga hvert. Öll herbergin hafa sitt
eigið baðherbergi, sjónvarp og þráðlaust internet.
Veitingastaðurinn er opinn fyrir hópa frá 20-50
manns og er þá opinn frá kl 18:00 til 23:00 á
virkum dögum en 01:00 um helgar. Fyrir stóra
hópa bjóðum við uppá lifandi skemmtun. Hlið er
staðsett við sjóinn og er útsýnið þar mjög fallegt.
Skemmtilegir pennar leggja Gaflara lið.
Þeir fjalla um ólík málefni og áhugamál, s.s. heilsu, dýramál,
tísku og lífstíl, mat, sögu og Hafnfirðinga í útlöndum skrifa
heim. Á gaflari.is birtist svo í hverri viku nýr og skemmtilegur
pistill eftir hvern þeirra.