Gaflari - 03.04.2014, Síða 14
FÓTBOLTI Guðbjörg Gunnarsdóttir,
eða Gugga eins og hún er yfirleitt
kölluð, er 28 ára gamall Hafnfirðing-
ur sem vinnur við að standa í marki og
láta skjóta í sig. Það hljómar kannski
ekki eins og draumastarf að láta
skjóta hörðum knetti í sig og að fólk
fagni þegar þú verður fyrir en í aug-
um Guggu vill hún ekki vera í neinum
öðrum sporum. Hún er knattspyrnu-
kona og er markmaður í þýska stór-
liðinu Turbine Potsdam þar sem hún
er að spila sitt fyrsta tímabil í ár.
Gugga hóf meistarflokksferil sinn
fyrr en flestir gera en hún var aðeins
14 ára gömul þegar hún fékk fyrsta
tækifærið sitt með meistaraflokki
kvenna hjá FH. Þá stóð hún í mark-
inu í Coca-Cola bikarkeppninni gegn
Fjölni og þurfti að hirða boltann
þrisvar sinnum úr markinu. Hún lék
með FH til ársins 2002 en þá ákvað
hún að ganga til liðs við Val. Hvað
varð til þess að hún ákvað að skipta
um félag svona ung að árum?
„Ég er uppalinn FH-ingur og eyddi
nánast öllum dögum upp í Krika. Ég
fékk tækifæri mjög ung í meistara-
flokki FH og fyrir það verð ég alltaf
þakklát þjálfurunum. Þegar ég var
17 ára fannst mér tími til að fara út
fyrir mitt „comfort zone“ og halda
áfram að bæta mig. Ég skipti í lok árs
2002 yfir í Val sem hafði þá ekki unnið
Íslandsmeistaratitil í mjög langan
tíma, þannig að það var ekki þannig
að ég hafi farið beint í eitthvað Ís-
landsmeistaralið. Á þessum tíma var
ég svo heppin að allt var hreinlega að
smella saman þarna og strax á mínu
fyrsta tímabili varð ég markvörður
númer eitt og við urðum bikarmeist-
arar. Árið eftir unnum við síðan Ís-
landsmeistaratitil og eftir það tóku
gullaldarár Vals við.“
Með Val vann Gugga meðal annars
fjóra Íslandsmeistaratitla og tvo
bikarmeistaratitla. Í liði Vals voru
feykilega sterkir leikmenn en ein-
hverjar gagngrýnisraddir fóru af
stað og eru enn í kringum sterkustu
14 - gaflari.is
ÍÞRÓTTIR Auglýsing
93x25 mm
Á ennþá eftir að toppa
Mynd: Hafliði Breiðfjörð (fótbolti.net)
lið kvennaboltans þar sem ungir
leikmenn úr öðrum liðum ákveða að
hópast í sterku liðin og sitja jafnvel
á bekknum í stað þess að spila fyrir
uppeldisfélög sín. Hvað finnst Guggu
um þessa þróun í kvennaboltanum á
Íslandi?
Sama uppskriftin hentar
ekki öllum
„Þetta er í raun spurning hvernig leik-
menn forgangsraða. Mér finnst mikil-
vægt að leikmenn hugsi til tveggja
hluta. Gæði á æfingum (þjálfarar,
samherjar, aðstæður) og svo hverjir
möguleikar þínir eru að fá að spila.
Mikilvægt er að átta sig á hvar
maður sjálfur getur náð hámarks
árangri og sama uppskriftin hentar
kannski ekki öllum. Mikilvægt er
fyrir veikari félögin að búa til um-
gjörð sem gerir það heillandi fyrir
leikmenn að halda áfram hjá sínu
uppeldisfélagi. Ég skil alveg að
metnaðurfullur leikmaður vilji fara
til sterkari félaga til að vinna titla
og spila í Evrópukeppnum.“
Gugga er ekki lengur 14 ára gam-
all markvörður sem hleypur upp í
Kaplakrika eftir íslenskutíma í Lækjar-
skóla. Hún er orðin 29 ára gömul og
árunum í boltanum hlýtur að fara
fækkandi. Hversu mörg ár í viðbót
mun Gugga halda áfram að standa í
markinu og fleygja sér á eftir boltum?
„Hér í Potsdam eru æfingarnar
gríðarlega erfiðar og þær eru mjög
slítandi fyrir líkamann. Það er alltaf
erfitt að segja hversu lengi maður
getur spilað en ég er viss um að ég
eigi allavega nokkur góð ár eftir.
Margir segja að markmenn séu að
toppa í kringum 28-32 ára þannig ég
vona að ég eigi mitt besta eftir.“
Guðbjörg Gunnarsdóttir er í ítarlegu
viðtali og það má sjá meira af henni á
gaflari.is. Launamál, landsliðið, lífið
eftir fótboltann og margt fleira.
Frétta- og
mannlífsvefurinn