Gaflari - 03.04.2014, Qupperneq 15

Gaflari - 03.04.2014, Qupperneq 15
gaflari.is - 15 Ertu búin(n) að skrá þig til leiks á Björtum dögum sem haldnir verða 23.-27. apríl í tengslum við Sumardag- inn fyrsta. Tökum fagnandi á móti fjölbreyttum dagskráratriðum og hugmyndum. Umsóknarfrestur er til 14. apríl. Ábendingar sendist á marin@hafnarfjordur.is BJARTIR DAGAR 23.-27. APRÍL KÖRFUBOLTI Stelpurnar í körfuknattleiksliði Hauka hafa verið á miklu skriði þessa dagana og unnu meðal annars Keflvíkinga þrisvar sinnum í röð í úrslitakeppn- inni í körfu. Þær tóku því svokall- aðan sópinn á lið Keflavíkur og eru komnar í úrslitarimmuna gegn Snæ- felli. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Snæfell þegar þetta er skrifað en má reikna með Haukastúlkum sterk- um á heimavelli sínum, Schenkerhöll- inni. Það lið sem sigrar 3 leiki af 5 mun standa uppi sem sigurvegari. Haukarnir hafa mætt Snæfell fjór- um sinnum í vetur og ávallt tapað. Þjálfari Haukaliðsins, Bjarni Magnús- son, hefur tröllatrú á sínum stelpum. „Já við höfum fulla trú á því að við getum náð þremur sigrum“ sagði Bjarni og bætti svo við: „Núna hefst ný keppni og við höfum fulla trú á þessu verkefni en við vitum líka að við verðum að spila nánast full- komna leiki til að eiga möguleika.“ Karlalið Hauka tók einnig þátt í úrslitakeppninni en töpuðu í sinni rimmu fyrir Njarðvík 0-3. Haukum sem var fyrir tímabilið spáð 8. sæti í deildinni komu mörgum á óvart í ár og náðu 5. sætinu. Haukarnir voru nýliðar í ár í deildinni eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni í fyrra og því er árangur þeirra ásættanleg- ur þó svo að leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn hafa vafalítið viljað komast lengra. FÓTBOLTI Það styttist í sumar- ið og að knattspyrnulið Hafnar- fjarðar fari að spila á illa lyktandi grasinu eftir langan og klakamik- inn vetur. Á meðan liðin bíða taka þau þátt í lengjubikarkeppninni og hefur gengi þeirra verið mis- jafnt. Eins og gengur og gerist þá eru einhverjar mannabreytingar á liðunum og hér fyrir neðan má sjá helstu breytingarnar hjá Hafnar- fjarðarliðunum. FH karlalið Komnir: Sam Hewson, Sean Reynolds og Kristján Finnbogason. Farnir: Björn Daníel Sverrisson, Dominic Furness, Ingimar Elí Hlyns- son, Viktor Örn Guðmundsson og Einar Karl Ingvarsson fer á lán. Daði Lárusson og Freyr Bjarnason hafa lagt skóna á hilluna. FH kvennalið Komnar: Jóhanna S. Gústavsdóttir og Lilja Gunnarsdóttir. Farnar: Margrét Sveinsdóttir og Sigrún Ella Einarsdóttir. Haukar karlalið Komnir: Andri Gíslason, Marteinn Gauti Andrason og Matthías Guð- mundsson. Farnir: Björgvin Stefánsson, Haf- steinn Briem. Magnús Þór Gunnars- son fer svo á lán. Haukar kvennalið Komnar: Ásta Berglind Jónsdóttir, Eydís Lilja Eysteinsdóttir, Katrín Klara Emilsdóttir og Rannveig Elsa Magnúsdóttir. Farnar: Sæunn Sif Heiðarsdóttir, Eva Núra Abrahamsdóttir. ÍH Komnir: Árni Freyr Guðnason Farnir: Garðar Ingi Leifsson HANDBOLTI Hafnarfjarðarliðin í handknattleik eru núna að klára tímabilið sitt og eiga þau misjöfnu gengi að fagna. Kvennaliðin komust bæði í úrslitakeppnina þar sem FH- ingar mæta ÍBV en Haukar munu taka á móti Valsstúlkum. Leikirnir fara fram um helgina. Karlamegin eru tvær umferðir eftir í deildinni og eru Haukar á góðri leið með að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. FH-ingar eru hins vegar í afar erfiðri stöðu og eru sem stendur í 5. sæti, þrem- ur stigum á eftir Frömurum. Aðeins fjögur lið fara í úrslitakeppnina og því verða FH-ingar að vinna báða sína leiki og treysta á að Framarar mis- stigi sig. Bæði lið munu spila í kvöld en þá mæta FH-ingar HK í Kaplakrika en Haukar fá Akureyringa í heimsókn. Leikirnir fara fram kl 19:30. Lið ÍH er í 6. sæti í 1. deildinni. Liðið hefur verið að sýna góða takta í vetur en ÍH tekur þátt í Íslandsmótinu í fyrsta sinn síðan 1998. Haukastúlkur komnar í úrslitarimmuna Félagsskipti hafnfirsku knattspyrnuliðanna HNEFALEIKAR Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar fór til Danmerkur í mars til að taka þátt í opnu móti fyrir félagslið. Mótið er talið meðal- sterkt þar sem að nokkrir keppendur er skráðir í A flokk en fleiri í B eða C flokki. Hafnfirðingarnir sendu fimm keppendur og tveir af þeim unnu gull. Arnór Már Grímsson sigraði í A flokki í -69 kg og Alexander Bjarki Svavars- son í C flokki í -64 kg. Hinir þrír kepp- endurnir, Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, Máni Borgarsson og Anna Soffía Vík- ingsdóttir töpuðu öll naumlega í úr- slitunum. Næst á dagskrá hjá hnefa- leikurum Hafnarfjarðar verður ferð á eitt stærsta félagsliðamót í Evrópu, Haringey Box Cup en sem fram fer í London í júní. Skipst á höggum í Danmörku Komast öll Hafnarfjarðarliðin í úrslitakeppnina? Mynd: Axel Finnur Gylfason

x

Gaflari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.