Gaflari - 10.04.2014, Síða 8
Pétur Sigur
gunnars son
Pétur Sigurgunnarsson er mörgum
Hafnfirðingum vel kunnugur. Pétur
sem oftast er kenndur við fyrirtæki
sitt Marko-Merki stóð um síðustu helgi
fyrir merkjasölu í bænum til styrktar
Klettaskóla í Reykjavík og rennur ágóði
sölunnar til tölvukaupa fyrir skólann.
Pétur hefur í gegnum tíðina oft látið
málefni þeirra sem minna mega sín sig
varða og margir hafa fengið að njóta
góðvildar hans.
„Pétur er duglegur,
drífandi og þolir ekk-
ert hangs. Ef eitthvað
vantar er bara brunað
af stað og náð í það, það verður allt að
vera tipp topp. Hann er hreinskilinn og
liggur ekki á skoðunum sínum, og kem-
ur til dyranna eins og hann er klæddur.
Pétur má ekkert aumt sjá, er hjálpsamur
og hugsar vel um náungann. Og svo er
hann duglegur að segja mér, börnum
og barnabörnum hversu hreykinn hann
er af okkur.“
Hjördís Guðjónsdóttir, eiginkona
„Pétur vinur minn er
með stórt hjarta. Hann
er alltaf reiðubúinn að
leggja sitt af mörkum
við að aðstoða og ýta af stað fjáröflun
þar sem þörfin er mikil. Ég hef þekkt
Pétur og fjölskyldu hans í mörg ár og
þau eru gott fólk heim að sækja. Hann
er hugmyndaríkur og kappsamur. Hann
er ekki allra en við sem eigum hann að
erum glöð með okkar mann.“
Örn Geirsson, vinur Péturs
STENDUR UPP ÚR
Axel Guðmundsson,
skóla stjóri Vinnu skólans
„Ég bara get ekki beðið
eftir helginni. Á laugar-
daginn er árgangamót FH þar sem
‘89 árgangurinn mun að sjálfsögðu
bera sigur úr býtum. Á laugardags-
kvöldið er Herrakvöld FH í Krikanum
sem vonandi verður jafn glæsilegt og
skemmtilegt og alltaf. Sunnudagur-
inn mun líklega einkennast af enska
boltanum, lærdómi og svo ætla ég að
vona að amma bjóði mér í kjúkling um
kvöldið. Þannig að helgin mín verður
bara nokkuð góð og vonandi verður
þín það líka. Góða helgi.“
Hulda Helgadóttir,
ritari
„Á föstudag eftir vinnu
er ég komin í páskafrí
sem er dásamlegt. Ég ætla að byrja
helgina í fertugsafmæli hjá litla bróð-
ur, honum Rögga.
Á laugardaginn er þriðja Landsbanka-
mót Sörla og þarf ég að fylgjast með
því þar sem elsti minn er að fara að
keppa og e.t.v. bóndinn líka. Á laugar-
dagskvöldið á ég von á að það verði
bara slakað á.
Á sunnudaginn brunum við svo austur
fyrir fjall í fermingarveislu á Selfossi.“
HELGIN MÍN
Allt frá grunni Að góðu heimili
síðAn 1956
hluti af Bygma
VOr í
hafnarfirði
hÚsAsmiðJA
n Og
BlómAVAl h
AfnArfirði
10.995 kr.
háþrýstidæla C105
14.995 kr
Háþrýstidæla C105.6-5
105bar,5m slanga.
5254249
32.900 kr.
Author Vectra
reiðhjól 26” 18 gírar Shimano Revoshift.
3899998
frábær
hjól fyrir
alla fjölskylduna
6 gírar Shimano Revoshift.
3899947
gasgrill Weber
Q120 svart ferðagrill
39.890 kr.
Weber Q120
Brennari: 2,64 kW. Grillflötur: 42x32 cm
3000244
33.900 kr.
Author energy
reiðhjól 20”
399 kr
Páskaliljur
tet a tet
479 kr
799 kr.
Páskagreinar
899 kr
9.995 kr.
hleðsluborvél
13.995 kr
Rafhlöðuborvél
Black&Decker EPC12CAB
2 rafhlöður
5245999
Hekkklippur
5084715
1.499 kr
hekkklippur
Frábært verð